Starfslýsingar

Starfslýsingar

Mikilvægt er að starfsmenn viti til hvers er ætlast af þeim í starfi. Þótt aldrei sé hægt að telja nákvæmlega upp öll störf sem viðkomandi á að sinna þá geta starfslýsingar auðveldað fólki að sinna starfi sínu af trúmennsku og alúð.  

Skólastjóri 

Skólastjórar bera endanlega ábyrgð á skólastarfinu . Í starfslýsingu skólastjórnenda er starfi þeirra skipt í sjö svið með misjöfnum áherslum. Þar sem skólastjórar í Grunnskóla Hornafjarðar eru tveir skipta þeir að einhverju leyti með sér verkum en almennt gildir þessi starfslýsing fyrir hvorn þeirra.

  

Verkaskipting skólastjórnenda

Skólastjórnendur eru þrír, tveir skólastjórar og einn deildarstjóri stoðþjónustu auk þess sem verkefnisstjóri er í 7. – 10. bekk. Skólastjórarnir koma báðir að almennu skólastarfi og eru staðgenglar hvors annars en skipta þó ákveðnum verkum með sér sem hér segir:

Hulda er skólastjóri og sér um daglega skólastjórn í 1. til 6. bekk og er fulltrúi skólastjóra í sjálfsmati skólans og grænfánavinnu. Í fjarveru Huldu tekur Þórhildur Kristjánsdóttir deildarstjóri sérkennslu við skólastjórn á yngra stigi.

Þórgunnur sér um daglega skólastjórn í 7. til 10. bekk og fjármál skólans Auk þess hefur hún umsjón með útgáfu- og upplýsingamálum, þar með talið utanumhald um skólanámskrá og starfsáætlun, einnig Heilsueflandi skóla og Uppeldi til ábyrgðar. Í fjarveru Þórgunnar tekur Eygló Illugadóttir, verkefnisstjóri á unglingastigi við daglegri skólastjórn á unglingastigi.

Saman sjá skólastjórarnir um starfsmannamál, innra starfs skólans og faglega þáttinn svo sem þróunarverkefni sem unnin eru í skólanum. Þeir skiptast á að vera talsmenn skólans út á við sbr. að sitja skólanefndarfundi og annað slíkt.

Þórhildur Kristjánsdóttir er deildarstjóri stoðþjónustu. Hún hefur yfirumsjón með allri þjónustu við nemendur með sérþarfir í grunnskólanum auk þess að sjá um allar lestrargreiningar. Aðalstarfsstöð hennar er í Hafnarskóla.

Eygló Illugadóttir er verkefnisstjóri á unglingastigi. Hennar meginhlutverk er að hafa yfirumsjón með stoðþjónustu á unglingastigi, sjá um innleiðingu og eflingu á einstaklingsmiðuðu námi auk þess að vera yfir ritstjórn á skólanámskrá.

Með þessari verkaskiptingu skólastjórnenda er lögð áherslu á lagskipta stjórnun fremur en deildaskipta. Þetta þýðir í reynd að allir skólastjórnendur koma að skólastjórn á öllum skólastigum. Tilgangurinn með þessari verkaskiptingu er að reyna að ná fram betri og skilvirkari stjórnun sem leiði til betri árangurs.

Skólinn er þjónustustofnun við nemendur, forráðamenn og samfélagið sem hann starfar í. Góður árangur næst ekki nema allir vinni saman og stefni að sama marki. Skólastjórnendur vilja leggja sitt að mörkum til skapa skýra sýn á skólastarfið og ná fram öflugum og árangursríkum skóla.

1. Daglegt skólastarf

·         Umsjón með forföllum starfsmanna

·         Umsjón með húsnæði og skólalóð

·         Umsjón með skólaakstri

·         Erfið agamál

·         Eineltismál

·         Annar daglegur rekstur.

2. Samskipti við

·      Skólaskrifstofu

·      Skólanefnd

·      Skólaráð

·      Nemendaverndarráð

·      Deildarstjóra

·      Verkefnisstjóra

·      Starfsfólk

·      Skólahjúkrunarfræðing

·      Foreldra

·      Nemendur

·      Menntamálaráðuneyti

·      Námsmatsstofnun

·      Leikskóla

·      FAS.

3. Skipulagning og áætlanagerð:    

·      Stundaskrárgerð

·      Kennarafundir

·      Deildarfundir

·      Teymisfundir

·      Starfsáætlun

·      Áætlanir um skemmtanir, vettvangsferðir og ferðalög

·      Funda- og samráðsplan

·      Skipulag prófa, próftafla

·      Skóladagatal

·      Handbók nemenda og foreldra

·      Starfsmannalykill.

4. Fagleg forusta:

·      Stuðlar að því að skólinn sé í forystu meðal skóla á landinu í faglegu starfi.

·      Stuðlar að faglegu umhverfi og aðgengi að faglegu efni.

·      Sér til þess að stefna skólans sé skýr og sýnileg og er í forystu með að fylgja henni eftir.

·      Heldur utan um vinnu við skólanámskrá ásamt starfsmanni sem vinnur við skólanámskrá.

·      Styður við þróunar- og umbótaáætlanir og leitast við að fá fólk til að vinna í teymum og framkvæmdahópum.

·      Situr í teymum eftir því sem við á.

·      Sér um að afla námskeiða sem styðja við þróunar- og umbótaáætlanir skólans.

·      Leiðbeinir við gerð námsáætlana hjá kennurum.

·      Sér til þess að upplýsingaflæði í skólanum sé virkt.

·      Vinnur með starfsmönnum að eflingu á innra starfi grunnskólans.

5. Starfsmannahald

·      Tryggir eftir því sem unnt er góð starfsskilyrði fyrir starfsfólk.

·      Sér til þess að starfsmannastefna sé virk og unnin í samráði við starfsfólk.

·      Sér til þess að starfsmannalykill sé reglulega uppfærður í samræmi við skólastarfið hverju sinni.

·      Sér um ráðningar starfsfólks í samráði við aðra stjórnendur.

·      Vinnur að námskeiðahaldi fyrir starfsmenn.

·      Sér um og undirbýr starfsmannaviðtöl samkvæmt skipuriti.

·      Vinnur starfslýsingar með öðrum stjórnendum.

·      Er yfirmaður fagstjóra.

6. Fjármál

·      Gerð fjárhagsáætlunar og eftirlit með henni

·      Gerð launaáætlunar og eftirlit með henni

·      Samþykkir reikninga

·      Kennslustundafjöldi

·      Skólaakstur

·      Áætlun um viðhald skólahúsa

·      Áætlun um kaup á kennslutækjum og búnaði

·      Innkaup námsefnis og kennslugagna

·      Útboð ýmissa þátta í rekstri skólans

7. Félagsstörf

Styður við félagsstarf í grunnskólanum

Deildarstjóri sérkennslu

1. Daglegt skólastarf

·         Ráðgjöf við kennara

·         Fundir með kennurum, foreldrum og ráðgjöfum

·         Samræming sérkennsluúrræða og framþróun slíkar úrræða

·         Upplýsingagjöf

·         Greiningar og skilafundir.

2. Samskipti við

·      Skólastjórnendur

·      Leikskóla

·      Sérkennara

·      Umsjónarkennara

·      Aðra kennara

·      Stuðningsfulltrúa

·      Sálfræðing

·      Talmeinafræðing

·      Skólahjúkrunarfræðing

·      Heilsugæslu og barnalækni

·      Foreldra

·      Nemendur

·      Nemendaverndarráð

·      Skólaskrifstofu

·      Málefni fatlaðra

·      Félagsmálastjóra

·      Stofnanir sem sinna greiningum og ráðgjöf á landsvísu

·      Blindrabókasafn

·      Atvinnulífið eins og þörf er hverju sinni í tengslum við nemendur með sérþarfir.

3. Skipulagning, áætlanagerð:

·      Skipuleggur stuðningsúrræða

·      Skipuleggur fundi nemendaverndarráðs

·      Skipuleggur starfsemi námsvera

·      Skipuleggur skilafundi og aðra fundi með forráðamönnum og kennurum

·      Skipuleggur skilafundi milli leik- og grunnskóla

·      Situr skilafundi grunnskóla og FAS

·      Gerir tillögu að áætlun um fjölda stunda í sérkennslu

·      Skipuleggur stundatöflur stuðningsfulltrúa og sérkennara

·      Skipuleggur heimsóknir sérfræðinga í skólann t.d. sálfræðings og talmeinafræðings

·      Situr skilafundi sérfræðinga

·      Sér um að sækja um frávik, undanþágur og pöntun á prófgögnum fyrir nemendur með greiningar og sérþarfir vegna samræmdra könnunarprófa til Námsmatsstofnunar fyrir nemendur í 4., 7. og 10. bekk

·      Sér um að nemendum með lestrar- og námsörðugleika séu búnar viðhlítandi aðstæður við próftöku t.d. munnleg próf, stækkað letur á prófverkefnum, lengri próftími o.fl.

·      Sér um að einstaklingsnámskrár séu gerðar við upphaf náms eða eftir greiningu og að þær séu endurskoðaðar eftir þörfum.

·      Sér til þess að vorskýrslum um nemendur í stoðþjónustu sé skilað

·      Sér til þess að einstaklingsnámskrár séu endurskoðaðar að vori og undirbúnar fyrir nýtt skólaár.

4. Fagleg forusta

·       Hefur yfirumsjón faglegum málum í stoðþjónustuúrræðum skólans.

·      Er í forystu þegar kemur að einstaklingsmiðun og í því að vinna eftir hugmyndafræði skóla án aðgreiningar.

·       Veitir ráðgjöf starfsmönnum sem sinna stoðþjónustu.

·       Heldur utan um starf nemendaverndarráðs.

·       Kemur með tillögur að námskeiðum er varða sérkennsluúrræði í samráði við skólastjórnendur.

·       Sér um lestrargreiningar og aðrar greiningar sem falla undir sérkennara.

5. Starfsmannahald

·      Sér um að áætla sérkennsluþörf hverju sinni og þörf fyrir stuðningsfulltrúa og þroskaþjálfa.

·      Sér að hluta til um starfsmannaviðtöl innan stoðþjónustu.

6. Fjármál

·      Gerir tillögu að áætlun vegna sérkennsluúrræða.

·      Gerir tillögu að innkaupum gagna og búnaðar vegna sérkennslu.

7. Félagsstörf

·      Ráðgjöf vegna félagsmála fyrir nemendur með sérþarfir. 

Umsjónarkennari 

Í skólastarfinu er umsjónarkennarinn lykilpersóna. Hann er sá aðili sem þekkir nemendur öðrum fremur og getur veitt þeim þann stuðning og aðhald sem þurfa þykir. Í skólastarfinu er umsjónarkennarinn einnig tengiliður heimilis og skóla. Hlutverk umsjónarkennara er m.a. að hlutast til um andlega og líkamlega velferð nemenda sinna í samvinnu við foreldra eftir þörfum.

Umsjónarkennarar ræða við nemendur sína og fjalla almennt um þau mál sem snúa að vinnu, umgengnisreglum auk mála sem upp kunna að koma í einstökum bekkjardeildum.

Umsjónarkennarinn hefur samband við foreldra/forráðamenn svo oft sem þurfa þykir. Hann skal t.d. hafa samband við foreldra/forráðamenn ef umsjónarnemendur hans gleyma bókum, sinna ekki heimanámi, sýna af sér ókurteisi eða vítaverða framkomu, leggja aðra nemendur í einelti, skrópa eða koma oft seint í kennslustundir. Einnig er mikilvægt að umsjónarkennarinn hafi samband þegar vel gengur. Gott samstarf við heimili tryggir góða skólagöngu nemenda og þá þarf líka að halda góðu atriðunum á lofti.

Viðtalstímar umsjónarkennara eru auglýstir á heimasíðu skólans. Forráðamenn eru hvattir til að hafa samband við viðkomandi umsjónarkennara svo oft sem þurfa þykir.

Umsjónarkennari:

·      Hefur umsjón með sínum umsjónarbekk.

·      Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska.

·      Fylgist með samskiptum nemenda sinna innbyrðis og grípur strax inn ef minnsti grunur leikur á einelti og fylgir þá vinnuferli eineltisáætlunar.

·      Hefur samband við forráðamenn eftir þörfum.

·      Situr kennara- og árgangafundi og aðra þá fundi sem skólastjórnin felur honum.

·      Tekur þátt í vinnu við skólanámskrá og ýmiss konar áætlunum innan skólans.

·      Tekur við og leitar eftir upplýsingum um hegðun, námsframvindu o.fl. hjá sérgreinakennurum og öðrum upplýsingum sem þeir þurfa að koma á framfæri.

·      Færir einkunnir og umsagnir inn í Mentor og spjaldskrá skólans.

 

Hlutverk umsjónarkennara gagnvart námsaðstoð og sérkennslu

·      Ber ábyrgð á öllum nemendum úr umsjónarbekknum.

·      Er í samstarfi við sérkennara um nemendur sem þurfa sérkennslu.

·      Gerir einstaklingsnámskrár fyrir alla nemendur sem þess þurfa með aðstoð sérkennara.

·      Situr í þjónustuteymi fyrir umsjónarnemendur þegar við á.

·      Undirbýr tilvísanir í samráði við sérkennara og deildarstjóra.

·      Sér um að nemendur hafi námsefni við hæfi í samráði við sérkennara.

·      Sér um að gera samninga við forráðamenn ef kemur til þess að námi nemanda sé frestað.

í einstökum námsgreinum í samráði við deildarstjóra sérkennslu

 

Hlutverk umsjónarkennara gagnvart félagslífi og vettvangsferðum nemenda

·         Hefur umsjón með og fer í vettvangsferðir í samráði við aðra kennara í árganginum.

·         Hefur umsjón með undirbúningi og framkvæmd ýmisskonar skemmtidagskrár síns bekkjar.

·         Hefur umsjón með bekkjarkvöldum tvisvar á vetri og sér um annað félagslíf með nemendum innan skólans.

  

Hlutverk umsjónarkennara gagnvart agavandamálum sem upp koma

·         Fyrst ræðir kennarinn einu sinni eða oftar einslega við viðkomandi nemanda.

·         Beri það ekki árangur, hefur umsjónarkennarinn samband við forráðamenn og er það skráð í dagbók viðkomandi nemanda í Mentor.

Bæti nemandinn sig ekki, boðar umsjónarkennari bæði forráðamenn og nemanda í viðtal. Niðurstöður þess eru skráðar í dagbók nemandans og einnig hverjir mættu á fundinn. Á þessu stigi málsins má leita aðstoðar námsráðgjafa eða annarra sem að liði gætu orðið. Komi enn í ljós að misbrestur sé á að nemandinn sinni námi sínu, er máli hans vísað til skólastjóra.

Sérkennari

·      Vinnur í samstarfi við umsjónarkennara og fagkennara ákveðinna árganga.

·      Kennir nemendum sem þurfa sérkennslu í bekk eða utan hans.

·      Heldur utan um gerð einstaklingsnámskráa hjá sérkennslunemendum í nánu samráði við umsjónarkennara og/eða  viðkomandi faggreinakennara.

·      Heldur utan um endurskoðun einstaklingsáætlana að vori í nánu samráði við umsjónarkennara eða viðkomandi faggreinakennara.

·      Finnur námsefni og námsgögn við hæfi í samstarfi við umsjónarkennara eða viðkomandi faggreinakennara.

·      Veitir stuðningsfulltrúa ráðgjöf varðandi námsgögn og vinnulag í samráði við deildarstjóra og umsjónarkennara/faggreinakennara.

·      Gerir sérkennsluskýrslur í lok starfsárs fyrir alla nemendur bekkjarins sem fá sérstaka aðstoð og kennslu

·      Hefur samstarf við foreldra í samráði við umsjónarkennara

·      Hefur samstarf við umsjónarkennara eða viðkomandi faggreinakennara um námsmat og próftöku nemenda með sérþarfir

·      Sér um að nemendum með lestrar- og námsörðuleika séu búnar viðhlítandi aðstæður við próftöku t.d. munnleg próf, stækkað letur á prófverkefnum, lengri próftíma o.fl.

·      Aðstoðar umsjónarkennara við skipulagningu og framkvæmd námsferða og óhefðbundinna skóladaga með tilliti til nemanda með sérþarfir

·      Hefur umsjón með námsgögnum til sérkennslu og sérkennslustofu

·      Situr í nemendaverndarráði eftir því sem við á og situr kennarafundi, árgangafundi og aðra þá fundi sem skólastjórn ætlast til að hann taki þátt í

·      Tekur þátt í vinnu við gerð skólanámskrár og ýmissa áætlana innan skólans

·      Situr skilafundi með sérfræðingum eftir því sem við á

·      Tekur þátt í undirbúningi tilvísana í samráði við deildarstjóra og umsjónarkennara

·      Er næsti yfirmaður stuðningsfulltrúa

·      Er undirmaður deildarstjóra sérkennslu

Sérgreinakennari

  ·      Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska.

·      Færir einkunnir, umsagnir og mætingu inn í Mentor eftir því sem við á auk dagbókar.

·      Tekur þátt í gerð skólanámskrár og ýmsum áætlunum innan skólans.

·      Tekur þátt í samstarfi við umsjónarkennara, sérgreinakennara og faggreinakennara.

·      Hefur umsjón með sérgreinastofu og kennslutækjum.

·      Sér um frágang að vori og innkaup fyrir næsta skólaár.

·      Situr kennarafundi, árgangafundi og aðra þá fundi sem skólastjórn ætlast til að sérgreinakennari taki þátt í.

·      Leysir úr vandamálum sem upp kunna að koma hjá nemendum.

·      Fyrst ræðir kennarinn einu sinni eða oftar einslega við viðkomandi nemenda.

·      Beri það ekki árangur, hefur kennarinn samband við umsjónarkennara og leitar eftir aðstoð þar.

·      Mikilvægt er að sérgreinakennari færi slík samskipti inn í dagbókina í Mentor.

 Þroskaþjálfi  

Þroskaþjálfi hefur það verksvið að sinna nemendum sem eru með þroskafrávik og/eða fötlun. Hann sér um skipulagningu og undirbúning þjónustu sem þessir nemendur þarfnast.

Starf þroskaþjálfa miðar fyrst og fremst að því að auka færni og sjálfstæði nemenda, félagslega, námslega og í athöfnum daglegs lífs. Starfið tekur mið af einstaklingsnámskrá og hefur það að markmiði að draga smám saman úr þörf nemenda fyrir stuðning í þeim tilvikum þar sem það er hægt. Þroskaþjálfi starfar innan og utan almennra bekkjardeilda allt eftir þörfum nemenda hverju sinni.

·      Vinnur í samstarfi við umsjónarkennara og fagkennara.

·      Heldur utan um gerð einstaklingsnámskráa hjá nemendum með fötlun í nánu samráði við umsjónarkennara og/eða  viðkomandi faggreinakennara.

·      Heldur utan um endurskoðun einstaklingsáætlana að vori í nánu samráði við umsjónarkennara eða viðkomandi faggreinakennara.

·      Finnur námsefni og námsgögn við hæfi í samstarfi við umsjónarkennara eða viðkomandi faggreinakennara.

·      Veitir stuðningsfulltrúa ráðgjöf varðandi námsgögn og vinnulag í samráði við deildarstjóra og umsjónarkennara/faggreinakennara.

·      Gerir sérkennsluskýrslur í lok starfsárs.

·      Hefur samstarf við foreldra í samráði við umsjónarkennara.

·      Hefur samstarf við umsjónarkennara eða viðkomandi faggreinakennara um námsmat og próftöku nemenda með fötlun.

·      Sér um að nemendum með lestrar- og námsörðuleika séu búnar viðhlýtandi aðstæður við próftöku t.d. munnleg próf, stækkað letur á prófverkefnum, lengri próftíma o.fl.

·      Aðstoðar umsjónarkennara við skipulagningu og framkvæmd námsferða og óhefðbundinna skóladaga með tilliti til nemanda með sérþarfir.

·      Situr kennarafundi, árgangafundi og aðra þá fundi sem skólastjórn ætlast til að hann taki þátt í.

·      Tekur þátt í vinnu við gerð skólanámskrár og ýmissa áætlana innan skólans.

·      Stýrir þjónustuteymum nemenda með fötlun.

·      Veitir samstarfsfólki ráðgjöf vegna þroskafrávika og fötlunar nemenda sinna.

·      Veitir nemendum umönnun og aðstoð við persónulega þætti innan skólans ef við á.

·      Situr skilafundi með sérfræðingum eftir því sem við á.

·      Hefur samráð við greiningarstofnanir.

·      Tekur þátt í undirbúningi tilvísana í samráði við deildarstjóra og umsjónarkennara.

·      Er næsti yfirmaður stuðningsfulltrúa þar sem við á.

·      Er undirmaður deildarstjóra sérkennslu.

Stuðningsfulltrúi

Stuðningsfulltrúi er kennara og sérkennara til aðstoðar við að sinna nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð. Starfið miðar fyrst og fremst að því að auka færni og sjálfstæði þessara nemenda, félagslega, námslega og í daglegum athöfnum. Starfið tekur mið af þar til gerðri áætlun og hefur það að markmiði að draga smám saman úr þörf fyrir stuðning í þeim tilvikum þar sem það er hægt.

Stuðningsfulltrúi starfar innan og utan almennra bekkjardeilda allt eftir þörfum nemenda hverju sinni. Næsti yfirmaður stuðningsfulltrúa er deildarstjóri sérkennslu en samráð við umsjónarkennara er afar mikilvægt. Faglegur stuðningur við stuðningsfulltrúa er í höndum deildarstjóra sérkennslu, sérkennara og þroskaþjálfa.

Stuðningsfulltrúi

·      Aðstoðar nemendur við athafnir daglegs lífs og til virkrar þátttöku í skólastarfi.

·      Aðstoðar nemendur við að ná settum markmiðum samkvæmt aðalnámskrá / einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara.

·      Ýtir undir færni og sjálfstæði nemenda í námi og athöfnum daglegs lífs t.d. með því að hvetja þá til að gera sem mest sjálfa og hrósa þeim fyrir viðleitni í þá átt.

·      Aðstoðar nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð.

·      Styrkir jákvæða hegðun nemenda með hvatningu og hrósi eða samkvæmt ákveðnu umbunarkerfi.

·      Vinnur gegn neikvæðri hegðun samkvæmt umbunarkerfi, með áminningum eða með því að forða nemanda úr aðstæðum sem hann ræður ekki við.

·      Aðstoðar nemendur við að taka þátt í félagslegum samskiptum innan og utan skólastofunnar.

·      Fer út á frímínútnavakt eftir þörfum.

·      Veitir nemendum félagslegan stuðning með því að hlusta á frásagnir þeirra og reynslu og spjalla við þá þegar aðstæður leyfa.

·      Fylgir einum eða fleiri nemendum á ferðum þeirra um skólann, milli húsa, í frímínútum og vettvangsferðum og aðstoðar þá eftir þörfum.

·      Situr fag- og foreldrafundi eftir því sem við á.

·      Getur eftir aðstæðum einnig sinnt öðrum nemendum í bekknum, m.a. til að kennari geti aðstoðað nemendur með sérþarfir.

·      Aðstoðar kennara við að fara yfir verkefni nemenda.

·      Annast önnur þau störf sem honum kunna að vera falin af yfirmanni og falla innan eðlilegs starfssviðs hans.

Fagstjóri

Meginhlutverk fagstjóra er að stuðla að því að skipuleggja kennslu í einstökum námsgreinum og vera faglegur ráðgjafi skólans í einstökum námsgreinum. Fagstjórar starfa undir stjórn þess skólastjóra sem fer með fagleg málefni skólans hverju sinni. Fagstjóri samhæfir kennslu, markmið og val námsefnis í sínu fagi í hverjum árgangi. Fagstjóri;

·         Leiðir samstarf þeirra sem kenna fagið og heldur sameiginlega samráðsfundi.

·         Vinnur að skipulagi námsmats og leiðir vinnu við skólanámskrá sem að hans fagi snýr.

·         Hefur yfirsýn yfir kennsluaðferðir og námsefni í greininni.

·         Er ráðgefandi um hvað skuli kennt og hvernig.

·         Gengur eftir að námsáætlanir séu gerðar og þeim haldið til haga svo aðrir geti nýtt sér þær.

·         Er leiðandi við prófagerð.

·         Leiðbeinir nýjum kennurum varðandi kennslu og námsefni þeirrar greinar sem viðkomandi er fagstjóri yfir. Aðstoðar aðra kennara eftir því sem aðstæður gefa tilefni til.

·         Er tengiliður við skólastjórn og gerir henni grein fyrir starfinu.

·         Fylgist með nýjungum í skólastarfi, sækir námskeið, kynningarfundi og aðra fundi er tengjast starfinu.

·         Ber ábyrgð á að eðlileg samfella sé í námi milli árganga.

·         Sinnir öðrum þeim störfum sem skólastjórn kann að fela viðkomandi.

 

Skólasafnvörður

·      Sér um safngæslu og daglega umsjón.

·      Kynnir safnið.

·      Sér um útlán bóka og annarra gagna.

·      Leiðbeinir nemendum og kennurum á safni.

·      Hefur samvinnu við Menningarmiðstöðina.

·      Hefur samvinnu við kennara.

·      Sér um innkaup á bókum, myndböndum, geisladiskum og öðrum gögnum.

·      Sér um frágang bóka.

·      Kennir á skólasafni og útbýr verkefni vegna safnkennslu.

·      Sinnir nemendum sem fá að vera tímabundið á safninu í samráði við umsjónarkennara eða sérkennara.

 

Ritari með húsvörslu

Starfsmaður lýtur daglegri verkstjórn skólastjóra sem ræður hann til starfa og ber ábyrgð á störfum hans. Starfsmaður er bundinn trúnaði við skólastjóra og er bundinn þagnarheiti um þau atriði er varða nemendur og starfsfólk skólans persónulega.

Starfsmaður tekur þátt í uppeldis- og umsjónarstarfi og öðrum þeim störfum sem fram fara innan skólans. Megináhersla er lögð á velferð og vellíðan nemenda og ber að stuðla að því að umgengni við skólahúsnæðið verði ætíð sem best.

Starfsmaður hefur umsjón með skólahúsnæðinu og sér til þess að það sé lagfært sem aflaga fer.

Ritari með húsvörslu

·      Sér um að opna skólann á morgnana og læsa honum síðdegis.

·      Sér um daglega afgreiðslu og símavörslu á skrifstofu skólans.

·      Tekur á móti þeim sem eiga erindi við starfsfólk skólans.

·      Annast bréfaskriftir, skýrslugerð, ljósritun og annað sem til fellur fyrir skólastjórnendur.

·      annast ljósritun fyrir kennara eftir því sem aðstæður leyfa.

·      Sér um lyfjagjafir til ákveðinna nemenda samkvæmt fyrirmælum hjúkrunarfræðings.

·      Sér um póstsendingar og annast ýmsar sendiferðir.

·      Sér um móttöku á námsbókum/námsgögnum frá nemendum og lagar bækur eftir því sem þörf er.

·      Sér um nemendaspjaldskrá. Sér um allar skráningar í Mentor svo sem nýskráningar, fjarvistir nemenda og forföll starfsmanna.

·      Sér um pantanir og innkaup á hreinlætisvörum, pappír, ritföngum, vörum til ræstinga, vörum vegna kaffistofu, vörum frá Námsgagnastofnun o.fl. vegna daglegs reksturs í samræmi við innkaupastefnu sveitarfélagsins.

·      Tekur við beiðnum og athugasemdum um daglegt viðhald og bilanir og beiðnum um kaup á vörum til daglegs reksturs.

·      Er tengiliður við umsjónarmann fasteigna bæjarfélagsins.

·      Sér um að koma beiðnum um úrbætur vegna bilana til umsjónarmanns fasteigna.

·      Fylgist með ræstingum og sér til þess að allt sem þarf til þeirra sé til í skólanum.

·      Hefur umsjón með húseign, tækjum og innanstokksmunum skólans. Mætir áður en starfsemi hefst í skólanum til þess að sjá til þess að hiti, lýsing og loftræsting sé fullnægjandi og að kerfi þess starfi rétt. Sami háttur skal hafður á við lok skóladags.

·      Sér til þess að umhverfi skólans og aðkoma starfsmanna og nemenda sé með viðhlítandi hætti hvað varðar öryggi.

·      Veitir fyrstu hjálp ef slys eða óhapp ber að höndum.

·      Sér til þess að húsgögn og tæki séu flutt á milli staða ef þörf er á.

·      Annast móttöku á aðföngum til skólans.

·      Annast húsvörslu á þeim tímum sem húsnæði skólans er í notkun utan daglegs skólatíma samkvæmt gildandi reglum.

·      Annast önnur þau störf er skólastjóri kann að fela honum og fallið geta að ofantöldum markmiðum.

Starfsmaður hefur ávallt samband við skólastjóra og eftirlitsmann fasteigna ef ástæða þykir til. Hann ber ábyrgð á að þau verk, sem við blasa, verði unnin. Sé starfsmaður í leyfi eða öðru fríi (jól og páskar) tekur eftirlitsmaður fasteigna að sér húsvörslu í viðkomandi skólum.

Skólaliði og matráður

Starfsmaður lýtur daglegri verkstjórn skólastjóra sem ræður hann til starfa og ber ábyrgð á störfum hans. Starfsmaður er bundinn þagnarheiti um þau atriði er varða nemendur og starfsfólk skólans persónulega.

Starfsmaður tekur þátt í uppeldis- og umsjónarstarfi og öðrum þeim störfum sem fram fara innan skólans. Megináhersla er lögð á velferð og vellíðan nemenda og ber að stuðla að því að umgengni um skólahúsnæðið verði ætíð sem best.

Starfsmaður annast gæslu nemenda innan skólans þann tíma sem þeir eru ekki í umsjá kennara sbr. frímínútnavakt og fylgist með þeim þegar þeir eru utan kennslustofu meðan á kennslu stendur.

Starfsmaður leitar aðstoðar viðkomandi umsjónarkennara eða skólastjórnenda við störf sín ef hann telur ástæðu til. Í þeim tilvikum ber hann ábyrgð á að umsjónarkennari eða ritari skrái atvikið.

Starfsmaður sér um ræstingu eftir nánara skipulagi og lætur starfsfólk vita ef umgengni er ábótavant.

 

Skólaliði

·      Mætir klukkan 7:50 og sinnir gangavörslu fram að kennslu, fer inn í stofur og spjallar við nemendur.

·      Annast gæslu nemenda í frímínútum, á göngum og biðtímum.

·      Aðstoðar nemendur eftir því sem þörf krefur og leiðbeinir þeim í samskiptum þeirra við aðra nemendur og starfsfólk skólans.

·      Annast almenna gangavörslu og eftirlit með umgengni nemenda um skólann og meðferð þeirra á munum og búnaði í eigu hans.

·      Annast eftirlit með að nemendur gangi frá útiskóm í skóhillur og aðstoðar eftir þörfum.

·      Reynir eftir því sem unnt er að koma í veg fyrir einelti í frímínútum og í biðtíma.

·      Sér um allan þvott sem tilheyrir skólanum, s.s. úr eldhúsi, stofum og ræstingu.

·      Veitir fyrstu hjálp ef slys eða óhapp ber að höndum.

·      Sinnir einnig þeim verkefnum sem stjórnendur skólans fela honum og geta fallið að ofangreindum atriðum.

 

Matráður

·         Mætir til vinnu kl. 10:00 og undirbýr matsal fyrir hádegismat.

·         Tekur á móti mat og skammtar hann ýmist á borð eða beint til nemenda í matarröð eftir aldri þeirra.

·         Vinnur að mestu samskonar vinnu og skólaliði varðandi þrif en á staðbundnara svæði sem er eldhúsið, matsalurinn, snyrtingar og anddyrið á því svæði. Matráður fer samt ekki út á gæslu.

·         Sér um að elda léttar máltíðir og hafa til kaffi og með því á dögum þar sem nemendur eru ekki í skólanum þegar skólastjórar fara fram á slíkt

·         Skal vinna í anda heilsueflandi grunnskóla og gæta ýtrasta hreinlætis við meðferð matvæla og mataraðstöðu.

 

Námsráðgjafi

Námsráðgjafi vinnur ásamt öðrum starfsmönnum skólans að ýmsum velferðarmálum er tengjast námi, líðan og framtíðaráformum nemenda. Námsráðgjafi vinnur bæði með einstaklinga og hópa.
Helstu viðfangsefni námsráðgjafa eru að:

·      Veita nemendum ráðgjöf um náms- og starfsval og veita þeim fræðslu um nám, störf og atvinnulíf. Námsráðgjafi sér m.a. um starfskynningar í 10. bekk.

·      Veita nemendum ráðgjöf í einkamálum þannig að þeir eigi auðveldara með að ná settum markmiðum í námi sínu.

·      Vinna náið með fulltrúum stoðþjónustu við úrlausn einstakra mála.

·      Leiðbeina nemendum um vinnubrögð í námi, t.d. með því að bjóða upp á námskeið í námstækni.

·      Aðstoða nemendur við að gera sér grein fyrir eigin áhugasviðum og meta hæfileika sína raunsætt miðað við nám og störf.

·      Taka á móti nýjum nemendum og veita þeim stuðning.

·      Undirbúa flutning milli skólastiga og fylgja nemendum eftir inn í framhaldsskóla.

·      Sinna fyrirbyggjandi starfi, t.d. vörnum gegn vímuefnum, einelti og ofbeldi í samstarfi við starfsmenn skólans og aðra svo sem starfsmenn æskulýðs- og íþróttamála og skólasálfræðing. 

Samvinna milli nemanda og námsráðgjafa er grundvöllur þess að ráðgjöfin nýtist nemandanum. Nemendur geta leitað beint til námsráðgjafa eða verið vísað til hans af kennurum, forráðamönnum eða skólastjórnendum. Forráðamenn geta leitað beint til námsráðgjafa. Námsráðgjafi er við í skólanum frá kl. 8:00–16:00. Upplýsingar um viðtalstíma námsráðgjafa eru á skrifstofu skólans og skulu vera nemendum og forráðamönnum ljósar. Hluti af því sem námsráðgjafi vinnur með er;

·           Framhaldsskólabæklingur

·           Minni og lestraraðferðir

·           Undirbúningur fyrir próf

·           Glósutækni og námstækni

·           Tímastjórnun og lífsstíll

·           Starfskynningar

·           Starfsnám

·           Einstaklingsmál

            Inntökuskilyrði framhaldsskóla

 


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica