Göngu- og berjadagur 1. september
Skálatindarnir voru vinsælir
Miðvikudaginn 1. september var göngu- og berjadagur í skólanum. Yngstu fjórir árgangarnir fóru í berjamó í Haukafell en hinir fóru í gönguferð og voru þrjár leiðir í boði. Það var Bergárdalurinn, Endalausidalurinn og Skálatindarnir.
Rúmlega eitthundrað manns fór á Skálatindana þennan dag í blíðskaparveðri. Lagt var upp frá munni Almannaskarðsganga, Lónmegin. Á tímabili höfðu fararstjórarnir áhyggjur af þokubökkum sem voru að læðast yfir en þeir fjarlægðust þó fljótt og var hópurinn í besta veðri og góðu skyggni þó útsýni hefði mátt vera betra.
Skálatindarnir eru einstaklega falleg gönguleið, nokkuð brött í byrjun en síðan tiltölulega auðveld þó vissulega sé hún töluvert löng og reyni vel á. Það voru því þreyttir en stoltir ferðamenn sem komu niður í Bergárdal og skelltu margir sér beint í Bergána í góða veðrinu enda er það ein besta leiðin til að lina þreytta vöðva.



