Göngum í skólann
Nú er ný lokið átakinu Göngum í skólann. Nemendur og starfsfólk í Grunnskóla Hornafjarðar tóku þátt í átakinu og eitt af því sem var gert hér var að senda hreyfidagbók heim með hverjum nemanda. Tæplega 60% nemenda skilaði hreyfibókinni aftur í skólann.
Það er ánægjulegt að sjá hvað þessir krakkar sem skiluðu inn bókinni hreyfa sig mikið. Rúmlega 95% af krökkunum gengu eða hjóluðu í skólann á meðan á átakinu stóð og rúmlega 96% nemanda stunda hreyfingu eftir skóla sem er mjög ánægjulegt .
7. bekkur stóð sig best að skila inn bókum og að hreyfa sig.
Við vonum að sem flestir haldi áfram að ganga eða hjóla í skólann í vetur og minnum á endurskinsmerkin.



