Frumurnar sigruðu Legókeppnina
Frumurnar, lið Grunnskóla Hornafjarðar sigraði hina árlegu First Lego League keppni sem haldin var í Keili í Keflavík, laugardaginn 13. nóvember. Frumurnar eru 10 nemendur úr 7. bekk og er Eiríkur Hansson kennari þjálfarinn þeirra. Keppnin er fjölþætt og reynir á krakkana á marga vegu. Meðal annars þá hönnuðu þau, smíðuðu og forrituðu róbót sem leysti flóknar þrautir borði.
Þema keppninnar í ár var BODY FORWARD (líkaminn lifi). Keppendur áttu að fjalla um eitthvað sem gæti hjálpað líkamanum þegar sjúkdóma eða slys ber að höndum.
Frumurnar fjölluðu um brunasár og meðferð þeirra. Þau kynntu nýja uppfinningu sína sem heitir KÆLIBINDIÐ, en það er ný útfærsla af kælipoka til að kæla brunasár.
Frumurnar munu keppa fyrir hönd Íslands á Evrópumóti í Hollandi í vor.
Þess má geta að þetta er í þriðja sinn sem lið úr 7. bekk sigrar þessa keppni og fer erlendis til að keppa fyrir hönd Íslands. Öll þessi þrjú lið eru núna í skólanum auk þess sem fjórða liðið var í 2. sæti í fyrra.
Á heimasíðu keppninnar má sjá frekari upplýsingar um hana http://firstlego.is/.


