Fréttir Grunnskóli
Forvarardagurinn 2010 í Grunnskóla Hornafjarðar
Forvarardagurinn 2010 í Grunnskóla Hornafjarðar
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

Forvarnardagurinn

03.11.2010

 

Í dag var Forvarnardagurinn haldinn á landsvísu og fengu nemendur 9.bekkjar boð um að taka þátt. Að sjálfsögðu tók okkar grunnskóli boðinu og í tilefninu af því fóru fyrstu tveir tímarnir í að vinna ákveðna hópavinnu.  Þar átti að svara spurningum um mikilvægi samveru foreldra og unglinga, mikilvægi þess að taka þátt í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi og hvers vegna nauðsynlegt sé að bíða með áfengisneyslu fram yfir unglinsárin. Þessi vinna tókst í alla staði mjög vel og nemendurnir okkar voru alveg til fyrirmyndar. Í lok tímans fóru nemendur og  kennarar út þar sem boðið var upp á fótbolta, körfubolta eða rykk og í lok dagsins fengu nemendur armbönd að gjöf frá skátunum, umfí og ísí með merki forvarnardagsins.is að gjöf. 

 

Hægt er að fá frekari upplýsingar inná  http://www.forvarnardagur.is/. Á sömu vefslóð geta nemendur síðan tekið þátt í netratleik og eru vegleg verðlaun í boði fyrir þá sem verða dregnir út.

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica