Frá aðalfundi foreldrafélagsins
Aðalfundur foreldrafélagsins var haldinn í matsal Grunnskólans þriðjudaginn 5. október. Formaður, Kolbrún Þ.Björnsdóttir, bauð fundargesti velkomna og Barnakór Hornafjarðar tók svo við og söng nokkur lög fyrir fundargesti undir styrkri stjórn Kristínar Jóhannesdóttur tónmenntakennara.
Hólmfríður Þrúðmarsdóttir tómstundafulltrúi kynnti starfsemi Þrykkjunar þar sem hún talaði m.a um starfið sem á að vera í vetur og það sem er þegar farið af stað. Hvatti hún foreldra til að koma til að kynna sér starfið. Hulda Laxdal og Þórgunnur Torfadóttir skjólastjórar komu og sögðu frá því hvernig þær ætla að skipta með sér störfum. Hulda sér um samskipi við foreldrafélagið og Þórgunnur hefur umsjón með skólaráðinu. Töluðu þær um mikilvægi þess að hafa virkt foreldrafélag og gott samstarf á milli skóla og foreldra.
Ólöf Ingunn Björnsdóttir gjaldkeri gerði grein fyrir reikningum félagsins. Að umræðu lokinni voru reikningarnir bornir upp og samþykktir án athugasemda. Þá var komið að kosningum í stjórn foreldrafélagsins.
Stjórn foreldrafélagsins 2010-2011 er skipuð eftirfarandi fulltrúum
Kolbrún Björnsdóttir formaður
Jóhann Hilmar Haraldsson
Ólöf Ingunn Björnsdóttir gjaldkeri
Sólrún Sigurjónsdóttir ritari
Heiðrún Högnadóttir
Eygló Illugadóttir
Kristín Ármannsdóttir
Á fundinn mættu 25 foreldrar og ræddu þeir m.a. um hlutverk foreldrafélagsins. Foreldafélagið fær styrk frá bæjarfélaginu og var rætt um hvað væri hægt að gera fyrir peningana. Ýmislegt var rætt, eins og t.d. hvort styrkja ætti félagsmiðstöðina Þrykkjuna, fá fyrirlestur fyrir foreldar, leikrit, tónlist fyrir nemendur og ýmislegt fleira. Engar ákvarðanir voru teknar en ákveðið að stjórnin tæki endanlega ákvörðun, en foreldrum er velkomið að senda inn hugmyndir á formanninn. Kolbrún nefndi við foreldra um hvort einhver áhugi væri á foreldrarölti hjá börnum í 8.-10. bekk. Tenglar ætla að ræða við foreldra um það. Rætt var um hlutverk foreldrafélagsins sem er að styðja við skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og auka samskipti foreldra við skólann og á milli foreldra, því góð samskipti foreldra er forsenda góðs samráðs og samstöðu í uppeldi barnanna.
Einnig var rætt um hlutverk bekkjartengla sem gegna afar mikilvægu starfi þar sem markmið þeirra er að stuðla að samstarfi og samskiptum nemenda, foreldra og kennara. Bekkjartenglar eru jafnframt tengiliðir bekkjarins við foreldrafélagið og fulltrúa foreldra í skólaráði. Stjórnin ætlar að hafa fund með tenglum þar sem starfsemi vetrarins verður ákveðin.
Á heimasíðu skólans má finna upplýsingar um tengla, stjórn og fulltrúa í skólaráði.


