Fréttir Grunnskóli
Nemendarad09 002 vef
Nemendarad09 002 vef
Einar Birkir, Þorkell Ragnar, Darri Snær, Vigdís María, Sólveig Ýr, Tómas, Karen Björg og Ingólfur

Nemendaráð skólans

04.09.2009

Í vikunni kusu nemendur í 7. - 10. bekk í Nemendaráð skólans.  Í ár er það skipað eftirtöldum nemendum:
Sólveigu Ýr Jónsdóttur 7. B
Þorkeli Ragnari Grétarssyni 7. K
Darra Snæ Nökkvasyni 8. G
Einari Birki Bjarnasyni 8. G
Vigdísi Maríu Borgarsdóttur 9. A
Tómasi Ásgeirssyni 9. Í
Ingólfi Waage Jónssyni 10.B
Karenu Björgu Halldórsdóttur 10. Á

Þær Berglind Steinþórsdóttir og Íris Heiður Jóhannsdóttir munu vinna náið með nemendaráði í vetur og er fyrsta verkefni hópsins að skipuleggja Nýnemahátíð sem verður í skólnum næsta miðvikudag.  Að vísu eru það eingöngu eldri nemendur ráðsins sem skipuleggja þá dagskrá og er það við hæfi þar sem verið er að taka á móti yngri nemendunum. 

Dagskráin hefst með Norræna skólahlaupinu um morguninn þar sem allur skólinn mun hlaupa saman. Eftir hádegi verður farið í ýmsa leiki í 7. - 10. bekk og um kvöldið verður skólaball fyrir nemendur í 8. - 10. bekk. 
Á mánudag og þriðjudag ætla nemendur í yngri bekkjum skólans að fara inn í Haukafell en einnig ætlar 1. - 4. bekkur að taka upp kartöflur í Nesjunum

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica