Fréttir Grunnskóli
Norraena skolahlaupid 002 vef
Norraena skolahlaupid 002 vef
Að meðaltali fóru nemendur 4.5 km.
Mynd 1 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

Norræna skólahlaupið

09.09.2009

Í dag tóku nemendur grunnskólans þátt í Norræna skólahlaupinu í einstaklega miklu blíðviðri. Samtals fóru nemendur skólans 1349,5 km, gangandi og hlaupandi og sú vegalengd næstum jafn löng hringveginum.  Að meðaltali fór hver nemandi því u.þ.b. 4,5 km.  Eldri nemendur skólans tóku að sér að aðstoða þá yngri og nutu flestir dagsins. 

Norræna skólahlaupið er sammnorrænt verkefni eins og nafnið bendir til sem miðar að því að auka hreyfingu skólabarna.  Ákveðið var að hafa það í dag 9.9.09, þegar átakið Göngum í skólann hófst. Með þessu móti viljum við stuðla að góðri heilsu og vellýðan okkar allra, ekki bara nemenda heldur einnig starfsmanna og bæjarbúa almennt því hreyfing er einn af undirstöðu þáttum lýðheilsu. 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica