Fréttir Grunnskóli
Ferdalag 18 og 19 mai 3. bekkur 197
Ferdalag 18 og 19 mai 3. bekkur 197
Margrét, Ylfa og Guðný staddar í Hrollaugshólum
Mynd 1 af 19
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19

Öræfaferð

22.05.2009

Síðan lá leiðin í Skaftafell og borðað hádegisnesti við gamla vatnadrekann sem þar stendur. Þegar allir voru mettir var lagt af stað upp að Svartafossi. Við fossinn var stoppað lengi enda frábært veður og ekki amalegt að vaða og sitja svo á steinunum og sleikja sólina. Eftir að komið var niður af Svartafossi var farið í Hofgarð þaðan fór annar bekkurinn út í Hofsnes í kajakasiglingu en hinn bekkurinn fór að skoða fiskeldið hennar Ásdísar á Hofi. Kajakasiglingin var afar skemmtileg og vel hægt að mæla með því að koma við í Hofsnesi og fara eina ferð. Krakkarnir sýndu góða takta við róðurinn og voru dugleg að hjálpa hvert öðru. Síðan var skipt þannig að þegar báðir bekkirnir voru búnir að sigla og skoða fiskeldið þá var varið í Hofgarð. Í Hofgarði var mikið fjör, það þurfti að koma sér fyrir, borða kvöldmat og svo var kvöldvaka, nokkrir tóku í spil, fóru í teiknikeppni og margt fleira. Eftir góða kvöldhressingu, skúffuköku frá Erlu, skriðu allir í pokann sinn og hlustuðu á eina sögu og fóru að sofa. Morguninn eftir voru mestu morgunhanarnir komnir á stjá fyrir kl 6. Eftir að búið var að taka saman farangurinn og borða morgunverð gengum við upp að Hofskirkju, settumst þar inn, ræddum um kirkjusiði og reiknuðum út aldur kirkjunnar. Svo lá leiðin austur á bóginn við stoppuðum við Kvíárjökul, virtum fyrir okkur jökulöldurnar,  borðuðum nesti og fengum okkur smá göngutúr. Næsta stopp var við Smyrlabjargará og þar lékum við okkur í góða stund áður en haldið var í Nesjaskóla.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica