Pákamannamót
Í dag var haldið páskamannamót í Hornafjarðarmanna í 4. - 7. bekk. Spilað var í tveimur hópum og á sitt hvorri hæðinni og tóku allir nemendur þátt. Sigurvegarar á hvorri hæð voru þau Arnar Freyr Valgeirsson og Alrún Irene Stephensdóttir og þau sem komust í úrslit með þeim voru Jóhann Klemens Björnsson, Áróra Dröfn Ívarsdóttir, Sigrún Salka Hermannsdóttir og Karolina Darnowska.
Nú eru komið páskafrí í skólanum og hefst kennsla aftur samkvæmt stundatöflu 15. apríl.



