Fuglaskoðunarferð hjá 4. bekk
Þann 5. maí s.l. fór 4.bekkur í fuglaskoðunarferð. Binni fuglafræðingur bauð okkur og kennurunum því við erum að byrja að læra um fugla í náttúrufræði. Við fengum blöð með nokkrum fuglum og svo áttum við að merkja X við þá fugla sem við sáum. Við fórum í Sílavík og sáum marga fugla eins og tjald, fýl, hrafn, hrossagauk, grágæs, heiðlóu, skógarþröst og hettumáf. Binni kom með stóran kíki sem allir fengu að kíkja í, en það komu samt flestir með lítinn kíki að heiman. Svo var borðað nesti við sjóinn úti á Ægissíðu og horfðum við út á Skarðsfjörð á fuglalífið þar. Þegar allir voru saddir kíktu allir einu sinni í stóra kíkinn hjá Binna, þar sáum við nokkra fýla út í eyju.
Svo löbbuðum við aftur upp í skóla.
Elín Ása 4.R og Ester Lý 4.Þ



