Fréttir Grunnskóli
Hreinsunardagur
Hreinsunardagur 002 a vef
Það var duglegt fólk sem týndi rusl í Óslandinu í morgun en þar var meiri vindur in inn í bænum
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

Skóli á grænni grein

Heimsókn fulltrúa landverndar og hreinsunardagur

24.04.2009

Á miðvikudag kom Orri Páll Jóhannsson starfsmaður hjá Landvernd í heimsókn í Grunnskólann. Hann er jafnframt umsjónarmaður verkefnisins Skólar á grænni grein eða Grænfánaverkefnisins en skólinn okkar er þátttakandi í því verkefni.  Markmið verkefnisins er að skólar  bæti sig í umhverfismálum og setji sér umhverfisstefnu.

Orri   byrjaði daginn á því að heimsækja Krakkakot og bekki á miðstigi skólans og ræddi við þá um umhverfismál.  Eftir hádegi var hann með fund með starfsfólki skólans um Grænfánaverkefnið.  Í máli hans kom m.a. fram  að mikilvægt væri að allir í skólanum kæmu að mótun umhverfisstefnu skólans og að nemendur lærðu einnig  lýðræðisleg vinnubrögð.

Umhverfisnefnd skólans mun á næstu vikum vinna úr þessari heimsókn Orra í   skólann  m.a. fara yfir umhverfisgátlista.  Að því loknu verða samin markmið í umhverfismálum fyrir skólann og starfsáætlun.  Umhverfisnefndin stefnir að því að sækja um Grænfánann næsta vetur en þá ætti starfið  að vera komið vel á veg og umhverfisþátturinn farinn  að vega  þungt í skólalífinu.

Í tilefni þess að á morgun er Dagur umhverfisins tóku nemendur í 4. – 8. bekk til hendinni í bænum og tíndu rusl hver sem betur gat.  Með því vilja þeir leggja sitt af mörkum til fegrunar bæjarins.  Því miður rigndi töluvert á hópinn en fæstir létu það nokkuð á sig fá.   Einnig fengu allir nemendur skólans að fara í sundlaugina í dag og naut það mikilla vinsælda.  Víst er að nemendur og starfsfólk skólans á eftir að stunda nýju glæsilegu sundlaugina okkar af krafti. 

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica