Í gærkvöldi frumsýndi leikhópur Grunnskólans leikritið Viltu vera vinur minn á Facebook eftir Önnu Brynju Baldursdóttur í leikstjórn Kristínar Gestsdóttur. Leikritið er sýnt í Sindrabæ og er næsta sýning í kvöld þriðjudag kl. 20:00. Sýningin stendur í rúmar 30 mínútur og það kostar 500 kr inn á sýninguna.
Lesa meira
Þorrablót nemenda í 8. – 10. bekk var haldið í Sindrabæ fyrstu vikuna í febrúar. Það voru nemendur í 10. bekk sem sáu um skemmtiatriðin sem voru svo vægt sé til orða tekið „frábær“. Skemmtiatriðin fjölluðu að mestu um kennara og var greinilegt að hópurinn hafði lagt mikla vinnu í að gera þau sem best úr garði. Einnig var minni karla og kvenna flutt og var það gert með glæsibrag eins og allt annað hjá krökkunum þetta kvöld.
Lesa meira
Nú er komið að annarskilum. Vetrarönn að ljúka og vorönn tekur við. Föstudaginn 3. febrúar er viðtalsdagur þar sem nemendur ásamt foreldrum mæta í viðtal við umsjónarkennara.
Lesa meira
Valhópur í freestyle sýndi afrakstur vinnu sinnar í síðust viku. Það voru þær Yrsa Ír Scheving, Birta Karlsdóttir, Katrín María Sigurðardóttir, Bryndís Arna Halldórsdóttir og Íris Björk Rabanes sem sýndu samnemendum sínum flotta og vel útfærða dansa. Það var auðheyrt að bæði nemendur og starfsfólk höfðu gaman af, enda uppskar hópurinn mikið lófaklapp í lokinn.
Lesa meira
Á föstudaginn var buðu nemendur fjórða bekkjar foreldrum sínum og ömmum í heimsókn í skólann. Tilefnið var lok verkefnisins um Móse og ferð hans með þjóð sína yfir eyðimörkina til fyrirheitna landsins. Undanfarnar vikur hafa nemendur unnið að verkefninu með þeim hætti að fyrst voru sögurnar um Móse lesnar, næst drógu nemendur myndir úr Biblíum upp á glærur sem var síðan varpað upp á stóran pappír á veggnum.
Lesa meira
Í Grunnskóla Hornafjarðar hefur lengi verið við lýði sá siður að drengirnir hlaupa hringinn í kringum skólann með annan fótinn í buxnaskálminni. Þetta þykir afar spennandi, sérstaklega á yngra stiginu en þeir eldri eru einnig duglegir að taka þátt. Stelpurnar taka þátt með því að hvetja strákana óspart áfram.
Lesa meira
Á sama tíma og „strákarnir okkar“ keppa á EM halda nemendur í Heppuskóla handboltamót þar sem keppt er í tveim riðlum. Það er nemendafélagið sem stendur fyrir þessu móti sem haldið er í fyrstu frímínútum hvers dags.
Lesa meira
Föstudaginn 13. janúar er starfsdagur hjá starfsfólki skólans og því frí hjá nemendum.
Í dag voru stofujól í Grunnskóla Hornafjarðar og að þeim loknum hófst jólafrí. Grunnskóli Hornafjarðar vill senda nemendum, foreldrum og starfsfólki innilegar óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Við þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
Lesa meira
Í byrjun desember ákváðu börnin í 3. HS að fara í lestrarátak. Átakið stóð í 2 vikur og á þeim tíma lásu börnin 245 bækur!
Lesa meira
Eitt af því sem boðið hefur verið upp á í vali nemenda er skák. Sigurður Örn Hannesson hefur séð um að uppfræða krakkana um töfra skáklistarinnar og hver veit nema að skáksnillingar framtíðarinnar séu þarna á ferðinni. Tímabilinu lauk með skákmóti. Sigurvegari var Kristján Vilhelm Gunnarsson, í öðru sæti var Halldór Hrannar Brynjúlfsson og í því þriðja Hjörvar Ingi Hauksson.
Lesa meira
Í gær var sýning í Sindrabæ fyrir nemendur í 7. - 10. bekk. Það voru nokkrir samnemendur þeira sem sungu fyrir þá og sýndu leikrit.
Lesa meira
Það er gaman að segja frá því að Sveinbjörg Zophoníasdóttir og Alex Freyr Hilmarsson heimsóttu krakkana í 5. - 10. bekk fimmtudaginn 8. des.
Lesa meira
Undanfarið hefur verið hagstætt veður til að fara á skauta. Nemendur í grunnskólanum ásamt
kennurum sínum hafa verið dugleg við að sanna snilli sína á skautasvellinu og hafa margir bekkir lagt leið sína á svellið hjá „Hrossó“.
Lesa meira
Tíminn er svo fljótur að líða og nú erum við hálfnuð í myndmennta- og heimilisfræðismiðjunum og rúmlega það. Börnin hafa staðið sig afskaplega vel og eru dugleg að vinna, vandvirk og taka vel eftir.
Í myndmenntinni erum við búin að ræða um myndbyggingu og mála mynd í kjölfarið, mála blöð og nota í klippimyndir, þar sem við skoðuðum formfræði vel og töluðum um formin. Við höfum verið að vinna pöddumyndir, puttastimpla og byrja á límþrykki.
Lesa meira
Á dögunum færðu félagar
í Lionsklúbbi Hornafjarðar ásamt foreldrafélagi skólans, skólanum að gjöf forláta hljóðkerfi ásamt hljóðnemum. Hljóðkerfið er nett og þægilegt að koma því upp þegar á þarf að halda. Við afhendinguna fluttu nemendur skólans nokkur lög við góðar undirtektir.
Lesa meira
Þann 30.nóvember fóru 4 einstaklingar úr 10.bekk í til að taka þátt í Spurningarkeppni Grunnskólann en fjórðungskeppnin var haldin á Egilstöðum.
Lesa meira
Rithöfundarnir Bryndís Björgvinsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson og Arnþór Gunnarsson litu við í gær og heilsuðu upp á krakkana.
Lesa meira
Skrímsli hafa sést á ferðinni í myndmenntastofunni. Eitt skrímslið var klætt bláum kufli og var með rauð grimmdarleg augu.
Lesa meira
Nemendur í 10. bekk héldu kaffihúsakvöld þar sem þau sýndu foreldrum sínum afrakstur vinnu sinnar um Lónsöræfaferðina sem farin var í lok september.
Lesa meira
Í tilefni af vinavikunni hafa ákveðnir bekkir tengst sem vinabekkir. Í dag heimsóttu t.d. nemendur í 2. bekk vinabekk sinn sem er 7. bekkur. Krakkarnir föndruðu saman, þar sem þau eldri aðstoðuðu yngri krakkana, eða öfugt. Einnig var gripið í spil ásamt því að spjalla saman. Þessi heimsókn tókst í allastaði mjög vel og færði þessa tvo aldurshópa örugglega nær hvor öðrum.
Lesa meira
Þriðjudagurinn 22. nóvember hófst með óvenjulegu sniði í Grunnskóla Hornafjarðar því nýir bekkir (hópar) höfðu þá verið búnir til þvert á árganga. Unnu þessir hópar saman fram eftir morgni og var eitt af verkefnunum DRAUMASKÓLINN MINN. Verkefnið er hluti af vinnu í vinaviku í skólanum og er afraksturinn til sýnis á Menningarmiðstöðinni.
Lesa meira
Í morgun hófst vinavika í skólanum með því að nokkrir nemendur úr 10. bekk og nemendaráði settu hurðaspjöld á útidyr bæjarbúa með vinakveðjum frá nemendum skólans. .
Lesa meira
Í dag sá 6. RE um vikuhátíð, það var að vonum mikið fjör. Kynnar hátíðarinnar voru Ýrena og Leli. Inga Sóley og Ylfa sungu lag og Hekla, Guðrún Ása og Tinna dönsuð slæðudans með. Bjarmi flutti brandara og Óliver og Aðalsteinn léku auglýsingabrandara. Elva, Dagbjört og Ýrena sögðu líka brandara. Tískusýningin var auðvita á sínum stað. Ýrena, Tinna, Díana og Dagbjört sungu eitt lag og svo stóðu Bjarmi og Aðalsteinn fyrir æsispennandi spurningakeppni.
Lesa meira
Í dag var haldið upp á dag íslenskrar tungu í Grunnskólanum. Einn liður í því er smásagna og ljóða samkeppni sem Grunnskólinn og Menningarmiðstöðin standa að. Nemendur í 4. – 10. bekk semja ljóð eða sögu og dómnefnd velur úr nokkur verk sem nemendur síðan flytja í Nýheimum. .
Lesa meira
Þeir Esjar og Sigbjörn sem eru í áhöfn Ásgríms Halldórssonar komu í heimsókn í Hafnar-og Heppuskóla með uglu sem þeir sýndu nemendum. Uglan vakt að vonum mikla athygli enda sjaldséðir slíkir gestir.
Lesa meira
Á föstudaginn var sá 3. bekkur um að halda vikuhátíð skólans. Hátíðin var að vanda haldin í Sindrabæ. Krakkarnir buðu upp á fjöruga og fjölbreytta dagskrá með dansi, söng, bröndurum að ógleymdri tískusýningu. Olivia og Kjartan sáu um að kynna dagskrána og gerðu það af stakri prýði. Við upphaf og lok hátíðarinnar fengu krakkarnir salinn með sér í fjöldasöng og er óhætt að segja að allir hafi tekið vel undir.
Lesa meira
Í þessari viku hófst byrjaði beygjuboltamót (dodgeballmót) á milli bekkja í Heppuskóla. Keppnin fer fram í frímínútum og keppa tveir bekkir á dag þessa vikuna. Undanúrslit og úrslit verða síðan í næstu viku. Það er nemendafélag skólans sem stendur fyrir þessari keppni. Góð stemning var á fyrsta leik í morgun og greinilegt að bæði keppendur sem og áhorfendur skemmtu sér vel.
Lesa meira
Að hafa kjark til að þora að vera jákvæður
-
8.11.2011
Fréttir Grunnskóli
Dagurinn 8. nóvember er tileinkaður baráttu gegn einelti og afleiðingum þess. Einelti er dauðans alvara og til að koma í veg fyrir það þarf umræðan að vera opin og jákvæð.
Í liðinni viku hélt 6.RV vikuhátíð fyrir nemendur og starfsfólk í Hafnarskóla. Hátíðin var að venju haldin í Sindrabæ. Krakkarnir héldu úti afar skemmtilegri og fjölbreyttri dagskrá og má með sanni segja að þau hafi vakið stormandi lukku. Arndís og Svandís sáu um að kynna atriðin og fyrstar á svið voru Sigurborg og Guðný sem spiluðu tvö lög á klarinet fyrir áhorfendur.
Lesa meira
Legóhópur Grunnskóla Hornafjarðar, Hornsílin æfa sig af kappi þessa dagana fyrir hina árlegu legókeppni. Keppni fer fram í Reykjavík 12. nóvember og er spenningurinn að stig magnast í hópnum.
Lesa meira
Í dag 2. nóvember opnar fyrir netkosningu í myndbandakeppni 66°N en nemendur úr Grunnskóla Hornafjarðar eiga eitt myndband í þeirri keppni.
Lesa meira
Í löngufrímínútunum undanfarna daga hefur farið fram spurningakeppni á milli bekkja í Heppuskóla. Keppnin hefur verið hin besta skemmtun og eru nemendur jafnt sem starfsfólk ánægt með framtakið og á nemendafélag skólans hrós skilið. Í næstu viku verður síðan úrslitakeppnin og eigast þá við nemendur úr 7.E., 8.I., 9.K. og 10. bekk.
Lesa meira
Leiðsagnarmat, viðtalsdagur og vetrafrí
-
28.10.2011
Fréttir Grunnskóli
Nú er búið að opna fyrir leiðsagnarmatið inni á mentor.is þannig að nemendur geta byrjað að fylla það út með foreldrum sínum. Fimmtudaginn 3. nóv. er viðtalsdagur en öll viðtöl fara fram í Hafnarskóla. Föstudaginn 4.nóv. er starfsdagur kennara og þá er frí hjá nemendum og mánudaginn 7. nóv. er vetrafrí. Skólinn hefst þriðjudaginn 8. nóv. samkvæmt stundaskrá.
Í dag sýndi Möguleikhúsið Völuspá í Íþróttahúsinu fyrir nemendur í 9. og 10. bekk og nemendur FAS. Leikritið Völuspá byggir á hinni fornu Völuspá og veitir áhorfendum sýn inn í hugmyndaheim heiðinnar goðafræði. Þar segir m.a. frá fróðleiksfýsn Óðins, græðgi í skáldamjöðinn, forvitni hans um nútíð og framtíð, Fenrisúlfi, Baldri, Loka, Hugin og Munin og ótal fleiri persónum.
Lesa meira
Árleg dansvika í Grunnskóla Hornafjarðar er nú að baki, en henni lauk með frábærri danssýningu s.l. föstudag. Jón Pétur sem hefur komið hingað og kennt dans undanfarin ár var hæst ánægður með unga fólkið okkar, enda stóðu krakkarnir sig einstaklega vel.
Lesa meira
Á morgun, föstudaginn 21. október er danssýning fyrir foreldra og forráðamenn í íþróttahúsinu. Sýningin hefst kl 12.30 og nemendur fara heim að lokinni sýningu.
Núna stendur yfir hin árlega dansvika í Grunnskóla Hornafjarðar. Það er Jón Pétur frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru sem sér um kennsluna eins og undanfarin ár. Almenn ánægja er hjá krökkunum og gaman að sjá hvernig þau leggja sig fram við að læra sporin. Skyldumæting er hjá 1. – 7. bekk en 8. – 10. bekkur hefur val um hefðbundna kennslu eða dans.
Lesa meira
Í liðinni viku var haldin fyrsta vetrahátíð vetrarins en það var 4.bekkur E sem reið á vaðið að þessu sinni. Boðið var upp á fjölbreytta skemmtun þar sem allir sem tóku þátt skemmtu sér konunglega og á það við bæði um áhorfendur sem og listamennina sjálfa.
Lesa meira
Aðalfundur foreldrafélags Grunnskóla Hornafjarðar var haldinn í matsal skólans þriðjudaginn 4. október síðastliðinn. Ágætis mæting var á fundinn þar sem farið var yfir starf síðasta árs með töluverðri áherslu á fræðslufund Guðrúnar Jónsdóttur frá Heimili og skóla sem haldinn var 22. september á vegum foreldrafélagsins.
Lesa meira
Á föstudaginn var rautt þema í 7. – 10. bekk og mættu bæði nemendur og kennarar í viðeigandi lit. Það er nemendafélag skólans sem stendur fyrir þessari uppákomu og var virkilega gaman að sjá hversu margir tóku þátt. Í löngufrímínútunum var síðan boðið upp á lifandi tónlist þar sem bæði nemendur og kennarar létu ljós sitt skína.
Lesa meira
Undanfarnar vikur hafa nemendur í 3. HS verið að lesa um ættfeður Ísraelsmanna. Eftir að hafa lesið um Abraham og Söru og ferðalag þeirra með ættingja sína og allar sínar eigur, var ráðist í að búa til stóra veggmynd af þessu ferðalagi.
Lesa meira
Eftir samræmduprófin, miðvikudaginn 21.september fór 10.bekkur í Grunnskóla Hornafjarðar í þriggja daga ferð í Lónsöræfin. 19 nemendur voru í þessari ferð og voru Berglind Steinþórsdóttir, Jón Bragason og Kristján Örn Ebenezarson leiðsögumenn í þessari ferð. Ferðin byrjaði á því að ganga niður Illakamb til að komast í skálann sem við gerðum að okkar heimahúsi í heilar 2 nætur. Þegar við höfðum komið okkur fyrir í skálanum og fengið okkur næringu fórum við í göngu upp með Þilgili.
Lesa meira
Fimmtudaginn 6. október verður haldinn fyrsti hluti skólafærninámskeiðs fyrir foreldra 1. bekkinga Grunnskóla Hornafjarðar. Námskeiðið verður í matsal skólans og stendur frá kl. 20:00 – 22:00. Vonast er eftir því að allir foreldrar mæti á námskeiðin og fræðist um námið og vinnustað barna sinna. Dagskrá námskeiðsins er eftirfarandi:
Lesa meira
Í kvöld verður haldið skólafærninámskeið fyrir foreldra 7. bekkinga í Grunnskóla Hornafjarðar. Námskeiðið er haldið í Heppuskóla og hefst kl. 19:30 og því líkur kl. 21:30. Það er von okkar að allir foreldrar 7. bekkinga mæti og eigi með okkur ánægjulega og fræðandi kvöldstund.
Dagskrá skólafærninámskeiðsins er eftirfarandi:
Lesa meira
Í síðustu viku fór 8. bekkur í skólaferðalag til Vestmannaeyja. Ferðin tókst í allastaði vel og lék veðrið við ferðalangana sem fengu að upplifa eyjarnar í sól og blíðu.
Lesa meira
Nú er lokið hinni vikulöngu bekkjarkeppni skólans í Göngum í skólann verkefninu og því minnum við á að nú þarf að skila hreyfidagbókinni til umsjónarkennara.
Lesa meira
Fræðslufundur Heimilis og skóla
-
22.9.2011
Fréttir Grunnskóli
Foreldrafélag Grunnskóla Hornafjarðar stendur fyrir fræðslufundi Heimilis og skóla í Nýheimum í kvöld kl. 20:00 Vinnum saman að velferð barnanna okkar og fjölmennum á fundinn.
Nemendur í 8. bekk eru núna í skólaferðalagi í Vestmannaeyjum. Þau héldu af stað í gær ásamt þremur starfsmönnum frá skólanum. .
Lesa meira
Þann 11. september fór fram verðlaunaafhending Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda en hún var haldin í 20. sinn.
Lesa meira
Í síðustu viku fóru 4. og 5. bekkur í námsferð í Suðursveit. Ferð þessi er farin annað hvert ár og er með þeim hætti að annan daginn er farið á Hala en hinn daginn er gengið inn í Þröng en þá er gengið inn að Breiðamerkurjökli meðfram Fellsfjalli og gist er í Hrollaugsstöðum. Í þetta sinn byrjuðum við á Hala þar sem Þórbergssafnið var skoðað undir leiðsögn Þorbjargar Arnórsdóttur , fiskeldið skoðað hjá Fjölni Torfasyni og farið í ratleik sem settur hefur verið upp bæði með sögulegum fróðleik og fróðleik um örnefni.
Lesa meira
Síðustu daga hefur staðið yfir kosning í nemendaráð
Heppuskóla og á hver árgangur tvo fulltrúa í ráðinu. Þau sem voru kosin eru: Jóel Ingason og Brandur Ingi Stefánsson úr 7. bekk, Sigrún Salka Hermannsdóttir og Sigríður Gísladóttir úr 8. bekk, Anna Birna Elvarsdóttir og Hafþór Snorrason úr 9. bekk og Arnar Freyr Valgeirsson og Ragnar Magnús Þorsteinsson úr 10.bekk. Þetta er glæsilegur hópur og óskum við þeim velfarnaðar í þeim verkefnum sem framundan eru.
Lesa meira
Nemendur í 6. og 7. bekk fóru í námsferð í Öræfin í vikunni sem er að líða. Lagt var af stað frá Hafnarskóla á þriðjudagsmorguninn og var það hress og kátur hópur nemenda sem og starfsmanna sem steig um borð í rúturnar. Fyrsta stopp var við Jökulsárlón þar sem kíkt var í nestispokana og hópurinn viðraður. Næsti áfangastaður var Hofgarður þar sem vistir voru bornar í hús og að því loknu var stefnan tekin á Skaftafell
Lesa meira
Nemendur í 8. – 10. bekk héldu árlegan haustfagnað sinn í Sindrabæ í gærkvöldi.
Skemmtunina hófst með kjúklingahlaðborði og endaði á rífandi góðu diskóteki en í millitíðinni voru skemmtiatriði í boði 9. bekkinga sem báru veg og vanda af kvöldinu.
Í tilefni dagsins var einn tími á skóladeginum í gær tekinn í leiki og spil þar sem allir í 7. – 10. bekk gátu valið sér viðfangsefni.
Lesa meira
Í dag, fimmtudag fóru nemendur í 1. – 4. bekk í berjamó og eins og svo oft áður var stefnan tekin í Haukafell. Veður var ágætt, örlítið svalt en í Haukafelli er alltaf hægt að finna sér skjól.
Lesa meira
Miðvikudaginn 7. september kl. 10.00 verður Göngum í skólann verkefnið formlega sett af stað í Síðuskóla á Akureyri.
Lesa meira
Í vikunni fóru 5. – 10. bekkur í hina árlegu gönguferð skólans að þessu sinni var ákveðið að ganga fyrir Horn. Ferðin hófst á rútuferð út að Firði og þaðan var gengið yfir að Horni.
Lesa meira
Skólasetning í Grunnskóla Hornafjarðar verður 24. og 25. ágúst. Skólasetning fer fram með þeim hætti að umsjónarkennarar boða nemendur og foreldra í viðtal þar sem markmið vetrarins verða rædd.
Lesa meira
Lególið Grunnskóla Hornafjarðar, sem tók þátt í opnu Evrópumóti FLL (First Lego league) er komið heim. Keppnin fór fram í Delft í Hollandi og var hin skemmtilegasta.
Lesa meira
Konur úr Grunnskóla Hornafjarðar hlupu kvennahlaupið í eldsnemma í morgun á Spáni en hópur af starfsfólki skólans er statt þar þessa dagana á námskeiði og í skólaheimsóknum.
Lesa meira
Grunnskóli Hornafjarðar tók þátt í Unicef-hreyfingunni eins og undanfarin ár. Í ár voru það krakkarnir í 1. – 9. bekk sem tóku þátt, því 10. bekkur var í skólaferðalagi.
Lesa meira
Frumurnar hefja keppni í Delft í Hollandi á morgun. Frumurnar eru legóhópur Grunnskólans, skipaður 10 nemendum úr 7. bekk, sem vann legókeppnina á Íslandi í nóvember. Nú fara Frumurnar sem fulltrúar Íslands til Hollands þar sem þær taka þátt í Evrópukeppninni.
Lesa meira
Grunnskóla Hornafjarðar var slitið í fjórða sinn 30. maí í íþróttahúsi Hafnar. Dagskrá skólaslitanna hófst á götuleikhúsi fyrir utan íþróttahúsið og eldgosasýningu en að henni lokinni færði fólk sig inn í íþróttahúsið, í hlýjuna því heldur napurt var þennan dag.
Lesa meira
2. bekkur SÞ hefur lagt land undir fót undanfarna daga og skoðað söfnin í bænum. Við byrjuðum á að skoða verbúðina í Miklagarði í tengslum við þemaverkefni um hafið sem bekkurinn var að vinna að.
Lesa meira
Grunnskóla Hornafjarðar verður slitið við hátíðlega athöfn í Íþróttahúsinu á Höfn kl. 17:00 mánudaginn 30. maí.
Lesa meira
Dagskrá síðustu daga skólans fór heldur betur úr skorðum á unglingastiginu þegar gos hófst í Grímsvötnum.
Lesa meira
Nú er heldur betur farið að styttast í að legóhópurinn Frumurnar fari á Evrópumótið í legó en mótið fer fram í Delft í Hollandi 2. – 4. júní.
Lesa meira
Mánudaginn 16. maí fór 3. bekkur í vorferð í Öræfin, þegar við vorum búin að ná í matinn á Víkina og súkkulaðikökuna í bakaríið þá lögðum við af stað í ferðalagið okkar.
Lesa meira
Í dag voru allir nemendur í 7. - 10. bekk skólans, ásamt nemendum frá Djúpavogi og Hofgarði í Háskóla unga fólksins sem ferðast um landið með Háskólalestinni í tilefni 100 ára afmælis Háskóla Íslands. Þetta var einstaklega skemmtilega heimsókn og nutu nemendur þess að læra japönsku, táknmál, latínu, sjúkraþjálfun, stjörnufræði, kynjafræði eða nýsköpun. Á morgun veður Háskólalestin síðan með dagskrá fyrir almenning í Nýheimum.
Lesa meira
Í gær hélt eldar stigið vorhátíð sína með pompi og prakt. Samkvæmt venju var kvöldið tileinkað 10. bekk og sá 9. bekkur um allan undirbúning og utanumhald. Foreldrar 9. bekkinga grilluðu hamborgar fyrir allan hópinn og DJ Óli Geir sá um að halda uppi stuðinu á ballinu. En myndir segja meira en mörg orð.
Lesa meira
Nemendur skólans hafa verið duglegir við að sinna sviðslistum í vetur. Með reglulegu millibili hafa verið haldnar svokallaðar vikuhátíðir á yngra stig þar sem hver árgangur eða einstakir bekkir hafa stigið á svið og skemmt sjálfum sér og skólafélögum sínum með margvíslegum hætti. Vikuhátíðin hefur oftast verið haldin í Sindrabæ en einnig í skólastofum og nú í vikunni nýtti 4.M sér vorblíðuna og bauð til útileikhúss þar sem hin ýmsu sirkusatriði voru á dagskrá. Bæði flytjendur og áhorfendur nutu sýningarinnar og veðurblíðunnar og hlakka til næstu vikuhátíðar.
Lesa meira
Við erum ekki búin að vera heppin með veður síðustu fimmtudaga og verið frekar erfitt að finna skjól enn síðasta fimmtudag var ákveðið að nota rústirnar fyrir ofan Miklagarð til að glóðarsteikja pítsulengjur. Það eru allir mjög áhugasamir og duglegir í þessum hópi og bíða spenntir eftir því að komast á sjóstangarveiði.
Kveðja frá útieldhúsi
Lesa meira
Fimmtudaginn 14. apríl og föstudaginn 15. apríl buðu nemendur í 2. SÞ
foreldrum sínum í heimsókn. Börnin gátu valið um þrjú
mismunandi verkefni til að vinna að með foreldrum sínum meðan á heimsókninni
stóð og að sjálfsögðu var heitt á könnunni fyrir kaffiþyrsta foreldra
Lesa meira
Nú er allt á öðrum endanum í skólanum því nemendur og starfsmenn eru á fullu við að leggja lokahönd á undirbúnig fyrir árshátíð skólans sem hefst kl. 17:30 í Íþróttahúsinu í dag.
Lesa meira
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á Suð-Austurlandi fór fram í Hafnarkirkju í dag. Þar lásu 11 nemendur úr 7. bekk þriggja grunnskóla á svæðinu; Grunnskóla Djúpavogs, Grunnskóla Hornafjarðar og Grunnskólanum í Hofgarði. Lokahátíðir eru haldnar í hverjum landshluta fyrir sig og veita Sparisjóðirnir verðlaun þremur efstu keppendunum.
Lesa meira
Nemendur 6. bekkjar eru búnir að eiga góðar stundir í Oddsskarði á skíðum. Þau voru mætt í fjallið um hádegi í gær og skíðuðu fram undir kvöld. Þá tók við hin sívinsæla skíðaskála dvöl sem klikkaði ekki frekar en venjulega. Krakkarnir hafa verið ágætlega heppin með veður en svolítill vindur er búinn að vera hjá þeim. Skíðað verður til hádegis í dag og er áætluð heimkoma þeirra á milli 16:00 og 17:00.
Lesa meira
Háskóli unga fólksins, HUF, hefur verið starfræktur á vegum Háskóla Íslands frá árinu 2004 og notið mikilla vinsælda.. Í tilefni aldarafmælis HÍ 2011 verður starfsemi HUF með hátíðarsniði og skólinn á faraldsfæti. Þar ber hæst ferð Háskóla unga fólksins með svokallaðri Háskólalest sem heimsækir níu áfangastaði á landinu í samstarfi við Rannsóknarsetur HÍ á landsbyggðinni, grunnskóla, sveitarfélög o.fl.
Lesa meira
Í marsmánuði ár hvert lýkur Stóru upplestrarkeppninni í 7. bekk en hún hefst formlega á degi íslenskrar tungu 16. nóvember. Markmiðið með keppninni er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði og víst er að margir afburðalesarar hafa komið fram á sjónarsviðið í keppninni.
Lesa meira
Yngri börnin í skólanum bíða öskudags með óþreyju og finnst gaman að hittst í skólanum og skoða búningana hvert hjá öðru og gera skemmtilega hluti saman.
Lesa meira
Á öskudag var breytt út af hefðbundnu skólastarfi eins og vera ber. Á unglingastiginu voru nemendur úr leiklistarsmiðju, söngvavali og freestyle með stórglæsilega sýningu í Sindrabæ. Einnig var keppt í fáránleikum en þeir snúast um að keppa í óhefðbundnum íþróttagreinum og að lokum buðu stúlkur úr 9. bekk upp á pönnurkökur í lok dagsins. Skemmtilegur dagur þar sem flestir náðu að rifja upp barnið í sér jafnt nemendur sem starfsmenn.
Lesa meira
Í morgun var nemendum skólans boðið á blús í Sindrabæ þar sem Bigband Tónskólans steig á stokk í tilefni þess að um helgina verður Norðurljósablús á Hornafirði. Í Víkingsveitinni eru nokkrir nemendur úr skólanum og svo fengu aðrir að spreyta sig í nokkrum lögum. Allir skemmtu sér konunglega á blúsnum og þakkar skólinn aðstandendum Norðurljósablús kærlega fyrir blúsinn.
Lesa meira
Sett hefur verið upp ný heimasíða í Upplýsinga- og tæknimennt fyrir eldra stigið eða nemendur Heppuskóla. Farið er inn á þessa heimasíðu hér eða á tenglinum efst til hægri hér til hliðar sem heitir Upplýsinga og tæknimennt. Megin tilgangur síðunnar er að veita upplýsingar um tölvukennsluna í 7. - 10. bekk og hvernig smiðjurnar eru uppsettar.
Lesa meira
Undankeppni fyrir Skólahreysti var haldin síðastliðinn fimmtudag og fengu allir nemendur að prófa þrautirnar. Um morguninn fengu yngri bekkirnir að fara í gegnum hraðabraut, strákarnir fengu svo að fara í upphífingar og dýfur en stelpurnar spreyttu sig í armbeygjum og í að hanga. Eftir hádegi var svo komið að keppninni sjálfri. Fjölmargir keppendur mættu til leiks úr 7.-10. bekk.
Lesa meira
Þá er þorrinn að renna sitt skeið, sól tekin að hækka á lofti og konudagur á sunnudag.160;
Lesa meira
Mikið fjör hefur verið í frímínútunum í dag, krakkarnir nýttu sér snjóinn og mættu margir með snjóþotur og sleða til að renna sér á.
Lesa meira
Nú hafa starfsmenn matsfyrirtækisins Hitt og þetta skilað inn skýrslu sem unnin var vegna úttektar á skólanum. Skýrslan er aðgengileg hér og hvetjum við þá sem eru áhugasamir um skólastarf á Hornafirði að kynna sér hana. Í skólanum verður skýrslan notuð til að styrkja innviði skólans og er ýmsar gagnlegar ábendingar að finna í henni.
Lesa meira
Nú er að fara af stað foreldranámskeið um hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar. Námskeiðið er nú haldið í annað sinn og er opið öllum foreldrum . Námskeiðið er 5 skipti, einn og hálfur tími í senn í matsal Grunnskólans og verður á þriðjudagskvöldum klukkan 20:00 eftirfarandi daga;
Lesa meira
Starfsfólk Grunnskóla Hornafjarðar óskar nemendum, foreldrum og Skaftfellingum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakkar samstarfið á árinu sem er að líða.
Lesa meira
Um áramót lætur Droplaug Jónsdóttir af störfum hjá skólanum eftir rúmlega 24 ára farsælt starf og sest í helgan stein.
Lesa meira
Jólaundirbúningurinn stendur nú sem hæst í grunnskólanum. Litlu jólin og pakkaballið verða fimmtudaginn 16. desember, jólabíó verður í Heppuskóla og vikuhátíð í Hafnarskóla þann 17. og mánudaginn 20. desember endum við skólaárið með því að eiga ljúfa stund saman á stofujólum.
Lesa meira
Frumurnar, lið Grunnskóla Hornafjarðar sigraði hina árlegu First Lego League keppni sem haldin var í Keili í Keflavík, laugardaginn 13. nóvember.
Lesa meira
Í tilefni af Norræna loftslagsdeginum 11. nóvember söfnuðust nemendur og starfsfólk skólans saman á sparkvellinum undir íþróttahúsinu og önduðu að sér ferska loftinu.
Lesa meira
Það var mikið um að vera hjá 4. bekk M í gær. Krakkarnir hafa verið að læra um íslenska þjóðhætti og af því tilefni voru þau með sýningu fyrir vini og vandamenn á verkefnum sínum.
Lesa meira
Í dag var Forvarnardagurinn haldinn á landsvísu og fengu nemendur 9.bekkjar boð um að taka þátt. Að sjálfsögðu tók okkar grunnskóli boðinu og í tilefninu af því fóru fyrstu tveir tímarnir í að vinna ákveðna hópavinnu.
Lesa meira
Nú er ný lokið átakinu Göngum í skólann. Nemendur og starfsfólk í Grunnskóla Hornafjarðar tóku þátt í átakinu og eitt af því sem var gert hér var að senda hreyfidagbók heim með hverjum nemanda. Tæplega 60% nemenda skilaði hreyfibókinni aftur í skólann.
Lesa meira
ÞÉR ER BOÐIÐ AÐ SÆKJA BORGARAFUND
Í EINELTISÁTAKINU STÖÐVUM EINELTI!
Fundurinn verður haldinn 28. október kl. 20:00
í Nýheimum á Höfn í Hornaf irði. Jafningjafræðslufundur
verður haldinn þar á undan kl. 18:00 fyrir
efstu bekki grunnskólans.
Lesa meira
Á föstudaginn var glæsileg danssýning í íþróttahúsinu í lok dansvikunnar. Þá sýndu um 240 nemendur dansa sem þeir höfðu æft í vikunni og það var ekki laust við að áhorfendur sem voru gríðarmargir fengju gæsahúð þegar allur hópurinn dansaði tvo dansa saman í lokin. Svo frábært var það.
Lesa meira
Danssýning hjá nemendum skólans verður í íþróttahúsinu á Höfn föstudaginn 22. október kl. 13:00. Í vikunni hafa allir nemendur í 1. - 7. bekk æft dans og langflestir nemendur 8.-10. bekkjar þar sem dansinn er val. Foreldrar og aðrir áhugasamir dansunnendur velkomnir.
Lesa meira
Aðalfundur foreldrafélagsins var haldinn í matsal Grunnskólans þriðjudaginn 5. október. Formaður, Kolbrún Þ.Björnsdóttir, bauð fundargesti velkomna og Barnakór Hornafjarðar tók svo við og söng nokkur lög fyrir fundargesti undir styrkri stjórn Kristínar Jóhannesdóttur tónmenntakennara.
Lesa meira
Það var handagangur í öskjunni á mánudaginn 27. september og í dag þegar nemendur úr 4. bekk Grunnskóla Hornafjarðar heimsótti dagvist aldraðra.
Lesa meira
Það voru þrjátíu og fimm nemendur úr 10. bekk Grunnskóla Hornafjarðar ásamt fjórum kennurum og Jóni Bragasyni sem fóru í þriggja daga ferð í Lónsöræfi þann 22.-24. september.
Lesa meira
Okkar fólki gekk aldeilis vel í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda. Arndís Ósk Magnúsdóttir sigraði í hönnunarflokknum en hún hannaði nýja gerð af stiga til að fara yfir girðingu. Jóel Ingason lenti í þriðja sæti í flokknum orka og umhverfi auk þess sem hann fékk að opna sýningu inn á afrakstur vinnusmiðjunnar með forseta Íslands.
Lesa meira
Miðvikudaginn 15. september kom Ólafur Oddur Sigurðsson margfaldur íslandsmeistari í glímu í heimsókn til okkar. Hann kom á vegum Glímusambands íslands í þeim tilgangi að kynna íslenska glímu en Ólafur hefur farið vítt og breitt um landið að kynna glímuna.
Lesa meira
Dagana 16. - 19. september fara fram úrslit í Nýsköpunarkeppni grunnskóla. Fjörutíu og fjórir krakkar komust í úrslit, þar af fjórir úr Grunnskóla Hornafjarðar. Að þessu sinni bárust 1600 hugmyndir allstaðar af landinu svo að Hornfirðingar mega vera sáttir við sinn hlut.
Lesa meira
Rúmlega fjörutíu manns gengu Endalausadalinn sem liggur á milli Laxárdals í Nesjum og Lóns. Farið var á þremur litlum rútum inn á Laxárdal, þar safnaðist hópurinn saman og farið var yfir það helsta sem hafa ber í huga í fjallgöngu.
Lesa meira
Farið var í mjög skemmtilega berjaferð í Haukafell miðvikudaginn 1. september. Farið var á rútum með alla úr 1. – 4. bekk. Við byrjuðum á að fá okkur epli þegar við komum á staðinn og á eftir fengum við heitt kakó. Allir nutu þess að borða úti í náttúrunni enda var veðrið mjög gott. Sólin skein og við fengum 15° hita.
Lesa meira
Í tengslum við haustfagnað nemenda á unglingastigi var kosið í nemendaráð skólans og Miðgarðsráð. Auk þess sem bekkjarkvöld var hjá 7. bekk og haustfagnaður hjá 8. - 10. bekk þá tóku unglingarnir forskot á sæluna og fóru í spil og leiki í síðast tíma dagsins.
Lesa meira
Miðvikudaginn 1. september var göngu- og berjadagur í skólanum. Yngstu fjórir árgangarnir fóru í berjamó í Haukafell en hinir fóru í gönguferð og voru þrjár leiðir í boði. Það var Bergárdalurinn, Endalausidalurinn og Skálatindarnir.
Lesa meira
Nú er skólastarf komið í fullan gang og fyrsta vikan um garð gengin. Nemendur og starfsmenn komu hressir og endurnærðir eftir sumarfríið, fullir starfsorku. Um miðjan ágúst sátu starfsmenn skólans tvö námskeið saman, annað um uppeldi til ábyrgðar og hitt um samskipti á vinnustað og mótun góðs starfsumhverfis.
Lesa meira
Skólasetning Grunnskóla Hornafjarðar fer fram 26. og 27. ágúst næstkomandi. Þá verða nemendur og foreldrar boðaðir í viðtal til umsjónarkennara þar sem málefni vetrarins verða rædd.
Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu mánudaginn 30. ágúst
Lesa meira
Grunnskóla Hornafjarðar var slitið 31. maí síðastliðinn. Þá var þriðja starfsári skólans að ljúka en hann var stofnaður við sameiningu Nesja-, Hafnar og Heppuskóla sumarið 2007. 28 nemendur útskrifuðust úr 10. bekk að þessu sinni en nemendur við skólann voru rúmlega 300 í vetur og starfsmenn um 55.
Lesa meira
Dagurinn var hreint frábær..... hér er búið að ganga um eyjuna hitta innfædda, fara á safn, sigla kringum eyjuna, og spranga.... já og ekki má gleyma brjáluðu trambolín rennibrautinni....
Lesa meira
Nemendur í 7. bekk er nú í skólaferðalagi í Vestmannaeyjum. Stuttu eftir að þau komu þangað í gær fór að vinda og brast þá á öskufjúk. .
Lesa meira
Þann 17. maí fór 3. bekkur í skólaferðalag í Öræfin. Ferðin hófst þó á Jöklasafninu þar sem Guðný Svavarsdóttir tók á móti hópnum. Safnið var skoðað gaumgæfilega en að því loknu var lagt í hann í frekar mikilli rigningu. Nesti var borðað að Hrollaugsstöðum og var þá regnið það mikið að nokkrir fundu sér skjól undir aftanívagni rútunnar.
Lesa meira
Mikið hefur verið um að vera í skólanum á íþróttadegi. Öllum bekkjum var blandað saman og búnir til nýir hópar þvert á bekki. Í hópunum leystu nemendur hinar ýmsu þrautir allt frá suduku upp í að klifra upp kaðlana í íþróttahúsinu.
Lesa meira
Í gær fór fram matreiðslukeppni 9. og 10. bekkinga í skólanum. Fimm lið mættu til keppni og var hörð barátta um hvert stig. Keppendur áttu að elda forrétt þar sem uppistaðan var humar, aðalrétt þar sem uppistaðan var bleikja og eftirrétt að eigin vali. Það voru svo sannarlega girnilegir réttir sem voru bornir á borð og erfitt fyrir dómarana að gera upp á milli liðanna.
Lesa meira
Á dögunum fóru nemendur í 6. og 7. bekk í námsferði í Öræfin þar sem áhersla var lögð á að nemendur fræddust um umhverfið og lærðu að gera ýmiskonar mælingar og tilraunir. Hér á eftir fer frásögn þriggja nemenda úr ferðinni.
Lesa meira
Hulda Laxdal hefur verið ráðinn skólastjóri við grunnskóla Hornafjarðar í stað Þorvaldar Viktorssonar sem látið hefur af störfum sökum veikinda. Hulda lauk íþróttakennaraprófi frá Íþróttakennaraskóla Íslands árið 1980 og hefur starfað nánast óslitið við kennslu síðan auk þess að bæta við sig ýmiskonar menntun. 2003 lauk hún BS prófi í íþróttafræði og heilsuþjálfun, 2006 lauk hún Dipl.Ed prófi í menntunar og uppeldisfræðum með áherslu á stjórnun menntastofnana og núna vinnur hún að meistaraprófsritgerð um sömu mál.
Lesa meira
Á föstudaginn var haldið hið árlega Unicef-hlaup sem Grunnskóli Hornafjarðar hefur tekið þátt í undanfarin ár. Nemendur safna áheitum og fá gjarnan greitt fyrir hvern hring sem þeir hlaupa á hlaupabrautinni.
Lesa meira
Í vikunni fóru 4. og 5. bekkur Grunnskóla Hornafjarðar og Grunnskólans í Hofgarði í námsferð í Suðursveit. Gist var á Hrolllaugsstöðum, gengið inn í Þröng og þar komist í snertingu við Breiðamerkurjökul.
Lesa meira
Þá er frábærri dansviku lokið í skólanum og lauk henni með danssýningu þar sem fjöldinn allur af foreldrum og öðrum aðstandendum mætti og fylgdist með nemendum dansa.
Lesa meira
Kvenfélagið Vaka í Nesjum hefur gefið skólanum útileikföng fyrir allt að 100.000 kr. Á hreinsunardeginum í dag vígðum við dótið en það samanstendur af allskyns útileikföngum sem öll eiga það þó sameiginlegt að stuðla að aukinni hreyfingu barna.
Lesa meira
Í morgun (föstudag) fóru nemendur og starfsmenn skólans út af örkinni og hreinsuðu bæinn þ.e. fyrir utan þann hluta sem útskriftarhóp FAS hafði verið úthlutað.
Lesa meira
7.bekkur K er að taka þátt í keppni sem kallast Reyklaus bekkur 2010. Keppnin felst á því að bekkurinn verður að vera reyklaus (að enginn reykir). Svo fylgist kennarinn með og sendir staðfestingu að allir séu reyklausir í bekknum.
Lesa meira
Við lögðum af stað á sunnudagsmorgni 11. apríl kl 11:00, ferðinni var haldið á Laugar í Sælingsdal þar sem til stóð að dvelja í skólabúðum í eina viku.
Lesa meira
Götuleikhúshópurinn í 9. og 10. bekk stefnir á að sýna listir sínar á skólaslitunum í vor en í hópnum eru krakkar sem eru í leiklistarsmiðju á þessu tímabili. Undirbúningurinn felst í að æfa sig í ýmsum brellum og brögðum og nú erum við t.d. að æfa okkur með eldinn.
Lesa meira
Árshátíð grunnskólans var í gærkvöldi og heppnaðist að flestra mati vel. Þetta er í fyrsta skipti sem hún er haldin í íþróttahúsinu en salurinn var afar hátíðlegur með nýju drapperingunum og gulum brosköllum.
Lesa meira
Nú eru nemendur og starfsmenn að leggja lokahönd á árshátíðarundirbúning. Eftir hádegið verður generalprufan og lokafrágangur á sal en kl. 17:30 byrjar árshátíðn sjálf.
Lesa meira
Árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar verður haldin fimmtudaginn 25. mars næstkomandi í íþróttahúsinu. Sýningin hefst klukkan17:30. Þema árshátíðarinnar að þessu sinni verða lög eftir Ómar Ragnarsson. Aðgangseyrir er 1000 kr á fjölskyldu.Veitingar verða veittar á staðnum.
Allir velkomnir !
Lesa meira
Í dag lauk Stóru upplestrarkeppninni á lokahátíð í Hafnarkirkju. Þar leiddu saman hesta sína þeir 11 keppendur sem best hafa staðið sig í Grunnskóla Hornafjarðar og í Grunnskóla Djúpavogs. Keppnin var bæði skemmtileg og spennandi og náðu nemendur úr Grunnskóla Hornafjarðar í þrjú efstu sætin en Sparisjóðurinn gefur verðlaun þremur bestu lesurunum. Alrún Irene Stephensdóttir fór með sigur af hólmi, í öðru sæti var Guðrún Ósk Gunnarsdóttir og í þriðja sæti var Hafþór Snorrason. Sérstök aukaverðlaun hlaut Bjartur Elí Egilsson frá Grunnskóla Djúpavogs.
Lesa meira
Miðvikudaginn 3. mars koma Páll Ólafsson félagsráðgjafi í heimsókn til okkar og ræddi um jákvæð samskipti. Hann hélt tvo fyrirlestra, annan fyrir foreldra og hinn fyrir starfsmenn auk þess sem hann hitti stýrihópa í skólanum og leikskólunum. Páll talar um jákvæð samskipti út frá hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar og heimsókn hans var virkilega góð innspýting fyrir þá sem á hlýddu. Hér má nálgast foreldrafyrirlestur Páls.
Lesa meira
Nú er 6. bekkur að renna sér á skíðum í Oddsskarði í blíðskaparveðri og góðu færi. Þau fóru í gærmorgun á skíði og koma heim síðdegis í dag. Í síðustu viku fór 8. bekkurinn á skíði og var líka mjög heppinn með veður og skíðafæri.
Lesa meira
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar verður í Hafnarkirkju miðvikudaginn 17. mars kl. 14:00. Nemendur í 7. bekk Grunnskóla Djúpavogs og Grunnskóla Hornafjarðar keppa.
Allir velkomnir.
Skólaskrifstofa Hornafjarðar
Lesa meira
Í dag og í gær fóru allir nemendur grunnskólans í ferð út að Horni að skoða víkingabæinn sem hefur verið byggður þar.
Lesa meira
Í morgun var öllum nemendum grunnskólans boðið á blústónleika í Sindrabæ í tilefni Norðurljósablúshátíðarinnar sem er hér á Höfn um helgina. Það var Rökkurbandið sem sá um skemmtunina og nutu bæði ungir og aldnir stundarinnar.
Lesa meira
Austurlandsriðillinn í skólahreysti 2010 var að venju haldinn á Egilstöðum og voru það þau Anna Mekkín Reynisdóttir, Einar Ásgeir Ásgeirsson, Gunnar Örn Olgeirsson og Karen Björg Halldórsdóttir sem kepptu fyrir hönd okkar í Grunnskóla Hornafjarðar.
Lesa meira
Miðvikudaginn þriðja mars var skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í salnum í Nýheimum. Þeir sem komust áfram í skólakeppninni munu keppna í lokakeppninni sem fram fer í Hafnarkirkju 17. mars en það eru Alrún Irene, Anna Birna, Guðrún Ósk, Hafþór, Haukur Ingi, Inga Kristín, Karólína, Katrín María og Þorkell Ragnar.
Lesa meira
Bekkjarkeppni stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk var í vikunni og komust eftirfarandi nemendur áfram. Hafþór Snorrason, Karolina Darnowska, Katrín María Sigurðardóttir, Steinunn Rán Bengtsdóttir, Alrún Irene Stephensdóttir, Anna Birna Elvarsdóttir, Guðrún Ósk Gunnarsdóttir, Haukur Ingi Agnarsson, Inga Kristín Aðalsteinsdóttir, Lilja Karen Björnsdóttir, Sævar Ingi Ásgeirsson og Þorkell Ragnar Grétarsson.
Lesa meira
Mánudaginn 22. febrúar kom Halldór Jörgensson framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi í heimsókn til Hafnar. Markmið hans með ferðinni var að fjalla um nýsköpun á sviði upplýsingatækni og almenna byggðaþróun og viðskiptatækifæri við heimamenn. Einnig hitti hann nemendur í 6. og 7. bekk og fjallaði um netöryggi barna, unglinga og foreldra.
Lesa meira
Í Grunnskólanum höldum við áfram með hinar hefðbundnu föstudagshátíðir og eru nokkrir bekkir búnir að sýna sína hátíð. Þetta er alltaf jafn gaman og mikil tilhlökkun sérstaklega hjá þeim sem að hátíðinni standa í það og það skiptið.
Lesa meira
Unglingarnir hafa ekki síður gaman af öskudegi en yngri börnin þó þau vilji stundum gera hlutina öðru vísi. Margir nemendur á unglingastigi mættu í búning á öskudag og hæfileikakeppnin sem haldin var í tilefni dagsins tókst vel og eru margir upprennandi listamenn í skólanum.
Lesa meira
Það er búið að vera mikið fjör í skólanum í dag, öskudag. Nemendur og starfsfólk mættu í grímubúningu og mátti sjá allskonar undarlegar persónur og furðuverur á ferð. Dagurinn hófst á æfingum fyrir samkomuna í íþróttahúsinu en þar tóku krakkarnir lagið auk þess sem þeir tóku þátt í hæfileikakeppni.
Lesa meira
Á dögunum var boðað til svokallaðs prjónakvölds hjá starfsfólki grunnskólans. Þar mættu rúmlega tuttugu starfsmenn með það sem þeir höfðu á prjónunum en það var æði misjafnt. Sumir prjónuðu, einhverjir saumuðu út, heklunál var á lofti og svo var orkerað.
Lesa meira
Síðastliðinn þriðjudag ákváðum við nemendur í 9.bekk að halda bingókvöld til styrktar Laugarferðarinnar okkar og gekk það bara mjög vel, margir mættu og stemningin var góð. Við fórum í fyrirtækin á svæðinu og voru þau öll til í að styrkja okkur um vinninga.
Lesa meira
Fyrsta vika febrúarmánaðar ár hvert er helguð tannvernd. Áhersla er lögð á mikilvægi góðrar tannheilsu og í ár beinum við sérstakri athygli að yngstu börnunum.
Lesa meira
Að venju buðu hraustir drengir í skólanum "þorra í garð" að gömlum sið með því að hlaupa eða hoppa kringum skólann, sumir berfættir, á brókinni eða í annarri buxnaskálminni og sumir jafnvel berir að ofan.
Lesa meira
Um helgina skipta nemendur skólans um smiðju og í dag luku nú fimmtán nemendur í 9. og 10. bekk námskeiði í tölvum sem kallast Þrívíddar hönnun og hljóð.
Lesa meira
Starfsfólk Grunnskóla Hornafjarðar óskar nemendum, foreldrum og Skaftfellingum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakkar samstarfið á árinu sem er að líða.
Lesa meira
Sú hefð hefur skapast undanfarin ár að Sparisjóðurinn færir 1.bekk jólagjöf. Þetta er alltaf tilhlökkunarefni og á dögunum birtust Anna og Margrét og afhentu pakkana.
Hafi Sparisjóðurinn þakkir fyrir.
Lesa meira
Á aðventunni var haldið mannamót fyrir nemendur í 7. - 10. bekk. Albert Eymundsson sá að sjálfsögðu um mótið og stjórnaði ríflega 100 nemendum skörulega en dagana á undan hafði hann aðstoðað nemendur og kennara við að rifja upp eða læra Hornafjarðarmanna.
Lesa meira
Föstudaginn 11. desember var jólabíó í fyrir 7. - 10. bekk í skólanum. Nemendur fengu að koma með nammi eins og í alvöru bíói og notfærðu þeir sér það óspart. Einnig máttu þeir koma með teppi og kodda til að koma sér vel fyrir en bíóið var í holinu á neðri hæðinni.
Lesa meira
Í Heppuskóla hafa nemendur og starfsmenn sungið saman á aðventunni í holinu á neðri hæðinni. Villi (Vilhjálmur Magnússon) tölvu- og myndmenntakennari hefur leitt sönginn en margir hafa gripið í hljóðfæri honum til stuðnings.
Lesa meira
Miðvikudaginn 2. desember var almennur fundur hjá bekkjartenglum í foreldrafélagi Grunnskólans. Góð mæting var á fundinn þar sem vetrarstarfið var rætt, aðkoma foreldra að forvarnarvinnu, aukinn kostnaður við ferðalög nemenda og margt fleira.
Lesa meira
Stúlkur í valáfanganum Förðun og tíska komu saman s.l. þriðjudagskvöld og héldu kynningar um förðun og tísku mismunandi tímabila.
Lesa meira
Á opnum dögum á barnastigi er lögð áhersla á umhverfismennt og atvinnulíf á Hornafirði. Á miðviku- og fimmtudag fara 1.-4. bekkir í Geitafell í náttúruskoðun þar sem m.a. rannsakaðir eru steinar og jurtir. En sömu daga kanna 5.-6. bekkur atvinnulífið á Hornafirði og heimsækja fyrirtæki og vinna síðan plakat og frétt um einstök fyrirtæki sem birtast bæði á heimasíðu og í Eystrahorni.
Lesa meira
Í morgun hófust nýsköpunar- og hönnunardagar í Heppuskóla. Nemendur og starfsmenn voru búnir að sanka að sér allskonar dóti sem hægt er að nota til að örva hugmyndaflugið því það þarf aldeilis að nota þegar kemur að nýsköpun og hönnun.
Lesa meira
Á degi íslenskrar tungu 16. nóvember fer Stóra upplestrarkeppnin af stað í grunnskólum landsins. Hún er haldin meðal 7. bekkinga á landinu öllu og munu þeir æfa sig í upplestri næstu vikur og mánuði.
Lesa meira
Síðustu morgna hefur Valgerður Snæland komið í Heppuskóla og verið með hláturjóga kl. 7:30 á morgnana.
Lesa meira
Legókeppnin (FLL) fór fram nú um helgina í Keili á gamla varnarsvæðinu í Keflavík. Grunnskóli Hornafjarðar sendi auðvitað lið til keppni. Liðið í ár kallar sig Smartís og stóð sig með prýði. Verðlaun voru veitt í eftirfarandi flokkum; besta lausn í þrautabraut, besta hönnun á vélmenni, besta skemmtiatriðið, besta rannsóknarverkefnið, besta dagbókin (ferilskráningin), besta liðsheildin og svo að sjálfsögðu FLL meistarar 2009.
Lesa meira
Í 9. A hafa nemendur verið að lesa saman bókin Blóðberg eftir Ævar Örn Jósepsson. Í tengslum við lestur bókarinnar vinna nemdur hópverkefni og eitt þeirra var sýnt í frímínútum í Heppuskóla í gær. Þá sungu og spiluðu nokkrir nemendur frumsamið lag Explosion.
Lesa meira
Stúlkur í valáfanganum Förðun og tíska komu saman á miðvikudagskvöldið og héldu kynningar um förðun og tísku mismunandi tímabila.
Lesa meira
Nú er verkefninu Göngum í skólann lokið en það stóð frá 9. september til 9. október. Þetta verkefni gekk mjög vel og mikil þátttaka var bæði hjá nemendum og starfsmönnum. Eina vikuna fórum við í smá keppni þar sem við skráðum hjá okkur hverjir gengu eða hjóluðu í skólann og voru verðlaun í boði.
Lesa meira
Viðbragðsáætlun vegna inflúensufaraldurs
-
15.10.2009
Fréttir Grunnskóli
Eins og Hornfirðingum er kunnugt þá varð svínaflensu vart á Íslandi í sumar og virðist hún heldur vera að færast í aukana. Öllum skólum voru send fyrirmæli og leiðbeiningar um að gera viðbragðsáætlun ef til faraldrar kæmi og þar sem veikindi hafa verið færast í aukana í kringum okkur þá þykir okkur rétt að birta viðbragðsáætlunina. Hún verður hér á heimasíðunni undir liðnum Skólastarfið en einnig er hægt að nálgast hana hér. Rétt er að taka fram að veikindi eru með minna móti í skólanum hjá okkur í dag.
Síðastliðinn miðvikudag fórum við í 10unda bekk í þriggja daga ferð í Kollumúla í Lónsöræfum. Árni Rúnar, Berglind, Kiddi litli og Jón Braga voru fararstjórar ferðarinnar. Lagt var af stað frá skólanum snemma á miðvikudagsmorgun, farið var á tveimur bílum sem voru ekki í vandræðum með að koma okkur yfir Skyndidalsána.
Lesa meira
Dagana 28. september til 1. október var Bjössi bangsi í heimsókn hjá 1. NS, en Bjössi bangsi hefur ferðast víða og heimsótt marga. Bjössi bangsi fór í frímínútur með krökkunum og einnig fór hann með þeim í m
atsalinn í hádeginu. Hann var mjög duglegur að borða og tók virkan þátt í öllu skólastarfi, t.d. tónmennt og ensku
Lesa meira
10. bekkur er kominn heim úr tveggja daga ferð á Lónsöræfi. Farið var snemma á miðvikudagsmorgun og komið heim um hádegi í dag. Gengið var um Víðibrekkusker, Tröllakróka og víðar. Veður var gott fyrir utan rok síðustu nótt. Í næstu viku kemur ferðasagan ásamt fleiri myndum.
Lesa meira
Auður Lóa Gunnarsdóttir gerði sér lítið fyrir og hneppti gullið í Nýsköpunarkeppni grunnskóla.
Lesa meira
Um síðustu helgi voru 36 danskir nemendur úr 8. bekk í Vestervangskolen, ásamt 4 kennurum, í heimsókn hjá 8. bekkingum í Grunnskóla Hornafjarðar.
Hópurinn kom um miðjan dag á föstudag og skoðaði Jöklasafnið áður en þau komu sér fyrir í skólastofum í Heppuskóla, þar sem þau sváfu. Þá drifu þau sig í sund í boði sveitarfélagsins ásamt hornfirsku 8. bekkingunum. Þar gafst færi á að spjalla aðeins áður en hóparnir, sá danski og sá íslenski borðuðu saman pizzur á Hótel Höfn um kvöldið.
Lesa meira
Undanfarna daga hafa nemendur í yngstu bekkjum skólans farið inn í Nes til að taka upp kartöflur en að venju settu krakkarnir niður kartöflur í vor.
Lesa meira
Þegar skóli byrjaði í ágúst var ein fyrsta spurningin sem kennarar og skólastjóri á unglingastigi fengu, „hvenær verður busað?“
Lesa meira
Í dag tóku nemendur grunnskólans þátt í Norræna skólahlaupinu í einstaklega miklu blíðviðri. Samtals fóru nemendur skólans 1349,5 km, gangandi og hlaupandi og sú vegalengd næstum jafn löng hringveginum.
Lesa meira
Í vikunni kusu nemendur í 7. - 10. bekk í Nemendaráð skólans. Í ár er það skipað eftirtöldum nemendum:
Lesa meira
Miklar breytingar hafa átt sér stað í skólastarfi frá fyrra ári og ber þar hæst að skólahald í Nesjaskóla hefur verið lagt niður.
Lesa meira
Tveir nemendur úr Grunnskóla Hornafjarðar komust áfram í vinnusmiðjur í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna nú í haust, þær Auður Lóa Gunnarsdóttir og Selma Björt Stefánsdóttir.
Lesa meira
Í dag fór valið af stað á unglingastiginu. Á fyrsta tímabili sem stendur fram í lok október er boðið upp á gifs, boltavali, badminton, förðun og tísku, matreiðslu, útivist, kvikmyndagerð og legó. Skipulagið í kringum valið er margskonar og eru tveir hópar í sumu valinu. Sumir mæta bara á þriðjudögum á meðan aðrir þurfa að vinna mikið í stuttan tíma t.d. kvikmyndahópurinn sem þarf að ljúka sinni vinnu fyrir næstu mánaðarmót.
Lesa meira
Opnu húsi í Hafnarskóla sem vera átti í dag er frestað um óákveðinn tíma þar sem breytingum á húsinu er ekki enn lokið.
Lesa meira
Skólasetning í Grunnskóla Hornafjarðar mánudaginn 24. ágúst
1. – 3. bekkur kl. 16:00 – í Hafnarskóla
4. – 6. bekkur kl. 18:00 – í Hafnarskóla
7. – 10. bekkur kl. 20:00 - í Heppuskóla
Lesa meira
Síðustu daga hefur starfsfólk grunnskólans setið á námskeiðum til að undirbúa starf vetrarins. Fyrra námskeiðið var sameiginlegt með leikskólunum en það fjallaði um lestur og lesfærni og voru leiðbeinendur á því Helga Sigurmundsdóttir og Steinunn Torfadóttir. Síðara námskeiðið var um uppeldi til ábyrgðar en þar var Guðlaug Erla Gunnarsdóttir leiðbeinandi.
Lesa meira
Í gær kom starfsfólks Grunnskólans á Hellu í heimsókn til að kynna sér hvað við værum að gera markvert í skólanum hér. Auk þess að sýna þeim Heppuskóla þá sögðum við þeim frá nokkrum þáttum skólastarfsins, s.s. uppeldi til ábyrgðar, Need verkefninu sem skólinn er aðili að og legó- og nýsköpunarvinnu.
Lesa meira
Miklar framkvæmdir standa nú yfir í Hafnarskóla. Verið er að breyta tveimur elstu hlutum skólans þannig að 1. – 3. bekkur skólans rúmist hér út á Höfn
Lesa meira
Margt var um mannin á skólaslitum Grunnskóla Hornafjarðar sem fóru fram við hátíðlega athöfn þann 29. maí.
Lesa meira
Ferðir og ferðalög einkenna vordaga skólanna. Engin undantekning hefur verið á því þetta vorið.
Lesa meira
Á mánudaginn var fór 3. bekkur í ferðalag í Öræfin. Lagt var að stað frá Nesjaskóla um kl 9 og keyrt eins og leið lá í Hrollaugshóla sem eru neðan við Reynivelli. Þar var stoppað, borðað nesti og fleytt kerlingum í ánni. Næsta stopp var við Háöldu og þar voru gígarnir skoðaðir og krakkarnir fengu góða útrás við að hlaupa upp og niður gígsbrekkurnar.
Lesa meira
Það var mikil hlaupagleði sem einkenndi skóladaginn í dag hjá nemendum Grunnskólans
Lesa meira
Einn af vorboðum okkar eru Kiwanis-menn en undanfarin ár hafa þeir komið og fært 1. bekkingum hjólreiðahjálma og er þetta gert í samstarfi við Eimskip hf.
Lesa meira
Í dag var nemendum í 7. - 10. bekk kynnt val sem þeim stendur til boða næsta vetur. Nemendur fengu í hendur valbæklinga og næsta miðvikudag 20. maí verða þeir að hafa skilað inn valinu. Hér getið þið séð valbækling fyrir 7. og 8. bekk og hér fyrir 9. og 10. bekk.
Lesa meira
Það er alltaf gaman að fá góða gesti en í síðustu viku var Hafnarskóli hinn gamli heimsóttur af nemendum Nesjaskóla sem ætla að hefja þar nám næsta haust.
Lesa meira
Þann 5. maí s.l. fór 4.bekkur í fuglaskoðunarferð. Binni fuglafræðingur bauð okkur og kennurunum því við erum að byrja að læra um fugla í náttúrufræði. Við fengum blöð með nokkrum fuglum og svo áttum við að merkja X við þá fugla sem við sáum.
Lesa meira
Fimmtudaginn 23. apríl kl. 12.00 lagði 14 manna hópur leikara í Leikhópnum Lopa af stað frá Hornafirði. Stefnan var tekin á Egilsstaði þar sem hópurinn átti að sýna 2 tvö leikrit á Leiklistarhátið Þjóðleiks dagana 24. – 26. apríl.
Lesa meira
Hittumst á flugvellinum um fimmleytið, tékkuðum okkur inn og röltum svo í fríhöfninni, fengum okkur að borða.
Lesa meira
Á slóðinni
www.klakarnir10.blogcentral.is blogga Klakarnir okkar um ferð sína til Kaupmannahafnar. Í dag er síðasti dagur keppninnar og bíðum við spennt eftir að heyra frá þeim. Klakarnir koma heim á þriðjudaginn.
Lesa meira
Nú eru Klakarnir lagðir af stað í keppnisferðina til Kaupmannahafnar þar sem þau munu taka þátt í Evrópumótinu í Legó Childrens Climate Call.
Lesa meira
Á miðvikudag kom Orri Páll Jóhannsson starfsmaður hjá Landvernd í heimsókn í Grunnskólann.
Lesa meira
Fjórðu bekkingar tóku þátt í söfnuninni Börn hjálpa börnum á dögunum og söfnuðu samtala 80.835 krónum.
Lesa meira
Í dag var haldið páskamannamót í Hornafjarðarmanna í 4. - 7. bekk. Spilað var í tveimur hópum og á sitt hvorri hæðinni og tóku allir nemendur þátt.
Lesa meira
Eins og flestir bæjarbúar vita þá standa fyrir dyrum miklar breytingar í Grunnskólanum. Eitt af því sem breytist er að lengda viðveran færist út í lausu kennslustofurnar bak við skólann.
Lesa meira
Árshátíðarviku Grunnskóla Hornafjarðar er nú lokið. Mikið var um dýrðir og gleði. Nemendur unnu leiksýningar úr verkum Torbjörns Egners. Og sýndu svo á tveim sýningum s.l. fimmtudag.
Lesa meira
Til foreldra fermingarbarna,
Tölvur hafa verið vinsælar fermingargjafir síðustu ár og því vilja Heimili og skóli og SAFT vekja athygli foreldra á að þó að barnið eignist sína eigin tölvu minnkar ekki ábyrgð foreldra hvað jákvæða, ábyrga og uppbyggilega notkun barna þeirra á nýmiðlum varðar.
Lesa meira
Nú nýlega var allur Microsoft Office pakkin í skólanum uppfærður úr 2003 í 2007 árgerðina sem þýðir að þeir sem ekki hafa Office 2007 pakkann geta lent í vandræðum með að opna viðhengi frá okkur.
Lesa meira
Nú stendur yfir dansvika í Grunnskólanum og á milli þess sem nemendur æfa atriði fyrir árshátíðina og búa til skreytingar þá dansa þau af miklum krafti.
Lesa meira
Árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar verður fimmtudaginn 26. mars í Sindrabæ. Tvær sýningar verða fyrir nemendur og foreldra, sú fyrri kl. 17:30 og sú síðari kl. 19:00. Nemendum og foreldrum í 1. - 5. bekk er beint á fyrri sýninguna en eldri nemendum og foreldrum þeirra á seinni sýninguna. Þema sýningarinnar er Thorbjörn Egner og leikverk hans.
Lesa meira
Könnun var lögð fyrir foreldra á viðtalsdegi í febrúar. Markmiðið var að kanna viðhorf foreldra til ýmissa þátta er varða skólann, s.s. sameiningu, upplýsingamiðlun, foreldraviðtöl, upphaf og lok skólaárs, sérfræðiþjónustu, flutning á skólastigunum og uppeldisstefnuna “uppeldi til ábyrgðar”. Niðurstöður úr könnuninni notum við til að bæta skólastarfið.
Lesa meira
Í vetur höfum við í Grunnskólanum tekið þátt í sjálfsmatsverkefni sem nefnist Skólapúlsinn. Þetta verkefni kannar hug nemenda til þriggja þátta í skólastarfinu, þ.e. virkni nemenda í skólanum, líðan þeirra og skóla- og bekkjaranda
Lesa meira
Magnús J. Magnússon hefur enn einu sinni gert kraftaverk með krökkunum okkar sem við ættum ekki að láta fram hjá okkur fara
Lesa meira
Stóru upplestrarkeppninni er nú lokið. Sigurvegari varð Auður Gautadóttir frá Djúpavogi, Heiðdís Anna Marteinsdóttir lenti í öðru sæti en í því þriðja varða Ragnar Magnús Þorsteinsson bæði úr Grunnskóla Hornafjarðar.
Lesa meira
Í gær fékk Grunnskóli Hornafjarðar til sín góðan gest en það var bassaleikarinn Dean Farrel.
Lesa meira
Í dag sýndi valhópurinn sem var í leiklist á miðstiginu afraksturinn frá síðasta tímabili á sal. Þau léku, sungu og og voru með afbragðs skemmtiatriði.
Lesa meira
Um helgina var boðið upp á skákkennslu á vegum Skákskóla Íslands og var það Davíð R. Ólafsson sem kom og hafði umsjón með námskeiðinu. Á föstudaginn fór Davíð í alla bekki grunnskólans og talaði við nemendur um skák og hvatti þá til að mæta í kennsluna á laugardag.
Lesa meira
Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar fer fram í Hafnarkirkju miðvikudaginn 11. mars kl. 16 og er hún opin öllum. Við athöfnina munu 11 nemendur úr 7. bekk, sem valdir hafa verið úr Grunnskóla Hornafjarðar og Grunnskóla Djúpavogs, lesa sögur og ljóð
Lesa meira
Næstkomandi miðvikudag frumsýnir Leikhópurinn Lopi tvö ný leikrit. Þetta eru leikritin ÍSVÉLIN eftir Bjarna Jónsson og DÚKKULÍSA eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur.
Lesa meira
Á föstudaginn var sá 2.N um föstudagshátíð skólans. Þemað að þessu sinni var eins konar dagatal þar sem farið var yfir alla mánuði ársins bæði nútímaheiti þeirra og þau gömlu, árstíðir og einnig merkisdaga og viðburði.
Lesa meira
Davíð R. Ólafsson skákkennari heimsótti alla bekki grunnskólans í dag og kynnti þessa frábæru íþrótt skák fyrir nemendum.
Lesa meira
Það var mikið blúsað í Grunnskólanum í dag þegar Mugison heimsótti alla skólana og spilaði og söng fyrir krakkana.
Lesa meira
Vandræði við að opna viðhengi úr skólanum
-
4.3.2009
Fréttir Grunnskóli
Nýlega var Microsoft Office pakkin í Grunnskólanum uppfærður í 2007 útgáfuna. Við það hafa margir sem ekki eru með þá útgáfu lent í vandræðum með að lesa skjöl (viðhengi) úr skólanum. Hér koma leiðbeiningar til þeirra sem vilja ráða bót á þeim vanda.
Þeir sem eru með Microsoft Office 2003 í tölvum sínum og geta ekki lesið skjöl sem eru búin til í Office 2007 hafa möguleika á að sækja forrit sem gerir þeim tölvum mögulegt að lesa Microsoft Office 2007 skjöl. Forritið heitir File-format-converter Office 2007 og er hægt að sækja hér http://www.rikivatnajokuls.is/hatidni/thjonusta/hugbunadur
Skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Nýheimum. Þar lásu 12 nemendur bæði bundinn og óbundinn texta.
Lesa meira
Öskudagurinn rann upp, með tilheyrandi hlaupum á heimilum Hornfirðinga og annarra landsmanna. Greiða, mála, klæða snyrta ofl. ofl. ofl. smáverk sem þarf að inna af hendi áður en lagt er af stað í skólann. Búningar í algleymingi. Grunnskóli Hornafjarðar tók á móti skrautlegu fólki í morgun. Við ætlum að láta myndirnar tala sýnu máli en um 400 myndir voru teknar. Ekki er mögulegt að setja allt á netið en
Lesa meira
Nesjaskóla var öskudagurinn haldin hátíðlegur eins og vera ber. Við hófum daginn á hefðbundinni kennslu en eftir nestistímann tók við spila- og leikjatími fram að mat.
Lesa meira
Þriðjudaginn 24.febrúar fórum við gangandi út að Drápsklettum með kennurunum okkar Rósu og Þórhildi og íþróttakennaranum okkar Sævari. Í mörg ár hefur skólinn verið að rækta tré út við Drápskletta en núna voru komin hreindýr
Lesa meira
Eins og flestir vita er verið að ferja nýtt skip fyrir Skinney-Þinganes HF alla leið frá Kaohsiung í Taiwan. Einn af skipverjunum, Margeir, er pabbi hennar Margrétar í 2. bekk.
Lesa meira
Þá fara nemendur og kennari yfir stöðu mála og markmið eru sett fyrir næstu önn. Nú þegar hafa nokkrir foreldrar verið boðaðir í viðtöl þar sem mikið annríki er oft hjá umsjónarkennurum á viðtalsdegi.
Lesa meira
Mánudaginn 23. febrúar og föstudaginn 27. febrúar lýkur skólanum fyrr vegna námskeiðs hjá starfsfólki.
Lesa meira
Nemendur í 7. bekk taka þátt í Stóru upplestrarkeppninni eins og undanfarin ár.
Lesa meira
Í gær 11. Febrúar var 112 dagurinn haldinn í 5. sinn og að þessu sinni var dagurinn tileinkaður börnum og ungmennum, öryggi þeirra og velferð með það að leiðarljósi að kynna neyðarnúmerið og starfsemi aðila sem því tengist.
Lesa meira
Það má segja að nýtt leikár sé hafið í Nesjaskóla en 3. HG reið á vaðið með fyrstu leiknu föstudagshátíðina á nýju ári.
Lesa meira
Það má segja að Þorrinn hafi verið vænn við okkur þetta árið, logn en frost alla daga. Ekki byrjaði árið illa en það var hlýtt í upphafi eins og sjá má á myndum af fótboltakrökkunum sem teknar voru 9. janúar.
Lesa meira
Í desember síðastliðnum hélt 1. S föstudagshátíð sem að venju vakti mikla lukku.
Hér koma nokkrar myndir af þeirri hátíð.
Lesa meira
Nemendur á miðstigi skelltu sér á skauta í gær.
Lesa meira
Þann 6.febrúar 2009 er dagur leikskólans haldinn um allt land og ætlum við leikskólarnir á Höfn að gera okkur dagamun í tilefni dagsins.
Lesa meira
Fyrsti dagur þorra er í dag og var honum fagnað með ýmsum hætti í Grunnskólanum.
Lesa meira
Á morgun 23. janúar er bóndadagur. Þá gera grunnskólanemar sér dagamun. Drengir á miðstiginu hoppa á öðrum fæti í kringum skólann í annarri brókarskálminni og bjóða þannig þorra velkominn. Einnig ætla 7. bekkingar að vera með skemmtun á sal og svo verður spilaður manni að hornfirskum sið.
Lesa meira
Þorsteinssyni og Hjalta Vignissyni. Fulltrúar Nýsköpunarmiðstöðvar eru staddir hér til að kynna starf Nýsköpunarsmiðstöðvar á Hornafirði
Lesa meira
Nemendur og kennarar Grunnskóla Hornafjarðar héldu litlu jólin hátíðleg í gær. Mikið var um dýrðir og skemmtanir. Nemendur og starfsfólk Grunnskóla Hornafjarðar óskar öllum gleðilegra jóla og þakkr fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.
Lesa meira
Í morgun komu fulltrúar frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands í heimsókn í Grunnskólann ásamt Ara Þorsteinssyni og Hjalta Vignissyni. Fulltrúar Nýsköpunarmiðstöðvar eru staddir hér til að kynna starf Nýsköpunarsmiðstöðvar á Hornafirði og munu verða með kynningu á henni í Nýheimum í dag. Heimsóknin í Grunnskólann tengdist nýsköpunarstarfinu þar og þeim árangri sem legóhóparnir hafa verið að ná. Klakarnir sýndu þeim legóverkefnið sem þeir sigruðu keppnina með og leist þeim afar vel á það.
Lesa meira
Eins og flestum er kunnugt ákvað bæjarstjórn Hornafjarðar að flytja 1. til 3. bekk Grunnskóla Hornafjarðar út á Höfn n.k. haust. Unnið hefur verið að þessum breytingum í vetur og mun 1. - 6. bekkur verða í Hafnarskóla en 7. - 10. bekkur í Heppuskóla. Einnig samþykkti bæjarstjórn að fækka skólastjórum við skólann úr þremur í tvo og deildastjórum úr tveimur í einn.
Lesa meira
Í þemaviku unlgingastigs Grunnskóla Hornafjarðar hefur hefðbundið skólastarf verið brotið upp og unnið er þvert á bekki og árganga, gott er fyrir nemendur að breyta til, svona í mesta skammdeginu. Þemavikan inniheldur ákveðin þema, eins og nafnið gefur til kynna, en nú eru það jólin í víðum skilningi Þar geta nemendur valið sér ýmsa hópa til að vinna í. Það er mjög misjafnt hvað margir sækja hvern hóp. Blaðahópurin er til dæmis fámennur en fatahönnunnin fjölmenn.
Lesa meira
Nú í jólaösinni ætla nemendur á mið- og efstastigi grunnskólans að gerast spekingar og skrifa ritdóma um nýútkomnar bækur fyrir börn og unglinga. Ritdómarnir verða birtir á heimasíðu grunnskólans fram að jólum og lengur ef þurfa þykir. Mikill áhugi er á lestri þessa dagana og þá ekki hvað síst á nýjum bókum hjá nemendum skólans. Nýafstaðin heimsókn rithöfunda á öll skólastig kynnti vel undir þeim áhuga og þá hefur opnun bókasafnsins í Heppuskóla mælst sérlega vel fyrir og auðveldar nemendum þar aðgengi að bókum.
Lesa meira
Á hverju ári efnir Umferðarstofa til jólagetraunar hjá nemendum í 1. - 5. bekk. Á samveru á sal í dag voru vinningshafar dregnir úr réttum svörum í 4. og 5. bekk. Í fjóraða bekk var það Jóel Ingason sem var dreginn úr og hlaut í verðlaun bókina Eyja sólfuglsins eftir Sigrúnu Eldjárn. Í 5. bekk var það Dagur Snær Guðmundsson sem var dreginn út og hlaut í verðlaun bókina Steindýrin eftir Gunnar Theodór Eggertsson.
Lesa meira
Á mánudaginn 8. desember var trúarbragðarsýning hjá 7. M. Krakkarnir buðu foreldrum sínum og gerðu glærusýningu, bæklinga um trúarbrögðin hindú, búddha, íslam, gyðingadóm og kristni sem eru 5 helstu trúarbrögð heims. Einnig settu þau upp muni sem tengjast trúarbrögðunum og voru í viðeigandi búningum.
Lesa meira
Mánudaginn 8. desember stóð foreldrafélag Grunnskólans fyrir söfnun á jólapökkum undir jólatréð í Kringlunni. Mælst var til þess að sem flestir gæfu aukapakka þessi jól sem færi undir jólatréð í Kringlunni og Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands sjá svo um að úthluta. Nemendur og foreldrar söfnuðust saman í Sindrabæ þar sem miðum á pakkana var deilt út og síðan var farið með þá á pósthúsið.
Lesa meira
Á Menntavísindasviði Háskóla Íslands er sífellt unnið að rannsóknum á námi og kennslu. Nú hefur starfsfólk þar kynnt sér nýjar aðferðir við inngrip við lestrarvandamálum og á
morgunvaktinni á Rás 1, 8. desember var viðtal við Steinunni Torfadóttur þar sem hún sagði frá því í hverju þessi inngrip felast.
Lesa meira
Nú hefur leikhópurinn Lopi lokið sýningum á leikritinu Blekking eftir Magnús J. Magnússon. Sýningum lauk með tveimur skólasýningum þar sem öllum nemendum í 4. - 10. bekk var boðið á leikritið. Nemendur voru flestir afar ánægðir með sýninguna og sem dæmi má nefna að í 4. - 7. bekk misstu áhorfendur aldrei athyglina þær 70 mínútur sem sýningin stóð enda stanslaust eitthvað skemmtilegt um að vera á sviðinu. Hér er leiklistargagnrýni frá nemanda í 5. bekk.
Lesa meira
Kærkomin heimsókn rithöfunda var í Grunnskóla Hornafjarðar í dag, en lesið var upp í Nesjaskóla, Hafnarskóla og Heppuskóla. Þetta hefur verið árviss viðburður hjá okkur í desember og er orðin hefð í undirbúningi jólanna. Rithöfundarnir skiptu sér niður á aldursstig og las Sigrún Eldjárn fyrir yngsta stig og miðstig úr bókinni, ,,Eyju Sólfuglsins". Á miðstigi las einnig Jóna Á. Gísladóttir úr bók sinni ,,Sá einhverfi". Jóna las einnig á elsta stiginu en auk hennar lásu þar; Sjón úr bók sinni ,,Rökkurbýsnir", Guðmundur Andri Thorsson úr bókinni ,,Segðu mömmu að mér líði vel" og Þórunn Valdimarsdóttir úr ljóðabókinni "Loftnet klóra himin".
Lesa meira
Að venju var haldið upp á fullveldisdaginn í Grunnskólanum. Unglingarnir tóku forskot á sæluna og voru með fullveldisfagnað á föstudagskvöldið þar sem hljómsveitin Rottweiler kom og lék fyrir dansi með þeim. Á yngri stigunum hittust nemendur og sungu saman og á miðstiginu var 6. Ó auk þess með sýningu og sagði okkur svoldið frá fullveldinu og öðru markverðu sem gerðist árið 1918 þegar Ísland hlaut fullveldi. Hér á eftir kemur textinn sem 6. Ó flutti í tilefni dagsins. Hann er okkur öllum góð lesning og minnir okkur á hve harða baráttu Íslendingar hafa oft þurft að heyja, til að komast af.
Lesa meira
Eins og flestir muna eftir þá sigraði legóhópurinn Klakarnir First Lego Leagu keppnina sem haldin var 8. nóvember síðastliðinn og vann sér um leið inn rétt til þátttöku á Evrópumótinu í Kaupmannahöfn í byrjun maí á næsta ári. Bæjarstjórn bauð Klökunum ásamt fylgdarmönnum í keppninni í pizzu á Hótelinu í gær í tilefni sigursins. Þar tók hópurinn vel til matar síns enda pizzur sívinsælar hjá þessum aldurshópi. Um leið og bæjarstjórinn óskaði Klökunum til hamingju með árangurinn þá hafði hann orð á því að það væri sérstaklega gaman að bjóða þeim út að borða því honum þætti pizzur líka svo góðar.
Lesa meira
Nú í haust höfum við verið að æfa fingrasetningu með notkun ritþjálfa. Við æfðum okkur daglega í u.þ.b. tvær vikur. Þetta er góð aðferð við að kenna fingrasetningu og gaman að fylgjast með hvað krakkarnir eru fljót að komast upp á lag með þetta.
Lesa meira
Við höldum áfram með föstudagshátíðirnar í Nesjaskóla og síðastliðinn föstudag var það 1. B sem þreytti frumraun sína á sviðinu. Eins og gefur að skilja þá er mikill spenningur hjá nemendum við undirbúninginn og ekki síst hjá þeim yngstu sem búnir eru að fylgjast með eldri nemendum halda sína hátíðir.
Lesa meira
Sjaldan hefur myndast jafnmikið fjör í Hafnarkirkju en á tónleikum þar s.l. mánudag. Grunnskóla Hornfjarðar var boðið á ,,Tónlist fyrir alla". Þar komu fram fjórir landsþekktir tónlistarmenn, þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Gunnar Hrafnsson, Björn Thoroddsen og Ásgeir Óskarsson dagskráin byggir á íslenska þjóðlaginu "Ljósið kemur langt og mjótt", en tónlistarmennirnir, undir forystu Ólafíu Hrannar fara með lagið í "reisu" um heiminn í stíl og látbragði. Sérstaklega fannst nemendum mikið til koma þegar lagið var sett í rífandi ,,þunga rokks" útsetningu. Ekki varð það leiðinlegra þegar það var rappað og fengu nokkrir að spreyta sig með Ólafíu Hrönn í míkrafóninn.
Lesa meira
Eins og flestum er kunnugt unnu Klakarnir, lið Grunnskóla Hornafjarðar Íslandskeppnina í First Lego League. Þar með varði liðið titil skólans frá í fyrra og tryggði sér rétt til að taka þátt í Evrópukeppninni sem haldin verður í Danmörku í maí á næsta ári. Einn af yfirmönnum keppninnar sagði að það væri skrítið að lið frá sama skóla skyldi vinna annað árið í röð en Klakarnir hefðu einfaldlega verið langbesta liðið. Einnig vann liðið bikar fyrir bestu liðsheildina. Nú vilja þau koma á framfæri þakklæti til Jóns Bakara og Nettó fyrir góðan stuðning. Keppnisandinn hefur ekkert minkað því nú er verið að undirbúa Evrópukeppnina en þau eru staðráðin í að fara og keppa.
Lesa meira
Föstudaginn 7. nóvember tóku nemendur Heppuskóla lagið eftir hádegi, þetta var aldeilis flottur og kraftmikill kór og hann Elvar Bragi kom í skólann og spilaði undir á gítar. Nokkrir nemendur voru búnir að útbúa söngbók sem sungin var spjaldanna á milli. Þetta gerði mikla lukku og það var gott að koma saman og þenja raddböndin á þennan háttinn. Á föstudaginn seinasta var spiluð félagsvist í skólanum, nemendur í 8.-10. bekk spiluðu saman á 21 borði. Úrslit voru tilkynnt í dag og það var Alex Freyr í 10.A sem var hæstur af körlunum, hæst af konunum var Sverrir Brimar í 10.B, hann spilaði sem sagt sem kona. Þeir fengu pizzu í vinning frá Hótelinu.
Lesa meira
Klakarnir, lið Grunnskóla Hornafjarðar vann í dag Íslandskeppnina í First Lego League. Þar með varði liðið titil skólans frá í fyrra og tryggði sér rétt til að taka þátt í Evrópukeppninni sem haldin verður í Danmörku í maí á næsta ári. Einn af yfirmönnum keppninnar sagði að það væri skrítið að lið frá sama skóla skyldi vinna annað árið í röð en Klakarnir hefðu einfaldlega verið besta liðið. Í liði klakanna eru þau Agnar Jökull Imsland Arason, Darri Snær Nökkvason, Guðrún Kristín Stefánsdóttir, Heiðdís Anna Marteinsdóttir, Jóhann Klemens Björnsson, María Hjördís Karlsdóttir, Marteinn Eiríksson, Ragnar Magnús Þorsteinsson, Þorsteinn Geirsson, Una Guðjónsdóttir. Þau eru öll nemendur í 7. bekk en í skólanum hefur skapast sú venja að nemendur þess bekkjar taki þátt í keppninni. Liðstjórar Klakanna eru þau Eiríkur Hansson sem hefur verið liðstjóri allra 7. bekkjar liðanna sem farið hafa í þessa keppni og Magnhildur Gísladóttir umsjónarkennari bekkjarins.
Lesa meira
Þegar þetta er skrifað eru Klakarnir lið Grunnskóla Hornafjarðar að ljúka fyrstu umferð í keppninni Lego hönnunarkeppni 2008 í Öskju við Sturlugötu í Reykjavík. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu á netinu fyrir þá sem hafa áhuga. Úrslita er að vænta klukkan 16 í dag en. Liðið hefur sína eigin bloggsíðu þar sem þau hafa haldið út dagbók um verkefnið og hvernig það hefur gengið fyrir sig s.l. mánuði. Allir eru sigurvegarar.
Lesa meira
Í gær fimmtudaginn 6. nóvember tóku 9. bekkir Grunnskóla Hornafjarðar þátt í forvarnardeginum. Dagurinn er á vegum UMFÍ, ÍSÍ og Bandalags íslenskra skáta og ætlaður fyrir 9. bekki grunnskóla.
|nl|Nemendurnir byrjuðu á því að horfa á myndband sem gefið er út í tilefni dagsins þar sem þjóðþekktir einstaklingar tala um forvarnir og gildi íþrótta og samveru við foreldra. Síðan unnu nemendur í hópum og svöruðu spurningunum
Lesa meira
Við fengum góðan gest í heimsókn til okkar í Nesjaskóla á föstudaginn en þá kom Jóhann Morávek skólastjóri Tónskólans með fullt af hljóðfærum í farteskinu. Hann ræddi við nemendur skólans um það hvernig hljóðfæri urðu til í upphafi og um leið sýndi hann nokkrar gerðir af hljóðfærum og leyfði okkur að heyra hvernig þau hljóma jafnframt því að hann spilaði af geisladiskum tóndæmi.
Lesa meira
Nú er safnkennslan hafin í Grunnskóla Hornafjarðar en hún felst í því að kenna nemendum skólans leiðir til að nýta sér bókasöfnin í leik og starfi. Nemendum er meðal annars kennt að nota bókasafnskerfið Gegni til að finna hvar bækur og gögn eru staðsett í bókasöfnunum ásamt því að afla upplýsinga úr bókum og af neti. Farið er í heimsókn á Bókasafn Menningarmiðstöðvar en þar eru leyst ýmis verkefni og kíkt í skjalageymslu sýslunnar. Þá fá nemendur afhentan bækling um skólabókasafnið en þar er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar.
Lesa meira
Á síðasta föstudag var það 3. D sem sá um að skemmta okkur með leik og söng á hinni hefðbundnu föstudagshátíð skólans. Krakkarnir hófu dagskrána á því að stelpurnar sungu lagið Do re me, næst voru fluttir brandarar af ýmsu tagi. Hekla, Tinna, Díana og Inga Sóley sömdu dans og sýndu. Helgi, Óliver, Aðalsteinn, Sigurður og Bjarmi sungu lagið Hífum í bræður, voða flottir strákar, skiptust á að syngja einsöng, Því næst komu stelpurnar með blokkflauturnar og spiluðu og sungu lagið
Lesa meira
Laugardaginn 18. október var haldinn íþróttadagur fyrir nemendur í 8. 10. bekk og foreldra þeirra. Bekkjartenglar og nokkrir nemendur skólans sáu um skipulagningu og var hún til fyrirmyndar. Sett var upp þrautabraut sem nemendur hönnuðu og áttu bæði foreldrar og nemendur að fara í gegnum hana á tíma. Keppnisskapið var sko aldeilis til staðar jafnt hjá nemendum sem og foreldrum. Besti tíminn hjá fullorðnum í brautinni var 37 sekúndur og 33 sekúndur hjá nemendum.
Lesa meira
Síðast liðinn föstudag sá 2. N um föstudagshátíð skólans. Hátíðin hófst á því að krakkarnir léku Fiðlu-Hansa á flautu og síðan komu þau fram hvert á eftir öðru og sögðu brandara, gátur og sögðu bráðskemmtilega rímbrandara sem má teljast nýtt í brandara flórunni. Þau fluttu svo leikrit um Bakkabræður og las Auðunn fyrir okkur söguna á meðan Benjamín Glói, Einar Karl, Kristján Bjarki og Laufey túlkuðu persónurnar. Malín og Sara Kristín lásu einnig söguna um Ketillaugu og Skeggja í Skeggey, Jóhann las frumsamda
Lesa meira
85% nemenda í 4. - 10. bekk Grunnskólans gekk eða hjólaði í skólann í dag. Af eðlilegum ástæðum var erfitt fyrir nemendur í 1. - 3. bekk að taka þátt í þessu verkefni en þeir koma bara sterkari inn síðar. Gísli Skarphéðinn Jónsson skar sig þó sérstaklega úr en hann hjólaði í skólann alla leið innan frá Stapa eða u.þ.b. níu kílómetra. Frábært afrek það.
Þetta er í fyrsta skiptið sem Grunnskólinn hér tekur þátt í "Göngum í skólann" verkefninu. Þetta er alþjóðlegt verkefni með yfir 40 þátttökulöndum og mörgum milljónum barna. Fyrsti dagur þess var 10. september og svo lauk því í dag 8. október. Þar sem grunnskólinn leggur áherslu á heilsueflingu í skólastarfinu þá verður þetta örugglega árviss viðburður og þó ekki hafi viðrað vel undanfarnar vikur í Hornafirði hefur þátttaka verið mjög góð.
Lesa meira
Síðasta föstudag var undirritaður svo ljónheppin að vera staddur í Nesjaskóla þegar föstudagshátíðin fór fram. Föstudagshátíðir eru hugsaðar með þeim hætti að bekkirnir eru með dagskrá fyrir skólann á föstudögum. Og þennan tiltekna föstudag var það 3. HG sem sá um hátíðina! Það ríkti mikil eftirvænting í litla salnum þegar hátíðin hófst. Fyrstu bekkingarnir sem ekki höfðu upplifað svona hátíð sátu einbeittir og spenntir. Annarsbekkingar ögn reyndari og vissu betur og nemendur í þriðja D sem vissi þetta allt. Á bak við var þriðji. HG, einbeittur, spenntur og með smá frumsýningarkvíði. Dagskráin hófst á kynningu sem níu nemendur fluttu, hver með smá bút úr kynningunni. Þau voru einbeitt og ákveðin og gáfu tóninn hvað varðaði hátíðina.
Lesa meira
Í dag situr nýtt starfsfólk í Grunnskóla Hornafjarðar á námskeiði með Magna Hjálmarssyni um Uppeldi til ábyrgðar. Á námskeiðinu er farið í grundvallaratriði uppbyggingarstefnunnar sem byggir á því að að skapa skilyrði til að börn geti lært af mistökum sínum, snúið aftur til hópsins og vaxið við hverja raun.
Lesa meira
Opnum borgarafundi sem vera átti með menntamálaráðherra kl. 20:00 miðvikudagskvöldið 8. október er frestað um óákveðinn tíma.
Lesa meira
Í kjölfar Menntaþings stendur menntamálaráðuneytið fyrir kynningarfundum um nýja menntastefnu um land allt í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóla. Einnig hefur ráðuneytið kynnt nýja menntastefnu á haustþingum Félags grunnskólakennara. Framundan er mikilvægt starf við að móta áherslur í framkvæmd nýrrar menntastefnu og hvetur menntamálaráðuneytið alla til að leggja sitt af mörkum. Kynningarfundir um nýja menntastefnu eru öllum opnir og er skólafólk, kennarar, nemendur, foreldrar og annað áhugafólk um menntakerfið sérstaklega hvatt til að mæta á fundina, hlýða á erindi og taka þátt í umræðum.
Lesa meira
Námskeið fyrir foreldra og forráðmenn 1. bekkinga var haldið í Nesjaskóla þriðjudaginn 30. september. Námskeiðið hófst á því að Þorvaldur skólastjóri bauð gesti velkomna og rakti í örstuttu máli það sem framundan væri. Að því loknu ræddi Sigríður, annar umsjónarkennarinn í 1. bekk um lestrarnám, hvernig það væri byggt upp, fór í gegnum aðferðarfræðina og nefndi ýmsar gagnlegar aðferðir og leiðir til að efla lestur og lesáhuga. Brynja, hinn umsjónarkennarinn 1. bekkinga ræddi síðan um stærðfræðikennsluna á svipuðum nótum og Sigríður um lestrarnámið.
Lesa meira
Við í 7. bekk erum að læra um trúarbrögð. Við höfum horft á tvær myndir um gyðingdóminn og Islam. Í tölvutíma höfum við farið á netið og leitað okkur upplýsingar um trúarbrögðin, við höfum föndrað bækur með fullt af myndum sem bið skýrum síðan frá. Þegar við vorum að læra um kristna trú bjuggum við til glugga eins og er á mörgum kirkjum og teiknuðum kross í miðjuna, lituðum og skrifuðum Faðir vorið.
Lesa meira
Grunnskóli Hornafjarðar og Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu hafa endurnýjað samstarfssamning sem hefur það að markmiði að gera nemendum Grunnskólans fært að hefja nám á framhaldsskólastigi áður en þeir hafa lokið grunnskólanámi. Það geris með tvennu móti. Annars vegar stunda nemendur nám í valáföngum og fer kennslan fram í FAS, sem greiðir kostnað við þá kennslu. Hins vegar stunda nemendur nám í framhaldsáföngum þar sem kennslan fer fram í Grunnskólanum og sveitarfélagið stendur þá straum af kostnaði við þá kennslu. Samningur GH og FAS er í anda nýrra grunnskólalaga þar sem lögð er áhersla á sveigjanleika milli skólastiga þannig að grunnskólanemendur geti hafið framhaldsskólanám á meðan þeir eru í grunnskóla. Þess má geta að samstarf Grunnskólans og FAS hefur staðið frá því árið 2000 svo segja má að þessir skólar hafið verið vel í stakk búnir til að taka við þessu ákvæði nýrra grunnskólalaga.
Lesa meira
Síðustu daga höfum við Skaftfellingar ekki farið varhluta af haustrigningunum. Ekkert lát virðist vera á þeim og það er reynsla okkar að þær geti staðið linnulítið fram að jólum. Við í Grunnskólanum erum ákveðin á því að það sé gott að vera úti hvernig sem viðrar og því fara nemendur okkar í 1. - 7. bekk út í flestum frímínútum, sama hve rignir mikið. Það er helst ef með rigningunni fylgir mikill vindur að við leyfum nemendum að vera inni. Það er hinsvegar nokkur misbrestur á því að nemendur komi með regngallana með sér í skólann en þeir gera lítið gagn á snaga í forstofunni heima. Þess má líka geta að töluvert er um að nemendur séu í vindgöllum en þeir hafa lítið að segja í svona rigningu. Nú er ekkert annað en gúmístígvélin og regngallinn sem gildir.
Lesa meira
Valhópur í grímusulli er starfandi við Grunnskólann, það var forvitnilegt að fá að vita hvað þau eru að gera í sullinu þannig að við fengum Sejlu og Guðrúnu í 6. bekk til að lýsa þessu nána. "Við krakkarnir í grímusullinu erum að búa til grímur. Við notum ýmist blöðrur eða álpappír. Þeir sem nota blöðrur blása upp blöðru á stærð við hausinn á sér, en þeir sem nota álpappír móta álpappírinn við augun og nefið. Við rífum niður dagblöð og dýfum í
Lesa meira
Forsvarsmenn Arsenalklúbbsins á Íslandi komu hér helgina 12. - 14. september til að heiðra minningu Tómasar Inga Ingvarssonar sem hefði orðið 11 ára þann 14. september. Þeir færðu Grunnskóla Hornafjarðar treyju áritaða af leikmönnum Arsenal en klúbburinn fær eina slíka treyju á ári. Það voru 6. bekkingar og foreldrar þeirra sem tóku við bolnum fyrir hönd skólans ásamt Ólöfu Ósk og Sævari Þór. Knattspyrnudeildin sá um dagskrá með gestum og var þetta hin skemmtilegasta stund. Forsvarsmenn Arsenalklúbbsins færðu áhangendum Arsenal á Hornafirði ýmislegt smálegt með merki félagsins. Þeir vilja hér með koma á framfæri þökkum fyrir góðar móttökur á Hornafirði og fyrir skemmtilegan dag. Heiður og Ingvar fá þakkir fyrir höfðinglegar móttökur og Hótel Höfn fyrir góða þjónustu og liðlegheit.
Lesa meira
Nemendur 10. bekkjar sáu um vígslu nýnema inn í elsta stigið. Um morguninn var 8. bekkingum bannað að sitja í mjúkum sófum setustofunnar. Fram að hádegi var þetta það eina sem busarnir þurftu að ganga í gegnum, en eftir hádegi byrjuðu herlegheitin. 10. bekkingar sáu um að farða, greiða og klæða busana í búninga sem samanstóð af ruslapokum og hárneti. Síðan var þrammað í íþróttahúsið og busarnir sungu sérvalin lög eins og í leikskóla er gaman og stubbarnir. Í íþróttahúsinu þurftu þeir að tilbiðja 10. bekkingana og leika listir sínar. Farið var í ýmsa leiki, spurningakeppni, fílafótbolta og fl. Að lokum var knattspyrnuleikur á milli 10. bekkinga og kennara. Auðvitað unnu kennararnir leikinn 4:0 (að vísu voru
Lesa meira
Í Grunnskólanum er starfræktur í vali ljósmyndahópur, þar er verið að vinna með stafrænar ljósmyndir úr umhverfinu og er ætlunin að hafa ljósmyndasýningu á göngum skólans þegar vinnu lýkur.
Nokkur þemu eru í gangi en það er mynd af speglun í umhverfi, lit, hvað minnir á skólann, auga ofl. alls eru 17 krakkar á aldrinum 9 ára til 12 ára í hópnum. Mikið er að gera þegar hópurinn er að vinna, mikið spurt og spáð. Myndirnar eru flestar í vinnslu ennþá en nokkrar þeirra birtast hér með, ekki náðist að setja inn myndir frá öllum en allflestum. Aðrar myndir birtast síðar.
Lesa meira
Miðvikudaginn 17. september voru bekkjartenglar og stjórn foreldrafélagsins boðuð á fund og farið yfir starfsemi s.l. vetrar og hvað væri framundan í starfi foreldrafélagsins. Ný stjórn var kosin og er hún þannig skipuð: Aðalmenn eru: Erla Berglind Antonsdóttir, Anna Kristín Hauksdóttir og Ragnheiður Sigjónsdóttir. Varamenn eru: Sólveig María Hauksdóttir og Jóna Bára Jónsdóttir. Á heimasíðu skólans
www.hornafjordur.is/grunnskoli/foreldrar er hægt að sjá hverjir eru bekkjartenglar hvers árgangs. Ef foreldrar hafa hugmyndir að fyrirlestrum eða öðru er áhugavert gæti verið fyrir foreldrafélagið vinsamlegast komið því til skila til stjórnarinnar. Við minnum á slóðina
www.heimiliogskoli.is til fróðleiks fyrir foreldra/forráðamenn nemenda.
Lesa meira
Verkefnið ,,Göngum í skólann"- hófst miðvikudaginn 10. sept. s.l. Grunnskóli Hornfjarðar er þátttakandi og hvetur þá sem geta komið því við að ganga eða hjóla í skólann. Þessu verkefni lýkur svo formlega á alþjóðlega "Göngum í skólann" - deginum miðvikudaginn 8. október. Í ár verður lögð áhersla á að börn gangi eða hjóli til og frá skóla. Markmið verkefnisins eru meðal annars:
Lesa meira
Í Grunnskóla Hornafjarðar hefur tíðkast að vinna í þemaverkefnum. Þá aðallega í samfélagsfræðigreinum. Nú er 5. S lagður af stað í Landnám Íslands. Nemendur skrifuðu frétt og tóku myndir.
|nl|Núna er 5.S byrjaður að vinna við þemaverkefni um landnema sem flúðu Noreg og komu til Íslands.Við ætlum að fylgjast með för Leifs heppna Eiríkssonar. Núna erum við að búa til vestur hluta Noregs og skreytum hann með fjöllum, fossum, trjám, grasi, húsum, dýrum, bátum og fiskum.
Lesa meira
Laugardaginn 13. sept. n.k. munu forsvarsmenn Arsenalklúbbsins koma á Hornafjörð. Þeir munu taka þátt í uppskeruhátíð Sindra í 5. 6. og 7. flokki. Ástæðan fyrir komu þeirra er að þeir vilja heiðra minningu Tómasar Inga Ingvarssonar Arsenal aðdáanda með því að færa 6. bekk til eignar treyju áritaða af leikmönnum Arsenal. En næsta sunnudag 12. sept. hefði Tómas Ingi orðið 11 ára.
Lesa meira
Innan grunnskólans er starfrækt nemendaráð sem er skipað fulltrúum nemenda í 6. - 10. bekk. Í 6. - 10. bekk kjósa nemendur sér einn fulltrúa í hverjum bekk í nemendaráðið. Fyrsti fundur vetrarins var svo haldinn í dag og skiptu þá nemendur með sér verkum. Formaður er Óskar Þór Ingvarsson og varaformaður
Lesa meira
Verið er að setja upp bókasafnsútibú í Heppuskóla en það er Menningarmiðstöðin sem vinnur að því.
Lesa meira
Nú hafa nemendur Grunnskóla Hornafjarðar lokið við að hlaupa Norræna skólahlaupið. Allir taka þátt og lágmarksvegalengd er 2,5 km. Þessi uppákoma hefur verið árviss og fá nemendur viðurkenningaskjöl fyrir þátttaka. Þetta er samvinnuverkefni milli Norðurlanda og er sett á til að efla vitund barna og kennara um nauðsyn hreyfingar.
Lesa meira
Auður Lóa Gunnarsdóttir 7.M frá Stórabóli komst áfram í Nýsköpunarkeppni Grunnskólanna. Auður Lóa var með hugmynd sem hún kallar sveitin. En það er tölvuleikur sem miðar út frá íslenskri sveit og störfum sem þar þarf að sinna. Það að komast áfram er stór sigur út af fyrir sig, en í þessum áfanga taka þátt 53 nemendur allstaðar af að landinu og verða þeir í vinnusmiðju þar sem þeir fá hjálp við að útfæra hugmyndirnar í framleiðsluform.
Lesa meira
Skólasetning í Grunnskólanum fór fram s.l. fimmtudag. Nemendum og foreldrar mættu með börnum sínum og áttu stund með umsjónarkennurum og farið var í gegn um þau hlutverk sem við eigum í kennslustofunni og í skólanum. Mjög góð mæting var og sköpuðust skemmtilegar umræður um hlutverkin og tilgang þeirra.
Lesa meira
Í dag tók starfsfólk Grunnskólans fyrstu skrefin í þróunarverkefni sem ber snýst um að bæta námsmat skólans og gera það fjölbreyttara. Skrefin sem tekin voru í dag fólust í því að Ingvar Sigurgeirsson prófessor við menntasvið Háskóla Íslands (áður KHÍ) kom og hélt fyrirlestur um fjölbreytt námsmat og sýndi ýmis dæmi um það. Með því kveikti hann ýmsar hugmyndir hjá starfsfólki sem nú þegar er byrjað að velta fyrir sér hvaða þætti það mun leggja áherslu á í vetur. Þróunarverkefnið mun standa í allan vetur og geta bæði nemendur og foreldrar vænst þess að finna breytingar á fyrirkomulagi námsmats þegar frá líður.
Lesa meira
Skólasetning í Grunnskóla Hornafjarðar fimmtudaginn 21. ágúst kl. 17:00 - 19:00. Nemendur mæta með foreldrum sínum hver í sinn skóla.
Á skólasetningu verður farið yfir helstu atriði í skólastarfinu, nýjar skólareglur, námstilhögun í hverjum árgangi fyrir sig ásamt fleiri mikilvægum atriðum. Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að mæta með börnum sínum og láta yngri börnin þá ganga fyrir. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 25. ágúst.
Lesa meira
Kennara eða leiðbeinanda vantar í 100 % starf í textilmennt (handmennt) á mið- og unglingastig á næsta skólaári. Launakjör samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga við KHÍ.
Skólaliða vantar í 100 % starf í Grunnskóla Hornafjarðar, Hafnarskóla. Hann þarf að geta hafið störf sem fyrst. Starf skólaliða felst fyrst og fremst í ræstingum og eftirliti með nemendum. Launakjör samkvæmt kjarasamningi sveitarfélagsins við stéttarfélög. Umsóknum skal skilað til skólastjóra þar sem fram koma upplýsingar um aldur og reynslu. Frekari upplýsingar gefur skólastjóri í síma 470 8440 / 899 5609, thorgunnur@hornafjordur.is
Lesa meira
Samkvæmt nýjum grunnskólalögum hefur foreldra- og kennararáð verið lagt niður en í stað þess skal kosið Skólaráð við alla skóla. Í grunnskólalögunum segir m.a. "Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Skólanefnd, sbr. 6. gr., getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráðum einstakra skóla ákveðin verkefni þessu til viðbótar.
Lesa meira
Tungumál sem samskiptamiðill var heiti á námskeiði sem haldið var í Grunnskólanum 9. og 10. júní. Námskeiðið var ætlað þeim sem koma að tungumálakennslu hvort heldur sem er í kennslu eða stuðningi. Kennsluaðferðir í tungumálum hafa breyst mikið á síðustu árum og nú þegar farið er að kenna ensku alveg niður í fyrst bekk er mikilvægt að fá nýjar og ferskar hugmyndir. Það var Samuel C. Lefever lektor í ensku við KHÍ sem var leiðbeinandi á námskeiðinu sem tókst í alla staði mjög vel.
Lesa meira
Í lok maí tóku nemendur í 2. – 6. bekk grunnskólans þátt í Unicef-hreyfingunni svokallaðri. Þessir nemendur hlupu og gengu samtals 619,6 km og söfnuðu um leið áheitum. Áheitin skiluðu sér vel og samtals söfnuðu nemendurnir 294.642 krónum. Söfnunarféð úr UNICEF-hreyfingunni fer í alþjóðlegan sjóð UNICEF og er nýtt þar sem þörfin er mest hverju sinni. Við megum koma með tillögu um það í hvað okkar söfnunarfé rennur en hér fyrir neðan er langur listi af mögulegum verkefnum. Ef þið viljið hafa áhrif á valið þá endilega látið Sævar Þór Gylfason vita með því að senda honum tölvupóst á nefangið
saevar@hornafjordur.is.
Lesa meira
Skólaslit Grunnskóla Hornafjarðar fóru fram við hátíðlega athöfn í Íþróttahúsinu á Höfn 3. júní. Mikið fjölmenni var í Íþróttahúsinu enda nemendur um 330 og starfsmenn ríflega 60. Auk hefðbundinna dagskráratriða á skólaslitum voru ýmis tónlistaratriði allt frá einsöng upp í Lúðrasveit. Hápunktur skólaslitanna var þó útskrift 10. bekkinga en í ár luku 35 nemendur grunnskólaprófi. Þess má geta að af þeim luku 33 einum eða fleiri áföngum úr FAS meðfram grunnskólanáminu. Þetta voru áfangar í t.d. þýsku, dönsku, spænsku, grunnteikningu, bókfærslu og ferðamálafræði. Námið í FAS byggir á samstarfsamningi sem gerður var milli Grunnskólans og FAS og skilar þessi samningur sér betur og betur með hverju árinu.
Lesa meira
Þau enduðu þetta skólaár svo sannarlega með stæl nemendurnir sem fóru á Ketillaugarfjall í dag. 4- 8. bekkur gekk Krossbæjarskarð en 39 nemendur og 4 starfsmenn tóku smá lykkju á leiðina og skelltu sér upp á Ketillaugarfjall. Lagt var af stað í blíðskaparveðri í morgun og þrátt fyrir að sólin hyrfi fljótt bak við ský var blíðskaparveður og gott útsýni allan tímann. Á morgun verða svo fyrstu skólaslit Grunnskólans við hátíðlega athöfn í
Íþróttahúsinu á Höfn og hefjast þau kl. 17:00.
Lesa meira
7. bekkur kemur heim milli sjö og hálf átta í kvöld. Úbbs, nei, þau ákváðu að skella sér í sund á Klaustri og koma ekki fyrr en um 20:30. Ef fólk vill fá nánari upplýsingar þá er hægt að hringja í Eygló í síma 8462227.
Síðust daga skólans er oftar brugðið út af hefðbundnu skólastarfi en gengur og gerist yfir veturinn. Sérstaklega á það við um yngri bekkina. Þá er farið að hlýna úti og þolinmælin oft orðin lítil við bóknámið. Þrátt fyrir að bókinni sé sleppt hætta nemendur ekki að læra heldur verður námið meira verklegt og félagslegt. Það er aldrei of mikil áhersla lögð á að þetta nám er jafn mikilvægt og allt annað nám og á þessum dögum eru margir nemendur að vinna sína stærstu sigra.
Lesa meira
Í dag tóku nemendur í 2. - 6. bekk þátt í svokallaðri Unicef hreyfingu. Hún felst í því að nemendur hreyfa sig í ákveðinn tíma og safna með því pening sem rennur til Unicef til hjálpar börnum í neyð. Fyrir nokkrum dögum fóru þessir nemendur heim með umslög þar sem þeir söfnuðu velunnurum sem hétu á þá að fyrir hvern hring sem viðkomandi gengi eða hlypi á íþróttavellinum fengi hann ákveðna upphæð.
Lesa meira
Eins og Hornfirðingar vita þá reið sterkur jarðskjálfti yfir Suðvesturland nú rétt fyrir kl. fjögur. Jarðskjálftinn sem var 6. 1 á Richter átti upptök sín suðvestur af Selfossi. Í Vestmannaeyjum fannst skjálftinn vel sérstaklega hjá þeim sem voru innandyra. Flestir 7. bekkingarnir okkar sem eru í skólaferðalagi í Vestmannaeyjum voru hinsvegar úti við og sumir urðu hans ekki einu sinni varir.
Lesa meira
Veðurguðirnir eru að taka vel á móti okkur í Vestmannaeyjum, hér höfum við átt góðan dag og skoðað það sem dregur ferðamanninn að. Í Herjólfi var svaka gaman, veltingur og fjör. Einhverjir urðu órólegir í maganum en aðrir sváfu og enn aðrir spiluðu. Ferðalagið hófst klukkan 05:15 við íþróttahúsið. Frekar syfjuð og lúin. Kennarar náðu þó að mæta á réttum tíma, og nemendur. Þó svo að allir hafi verið syfjaðir sofnaði enginn, fyrr en í Herjólfi. Við borðuðum nesti á Núpstað, teygðum úr okkur á Hvolsvelli og náðum ferjunni á tilsettum tíma.
|nl|Á morgun förum við í siglingu og skoðum Skansinn, spröngum, skoðum Náttúrugripasafnið og förum í sund..... ;) ;)
|nl|
Lesa meira
Vikuna 13. – 16. maí vorum við nemendur í 10. bekk ekki í venjulegri kennslu í skólanum. Þessir dagar skiptust niður á fyrirlestra frá fyrirtækjum og skyndihjálp hjá honum Guðbrandi Jóhannssyni. Þriðjudagurinn fór í það að fyrst kynnti Guðmundur fyrir okkur það sem við vorum að fara að gera. Siðan var haldið út í Galdur ehf. og Sigurður og Heiðar kynntu fyrir okkur starfsemi fyrirtækisins og sögu. Þar fórum við líka í myndatöku og útkomuna mátti sjá framan á Eystrahorni þá vikuna. Svo fórum við í skyndihjálp sem var mjög fræðandi. Lögreglan átti svo seinasta fyrirlestur dagsins eða hann var meira svona fundur eða spjall.
Lesa meira
Nemendur á miðstigi grunnskólans urðu þess heiðurs aðnjótandi í vor að fá að mála rústirnar niður á Heppu og síðustu daga hafa þeir dundað sér við það ásamt Sigga Palla myndmenntakennara. Málningaþjónustan sá um að grunna veggina á meðan nemendur höfðu samkeppni í hverjum árgangi um mynd sem ætti að fara á veggina. Hver árgangur fékk síðan að mála einn vegg. Í sólinni síðustu daga dunduðu nemendur sé svo við að mála og tengdist myndefnið hjá öllum hafinu.
Lesa meira
Síðastliðinn föstudag var mikið um að vera í Nesjaskóla. Nemendur skólans fóru á leiksýningu í Mánagarði og sáu Smagarðsdýpið mikla. Þennan dag var einnig hinn árlegi umhverfisdagur en þá er tekið til, stéttar sópaðar, gróðursett tré og kartöflur settar niður auk þess sem sú hefð hefur skapast að 3. bekkur tekur að sér að mála girðinguna umhverfis Sunnuhvol.
Lesa meira
Í dag, föstudag, fóru nemendur Hafnar- og Nesjaskóla á leiksýningu hjá hinu alþjóðlega Hypno leikhús frá Berlín. Sýningin var í boði Listahátíðar Reykjavíkur og Listvinasjóðs Hornafjarðar
Sýningin heitir Smagarðsdýpið mikla, eða "Um Marvintýri Purbijan Ranjan Biswas og gríðarlega forvitnisáráttu hans". Í verkinu var boðið uppá sérstaka blöndu af tónlist, brúðuleik og sjónlist í sýningunni. Fylgst var með sjávarskjaldbökunni Purbijan í leit hans að því hvað leynist á botni hafsins. Á leið sinni kynnist hann mörgum skrítnum og áhugaverðum dýrum og er fylgt eftir af tígrishákarlinum dularfulla Sigurkarli Margleypi hinum Þriðja. Eftir því sem kafað er dýpra, verður hafið myrkara og verurnar yfirnáttúrulegri.
Lesa meira
Mánudagsmorguninn 19. maí lögðum við í 3.bekk af stað í ferðalag. Við byrjuðum á því að stoppa við Brunnhólskirkju og fórum þar inn og skoðuðum kirkjuna og fræddumst aðeins um kirkjur og messuhald, okkur fannst kirkjan lítil og mjög falleg. Næsta stopp var í Hrollaugsstaðaskóla þar sem við fengum að fara inn að borða nestið okkar því það var svo mikil rigning og ekki gott að setjast út í blautt grasið.
Lesa meira
Frjálsíþróttasamband Íslands stendur fyrir þríþraut sem nemendum í 6. og 7. bekk gefst kostur á að taka þátt í. Nemendur keppa þá í þremur íþróttagreinum, 400 m hlaupi, hástökki og kúluvarpi og ræður samanlagður árangur úrslitum. 47 grunnskólar tóku þátt víðsvegar af landinu og 64 nemendur komust í úrslit.
Lesa meira
Vorskóli fyrir börn fædd 2002 verður fimmtudaginn 29. og föstudaginn 30. maí n.k. frá kl. 8:20 – 11:00. Það eina sem nemendur þurfa að koma með í skólann er nesti (brauð/drykkur). Foreldrum á Höfn er bent á að koma börnum sínum á næstu biðstöð við heimili sitt eða á Krakkakot/Lönguhóla því bíllinn kemur þar við bæði að morgni og að loknum skóladegi. Mæting á biðstöðvar er kl. 7:50. Í Nesjum, Lóni, Mýrum og Suðursveit sækir skólabíll börnin heim á bæina og í Nesjahverfið.
Lesa meira
Í liðinni viku fór 2 bekkur í vorferð. Að þessu sinni var haldið austur á bóginn og Lónið skoðað. Ferðinni var að heitið upp í Þórisdal og þaðan var gengið inn að Dímu og aurar Jökulsár skoðaðir gaumgæfilega á bakaleiðinni. Þegar komið var til baka í Þórisdal voru gömlu húsin skoðuð og síðan sest niður og borðað nesti.
Lesa meira
Í gær þann 15. maí var haldin vorhátíð í Mánagarði. Hún fór vel fram og var byrjað á því að borða yndislega grillaða hamborgara og kjöt. Svo voru skemmtiatriði eftir 9. bekk og voru þau mjög góð. Krýnd voru konungur og drottning Heppuskóla og það voru þau Iðunn Tara og Freyr.
Lesa meira
Þann 15. maí fór 5. bekkur í Ingólfahöfða. Við keyrðum frá Höfn í Öræfin og fórum út í Hofsnesi og fórum í vagn þaðan upp í Ingólfshöfða. Fyrst fórum við upp sandinn upp á Ingólfshöfða sem var soldið erfitt. Svo fórum við með Einari Sigurðssyni að skoða lunda. Við skoðuðum líka á svartbakshreiður. Svo gengum við smá spöl og þá komum við að RISA stórri sandbrekku og þar fengum við að leika okkur sem var mjög gaman og máttum borða nestið okkar. Næst kom Sigurður að ná í okkur á vagninum.
Lesa meira
Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir vann til verðlauna í teiknimyndasamkeppni Alþjóðalega skólamjólkurdagsins sem Mjólkursamsalan stóð fyrir meðal nemenda í 4. bekk í grunnskólum landsins. Mikill fjöldi teikninga barst í keppnina en tíu nemendur fengu viðurkenningu fyrir teikningar sínar. Með keppninni vill Mjólkursamsalan vekja athygli á mikilvægu hlutverki mjólkur í daglegu mataræði barna. |nl|
Lesa meira
Mikið hefur verið um að vera hjá nemendum í 1. bekk. Þeir hafa verið duglegir í alls kyns skoðanaferðum sem hafa bæði verið til gagns og gamans. Fyrstu ferðinni var heitið að kirkjugarðinum við Laxá þar sem skoðaður var minnisvarði og kirkjugarðurinn sjálfur sem er í mjög svo vinalegu umhverfi.
Lesa meira
Í dag, fimmtudag var haldin síðasta föstudagshátíð vetrarins í Nesjaskóla. En vegna anna nemenda í Nesjaskóla varð að hafa hátíðina á fimmtudegi. Hátíðin hófst með tískusýningu þar sem sýnd var hátískan frá París en samkvæmt kynni hátíðarinnar þá fór bekkurinn í höfuðborg hátískunnar og kynnti sér allra nýjustu strauma og stefnur í þeim málum.
Lesa meira
Mánudaginn 5. maí fórum við í 4 og 5 bekk í Suðursveit. Strax og við komum þangað fórum við að ganga út á Breiðamerkursandi, svo hvíldum við okkur á Jökulsalóninu og þá var keyrt heim að Hrollaugsstöðum. Þegar við komum að Hrollaugsstöðum þá fóru allir að gera tilbúið fyrir kvöldið. Það var blásið í loft dýnurnar og sumir fóru að æfa skemmtiatriði fyrir kvöldvökna. Sumir fóru út að leika sér og síðan fóru svo flestir í fótbolta. Að því loknu fórum við inn að borða. Það var lasagne og kartöflumús í matinn og djús að drekka. Svo eftir matinn fóru allir að leika sér eða æfa.
Lesa meira
29. apríl. Við flugum til Reykjavíkur kl.11:40 og þaðan til Minneapolis. Þegar við komum þangað náðum við nú að villast í nokkra hringi og fengum þá að skoða Minneapolis aðeins, síðan tékkuðum við okkur inn á hótelið, borðuðum á Applebee’s og fórum síðan að sofa. 30. apríl. Við fórum öll saman í Mall of America. Þar fórum við í sædýrasafn og sáum marga skrautlega fiska og önnur sjávardýr. Sumir fóru í tívolí en aðrir voru bara að versla. Eftir þetta fórum við aftur á Applebee’s.
Lesa meira
Á fimmtudag var umhverfisdagur á miðstiginu í grunnskólanum. Þá fóru 4. - 7. bekkingar vítt og breytt um bæinn og tíndu rusl og enduðu daginn á því að taka skólalóðina í gegn. Í hádeginu grilluðu Ingólfur og Stjáni á Kaffi Horninu pulsur handa nemendum og starfsfólki og borðuðu allir úti í blíðskapar veðri. Í hádeginu voru ný leikföng vígð s.s. úti mikado, moonhopper og fleira.
Lesa meira
Við vorum valin til þess að taka þátt í myndatöku fyrir allar auglýsingar á mótinu og svo fóru við í viðtal fyrir háskólann í Minnesota svo var opnunar athöfnin og þar voru kynnt liðinn og öll liðin sögðu takk fyrir á sínu tungumáli, svo sögðu stjórnendurnir frá aðalatriðunum og viðburðunum mótsins. Opnunar athöfnin fór fram í karla körfuboltahöllinni en heimastöðvarnar okkar voru í kvenna körfuboltahöllinni. Eftir opnunathöfnina var vísinda og eðlisfræði sýning sem var mjög fræðandi og skemmtileg.
Lesa meira
Hægt er að skoða myndir úr legókeppninni inn á www.umn.edu. Þar er mynd af okkar fulltrúum á forsíðunni eins og er.
Halló Hornfirðingar við erum komin alla leið! Ferðin gekk vel þó að við höfum villst aðeins á leiðinni á hótelið svo fórum við að borða á Appelbee's og maturinn var mjög góður og límonaðið þar er líka mjög gott. Núna er klukkan hjá okkur næstum níu að morgni til og við erum á leiðinni í morgun mat og svo ætlum við í Mall of America.
Kveðja Ísjakarnir
Lesa meira
Í morgun fóru Ísjakarnir okkar með Arnarflugi til Reykjavíkur þaðan sem ferðinni er heitið til Minneapolis í Bandaríkjunum síðdegis í dag. Í Minneapolis keppa Ísjakarnir á Opna Ameríska Legomótinu fyrir hönd Íslands. Eins og Hornfirðingar muna þá sigruðu Ísjakarnir First Lego League keppnina á Íslandi sem haldin var 10. nóvember s.l. í Reykjavík og unnu sér þar með inn rétt til að keppa fyrir Íslands hönd á erlendri grundu. Í ár er ekkert Evrópumót í Legókeppninni og því þurftu íslensku keppendurnir að leita út fyrir álfuna og fyrir valinu varð Opna Ameríska 1. – 3. maí http://www.hightechkids.org/.
Lesa meira
Í morgun bauð foreldrafélag grunnskólans öllum nemendum í leikhús í Sindrabæ. Þessi leiksýning var um Sæmund fróða. Sæmundur vildi verða fróður maður. Sæmundur var leikinn af Pétri Eggertz. Hann fór til útlanda til að læra latínu af því að fróðustu menn kunnu latínu. Hann fór fyrst til Noregs og spurði um næsta skóla, en hann var í Þýskalandi. Svo fór hann til Danmerkur og spurði aftur til vegar. Konan sagði honum að ganga til Þýskalands. Þá var honum bent til Svartaskóla, fór hann í skólann og sat þar við lærdóm í þrjú ár. Hann plataði kölska tvisvar eftir það áður enn hann fór heim.
Lesa meira
Í gær var haldin fyrsta árshátíðin undir merkjum Grunskóla Hornafjarðar.
|nl|Ákveðið var að oddatölubekkir skólans sæju um skemmtiatriðin og ekki hægt að segja annað en að vel hafi tekist til.
Lesa meira
Í sameinuðum grunnskóla breytast ýmsir hlutir og eitt af því er árshátíðin. Nú ætlum við að halda sameiginlega árshátíð með því að bjóða foreldrum og nemendum á sýningu til okkar. Það verða oddatölubekkirnir sem sjá um skemmtunina en hinir fá að njóta þess að horfa á þetta árið en sýna að sjálfsögðu á næsta ári. 10. bekkur sér um sölu á sýningunni og að innheimta aðgangseyri.
Aðgangseyrir verður 200 kr á árshátíðina, bæði fyrir börn og fullorðna en þó þarf hver fjölskylda ekki að greiða meira en 500 kr.
Það verða tvær sýningar, sú fyrri kl. 17:00 fyrir nemendur og fjölskyldur í 1. – 5. bekk. Síðari sýningin verður kl. 18:30 og er sú sýning fyrir nemendur og fjölskyldur í 6. – 10. bekkinga. Ef það hentar fólki alls ekki að fara á þá sýningu sem því er ætlað þá er allt í lagi að koma á hina sýninguna. Þetta er einungis gert til að hafa einhverja stjórn á aðsókninni.
Lesa meira
Við lögðum á stað klukkan 8:30 og vorum rosalega spennt. Fyrsta stopp var hjá Jökulsárslóni síðan var keyrt að Hofgarði þar sem við gistum. Þegar við komum að Hofgarði fórum við inn með dótið okkar og síðan var okkur keyrt í Skaftafell. Þar hlustuðum við á Regínu þjóðgarðsvörð og Hafdísi aðstoðarþjóðgarðsvörð. Svo var farið í langa göngu inn í Bæjarstaðarskóg, þar stoppuðum við á mjög fallegum stað og borðuðum nestið okkar. Við fengum öll heitt kakó en Þórgunnur var með prímusa, pott og ketil, það var rosalega hressandi. Eftir klukkutíma hlé við að borða og leika okkur í fossinum fórum við að hlusta á Hafdísi, hún sagði okkur frá trjánum og mörgu öðru fræðandi.
Lesa meira
Nemendur í 6. og 7. bekk Grunnskóla Hornafjarðar koma úr námsferðinni í Öræfum kl. 17 - 17:30.
Árshátíð Grunnskólans í Hofgarði verður haldin fimmtudagskvöldið 17. apríl kl. 20:00.
Aðgangseyrir er kr. 1500,- (kaffiveitingar innifaldar) og skólablaðið er selt á kr. 500,
Nemendur skólans eru 10 og þau taka öll þátt í að flytja u.þ.b. klukkustundar langa dagskrá. Að þessu sinni er umgjörðin tengd heimabyggðarverkefni 8. bekkjar, sem þær tóku þátt í ásamt nokkrum öðrum skólum á landinu. Hugmyndavinna þeirra í verkefninu kemur til skila í þessari dagskrá.
Allir eru velkomnir
Nemendur og kennarar
Lesa meira
SAFT, vakningarverkefni um jákvæða og örugga netnotkun barna og unglinga á Netinu og tengdum miðlum, stendur fyrir opnum málþingi í Nýheimum mánudaginn 21. apríl kl. 20:00. Markmið málþingsins er að draga annars vegar fram sýn nemenda og hins vegar foreldra og kennara á helstu kostum og göllum Netsins. Einnig verður áhersla lögð á að fá fram framtíðarsýn hópanna varðandi örugga og ánægjulega notkun og þróun Netsins. Þátttakendur vinna fyrst í tveimur málstofum en málþinginu lýkur með sameiginlegri málstofu nemenda, foreldra og kennara þar sem gerð verður grein fyrir niðurstöðum.
Lesa meira
Í dag kom Guðlaug Erla Gunnarsdóttir í heimsókn í skólann og var með fræðslu um uppeldi til ábyrgðar bæði fyrir starfsmenn og foreldra. Guðlaug Erla Gunnarsdóttir er aðstoðarskólastjóri í Álftanesskóla á Álftanesi en þar hefur verið unnið eftir kenningum Uppeldis til ábyrgðar í nokkur ár. Meistaraprófsverkefni Guðlaugar Erlu fjallar um Uppeldi til ábyrgðar og er hún einn af brautryðjendum stefnunnar hér á landi.
Lesa meira
Í morgun var sú nýbreytni í kennslu 6. og 7. bekkjar að fenginn var "gestakennari". Fagið sem var til umfjöllunar var jarðfræði og kennarinn er Gísli Arason sem Hornfirðingum er að góðu kunnar.
Gísli er eins og sagt er kominn af léttasta skeiði , en hann er á 91. aldurári. Það kom samt ekki í veg fyrir að hann næði prýðisgóðu sambandi við börnin sem hlýdddu á hann útskýra hinar ýmsu steintegundir sem hann hefur fundið og safnað.
Það sem Gísli sýndi og kynnti börnunum voru m.a.steingerðar skeljar. Þær fundust á Hallmundarstaðakambi við Húsavík. Hinar tegundirnar eru fengnar á okkar svæði hér í A- Skaftafellssýslu. Þar má nefna baggalút, jaspís og bergkristalla. Einnig djúðbergið gabbró og líparít. Er þá fátt eitt talið.
Lesa meira
Þetta byrjaði allt þegar að við skráðum okkur í heilsuátakið sem var í gangi fyrir páska, þá fórum við í eitthvern pott á Rás 2. Svo fékk Rósa (kennarinn okkar) tölvupóst og þá kom í ljós að við höfðum verið dreginn út. Allir voru búnir að ímynda sér trékörfu með hinum ýmsu ávöxtum en í vikunni fengum við girnilegan ávaxtabakka sendan í skólann. Þetta heilsuátak gekk útá það að hreyfa sig sem mest á daginn og skrá svo daginn eftir. Að meðaltali hreyfðu sig allir a.m.k 1 klst. á dag.
Lesa meira
Mánudaginn 14. apríl kl 12 verður haldin almennur fræðslufundur fyrir foreldra í Sindrabæ.Á fundinum ætlar Guðlaug Erla Gunnarsdóttir að fara yfir helstu þætti uppeldiskenningarinnar Uppeldi til ábyrgðar og skýra út á hvað hún gengur. Eins og foreldrum er kunnugt hefur starfsfólk grunnskólans unnið að því að tileinka sér þessa kenningu í vetur og ætlar að halda því áfram. Mikilvægt er fyrir foreldra að vita út á hvað þessi hugmyndafræði gengur þannig að þeir geti stutt við þá vinnu sem fram fer í skólanum og nýtt sér kosti þessarar kenningar heima við því þeir eru vissulega margir.
Lesa meira
Nú í vor verða íslensku menntaverðlaunin afhent í fjórða sinn.
Verðlaun þessi eru sannkölluð þjóðarverðlaun því hver og einn getur sent inn sínar tilnefningar.
Við höfum flest skoðanir á því hvað sé góður kennari, frábært námsefni ellegar góður skóli.
Því viljum aðstandendur verðlaunanna hvetja alla til að senda inn tilnefningar um þá sem þeir telja að hafi gert góða hluti og eigi skilið að fá íslensku menntaverðlaunin, og þannig vekja athygli á því sem vel er gert í íslenskum grunnskólum.
Lesa meira
Það er alltaf gaman að segja frá þegar fyrrverandi nemendum skólans gengur vel á nýjum stöðum og jafnvel í nýju landi. Einn af þessum nemendum er Þórdís Imsland en hún býr núna í Danmörku. Skólinn sem Þórdís gengur í heitir Havnbjergskole og er á eyjunni Als á suður jótlandi. Árlega er haldinn melodi grandprix keppni og tóku 14 skólar þátt í keppninni. Keppnin snýst um tónlist eins og nafnið gefur til kynna og þurfa krakkarni sjálf að semja lagið, útsetja og flytja. Skemmst er frá að segja að Þórdís og félagar hennar í skólanum unnu keppnina með glæsibrag.
Lesa meira
Þá er dvöl krakkanna að Laugum í Sælingsdal lokið og er reiknað með að þau komi heim mill klukkan 19:00 og 19:30. Rútan mun stoppa við Mánagarð og síðan við Heppuskóla. Ferðin hefur gengið vel og allir eru hressir og kátir.
Lesa meira
Nemendur í 8. bekk grunnskóla Hornafjarðar fóru s.l. þriðjudag í skíðaferð í Oddsskarð. Á þriðjudaginn gátu krakkarnir skíðað til klukkan 17:00 og þá var farið í sund og snæddur kvöldverður. Um kvöldið var síðan slappað af eftir strembin dag. Í dag, miðvikudag var barnalyftan í Oddskarði opnuð fyrir krakkana klukkan 10:00 og hafa þau átt fínan dag á skíðum.
|nl|
Lesa meira
Gabríel Örn Björgvinsson frá Grunnskólanum á Djúpavogi sigraði stóru upplestrarkeppnina sem haldin var í Hafnarkirkju í gær. Í verðlaunasætum lentu einnig Dóra Björg Björnsdóttir og Ingvi Þór Sigurðsson. Sparisjóður Hornfjarðar var sá aðili sem hefur styrkt keppnina undafarið og var svo einnig nú. En peningaverðlaun eru fyrir þrjú fyrstu sætin.
Lesa meira
Allt gengur eins og í sögu hjá 9. bekk, en eins og alþjóð veit eru þau núna stödd að Laugum í Sælingsdal. Í dag átti Símon afmæli og vitanlega var bökuð handa honum afmæliskaka. Seinna í dag munu krakkarnir ganga á Tungustapa og þar verður þeim sögð þjóðsagan um Álfakirkjuna í Tungustapa. Í kvöld fá þau síðan heimsókn frá 10. bekk í Búðardal og verður þá örugglega mikið fjör.
|nl|
Lesa meira
Í Nesjaskóla er mikið byggt og mokað þessa dagana enda hafa veðurguðirnir verið örlátir á byggingarefni við okkur undanfarið.
Lesa meira
Ferð nemenda að Laugum á sunnudag gekk mjög vel og voru ferðalangarnir komnir að Laugum í Sælingsdal fyrir kl. 21.00. Á mánudag var nemendum strax skipt í hópa og hafist var handa við hópavinnu sem verður út vikuna. Snjór er yfir öllu fyrir vestan og voru nemendur duglegir að nota tækifærið að vera úti og leika sér í snjónum þegar tími gefst til.
Lesa meira
Fleiri Myndir af 6. bekkingum
-
10.3.2008
Fréttir Grunnskóli
Hér koma fleiri myndir af 6. bekkingum að flytja verkefnin sín
Á hverju ári er fastur liður í námi barna í Grunnskóla Hornafjarðar að fjalla um tiltekna bók sem kennari velur. Nú var komið að sjötta bekk og í dag (mánudag) sýndu nemendur afrakstur vinnu sinnar. Að þessu sinni varð sagan Saltfiskar í strigaskóm fyrir valinu en hún er eftir Guðrúnu H.Eiríksdóttur. Það var gert með þeim hætti að bókinni var skipt bróðurlega á milli allra nemandanna sem komu komu upp í ræðupúlt og fluttu sína ritgerð.
Lesa meira
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fer fram í Hafnarkirkju þriðjudaginn 11. mars kl. 16:00. Þetta er í áttunda skiptið sem nemendur á Djúpavogi og Hornafirði taka þátt í keppninni. Fyrir 11 árum var haldin upplestrarkeppni í Hafnarfirði og er það upphafið að þessari keppni sem nú er haldin á landsvísu. Skemmtileg hefð hefur skapast í kringum keppnina hér á suðausturlandi og er öruggt að hún er komin til að vera. Á degi íslenskrar tungu 16. nóvember hefst undirbúningur nemenda. Eftir áramót er haldin bekkjarkeppni og síðan fer fram skólakeppni en þá kemur í ljós hvaða keppendur fara og taka þátt í lokahátíðinni.
Lesa meira
Eftir kurteisisvikuna sem við tókum í Grunnskólanum var tekið á framkomu við skólafélagann og aðra sem við umgöngumst hvern dag. Almennt var talið að það að vera kurteis gæti hjálpað okkur að bæta framkomu okkar. Ljóðið sem kemur hér á að höfða til okkar allra og ættum við taka boðskap þess til fyrirmyndar.
Lesa meira
Föstudaginn 29. febrúar fór skólakeppni stóru upplestrarkeppninnar fram í Nýheimum. Þau sem komust áfram í lokakeppnina eru; Ásdís Pálsdóttir, Dóra Björg Björnsdóttir, Ingvi Þór Sigurðsson, Siggerður Aðalsteinsdóttir, Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir, Sædís Harpa Stefánsdóttir, Vigdís María Borgarsdóttir, Þorgeir Dan Þórarinsson og Þorkell Óskar Vignisson.
Lesa meira
Í dag var nemendum grunnskólans boðið á blústónleika í Sindrabæ. Þar spilaði hljómsveitin ADHD 800 fyrir nemendur sem komu í tveimur hópum í Sindrabæ. Fyrst 1. – 5. bekkur og síðan 6. – 10. bekkur. Hljómsveitarmeðlimir kynntu hljóðfærin sem þeir spiluðu á og sögðu hver væri galdurinn á bak við jassinn og leyfðu nemendum að taka þátt með því að kalla og klappa. Hljómsveitin er skipuð fjórum tónlistarmönnum og eru tveir þeirra "Meisalingar" eins og þeir kölluðu sig, þeir bræður Óskar og Ómar Guðjónssynir. Auk þeirra eru í hljómsveitinni Magnús Tryggvason Elíassen og Davíð Þór Jónsson.
Lesa meira
Þá eru nemendur í 6. bekk komnir heim úr vel heppnuðu skíðaferðalagi í Oddsskarð. Þar renndi fólk sér á skíðum og snjóbrettum í tvo daga. Þrátt fyrir að fæstir hefðu komið á skíði áður gekk fólki vel að ná grunnatriðum skíðaíþróttarinnar og komu þreyttir og sælir heim.
Lesa meira
Þann herrans dag 26. febrúar héldu efstu bekkir Grunnskóla Hornafjarðar sitt Þorrablót. Skemmtiatriðin voru alls ekki af verri endanum, enda vel æfð og uppsetningin skemmtileg. Kynnar kvöldsins voru Kristín Hallsdóttir og Sveinbjörg Zophoníasdóttir, og þau sem sáu um skreytingar og uppsetningu skemmtiatriðana voru 10. bekkirnir. Maturinn var auðvitað þorramatur og átu allflestir krakkarnir hangikjöt og harðfisk, og nokkrir treystu sér út í hákarl, sviðasultu og hrútspunga. Undir servíettunum voru svo nefndir happadrættismiðar, veglegir vinningar sem voru veittir í boði Nettó. Þegar flestir voru búnir að borða voru sungin þorralög og afmælissöngur fyrir Guðmund Inga og Sindra Örn.
Lesa meira
Í dag fóru nemendur í 6. bekk í skíðaferðalag í Oddskarð og munu skemmta sér þar á skíðum í dag og á morgun. Gott veður var í Oddskarði þegar okkar fólk kom þangað, logn og örlítil ofankoma. Í lok dagsins voru allir farnir að renna sér á skíðunum og spenningur fyrir að halda áfram á morgun.
Krakkarnir koma heim kl. 16:45.
Lesa meira
Þann 21. febrúar sl. fóru um það bil 50 krakkar frá Grunnskólanum í Hornafirði úr 8. – 10. bekk á hina frægu keppni, Skólahreysti. Keppnin var haldin á Egilstöðum annað árið í röð og verður keppnin bara stærri með árunum.
|nl|Þess má til gamans geta að áhorfendamet var slegið eða um 1000 áhorfendur mættu í íþróttahúsið á Egilstöðum.
Lesa meira
Undanfarin ár hefur verið Jón Pétur frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru komið og kennt börnum í Grunnskóla Hornafjarðar dans með góðum árangir. Þessa vikuna hefur danskennsla verið í fullum gangi hjá 1. – 7. bekk og þar hafa nemendur fengið tækifæri á að kynnast leyndardómum danslistarinnar.
Lesa meira
Í dag var bekkjakeppni stóru upplestrarkeppninnar. Þá kepptu nemendur í hvorum bekk fyrir sig og komust 6 áfram úr hvorum bekk. Þeir sem áfram komust voru Alexander Alvin Einarsson, Ásdís Pálsdóttir, Dóra Björg Björnsdóttir, Eiríkur Snær Jóhannesson, Ingvi Þór Sigurðsson, Jara Kjartansdóttir, Siggerður Aðalsteinsdóttir, Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir, Sædís Harpa Stefánsdóttir, Vigdís María Borgarsdóttir, Þorgeir Dan Þórarinsson og Þorkell Ó Vignisson.
Lesa meira
Í dag er viðtalsdagur í grunnskólanum. Nemendur mæta þá í viðtal til umsjónarkennarans með foreldrum sínum. Að þessu sinni eru öll foreldraviðtöl í Heppuskóla og reynt var að samræma viðtalstíma hjá systkinum eftir því sem við var komið. Með þessu er reynt að koma sem mest til móts við foreldra og gefa þeim færi á að hittast í anddyrinu í skólanum, spjalla þar saman og skiptast á skoðunum.
Á morgun er skipulagsdagur í grunnskólanum og því frí hjá nemendum.
Lesa meira
Það var mikið um að vera á öskudag í grunnskólanum. Á öllum skólastigum mætti undarlegasta fólk í skólann og allstaðar var öskudagsball. Hér koma nokkrar myndir frá deginum
Lesa meira
Á morgun hefst söfnun á vegum ABC hjálparstarfs víðsvegar um land. Söfnunarféð í ár rennur til byggingar heimavistar í Pakistan og til byggingar heimavistar í Kenýa en leiguhúsnæðið þar er allt og lítið og óhentugt. Söfnunarféð rennur óskert til þessara málefna. Síðustu ár hefur 4. bekkur grunnskólans safnað hér um slóðir og verður það einnig svo í ár.
Lesa meira
Eins og flestum er kunnugt um var Eiríkur Hansson kennari og Ísjakarnir, legó lið skólans, valin Hornfirðingur ársins 2007. Það er mikill heiður fyrir allan skólann að fá þessa útnefningu og erum við svo sannarlega stolt af henni. Nú hefur verið ákveðið að Ísjakarnir fari til Minneapolis og keppi þar fyrir hönd Íslands á Opna Ameríska mótinu 1.- 3. maí næstkomandi. Ísjakarnir hafa þegar hafið undirbúning fyrir keppnina því snúa þarf öllu efninu á ensku auk þess sem þau ætla að bæta og breyta ýmsu í brautinni sjálfri.
Lesa meira
Að vanda hófst bóndadagur í Hafnarskóla á því að hraustir drengir skólans ”buðu þorra í garð” að gömlum sið með því að hlaupa eða hoppa kringum skólann, sumir berfættir, á brókinni eða í annarri buxnaskálminni og sumir jafnvel berir að ofan. Það er gamall siður að á fyrsta degi þorra áttu bændur að bjóða þorra í garð eða fagna þorra með því að fara fyrstir á fætur. “Áttu þeir að fara ofan og út í skyrtunni einni, vera bæði berlæraðir og berfættir, en fara í aðra brókarskálmina og láta hina svo lafa eða draga hana eftir sér á öðrum fæti, ganga svo til dyra, ljúka upp bæjarhurðinni hoppa á öðrum fæti í kringum allan bæinn, draga eftir sér brókina á hinum og bjóða þorra velkominn í garð eða til húsa” (Saga daganna 1977 bls. 19) Margir drengjanna vildu bæta um betur og fara úr fleiru en forfeður þeirra gerðu og létu þar snjó og kulda engin áhrif á sig hafa. Á síðustu árum hefur þessi siður verið endurvakinn í skólanum og aðlagaður þeim aðstæðum sem þar eru. Mikill meirihluti drengja tók þátt í þessum viðburði að þessu sinni og skemmtu sér hið besta.
Lesa meira
Eins og margir foreldrar hafa orðið varir við hefur verið mikið um forföll hjá kennurum og starfsmönnum skólans að undanförnu og oft hefur verið erfitt að manna þessi forföll svo vel sé. Orsök forfallanna eru margvísleg en fyrst og fremst eru það þó veikindi og námsleyfi og hefur þetta mest bitnað á unglingastiginu að undanförnu. Það er neyðarúrræði að þurfa að senda nemendur heim eða láta þá vera án kennara hluta af kennslustund en þó hefur það komið fyrir þegar ekki hafa verið kennarar til að manna kennsluna.
Lesa meira
Um 300 manns hlýddu á fyrirlestra Fríðu Rúnar Þórðardóttur næringarfræðings í Sindrabæ í gær. Fríða Rún sem kom hingað á vegum grunnskólans og foreldrafélagsins hélt sex fyrirlestra og samtals mættu á fyrirlestrana um 300 manns. Á fyrirlestrunum lagði hún áherslu á að halda réttu jafnvægi á milli hreyfingar, hollustu og hugarfars. Þessir þrír þættir væru allir jafn mikilvægir þegar kemur að heilbrigðu líferni og fór hún yfir ýmis atriði sem geta hjálpað okkur við að halda þessu jafnvægi.
Lesa meira
Nýtt símanúmer hefur verið tekið í notkun í Grunnskóla Hornafjarðar 470 8400. Ef hringt er í það er svarað á skiptiborði og gefið samband áfram eftir því sem við á. Á næstu dögum detta gömlu númerin úr sambandi.
470 8400
Lesa meira
Fimmtudaginn 10. janúar kemur Fríða Rún Þórðardóttir næringarfræðingu í heimsókn til okkar og fjallar um mataræði, næringu, hreyfingu og fleira. Hún hittir alla nemendur í 6. - 10. bekk auk þess sem hún ræðir við starfsfólk skólans. Síðdegis verður hún með tvo opna fyrirlestra í Sindrabæ. Sá fyrri verður kl. 17:00 og er hann fyrst og fremst ætlaður íþrótta- og heilsuræktarfólki, þjálfurum, foreldrum írþóttafólks og öðru áhugafólki um íþróttir og næringu. Þar fjallar Fríða Rún m.a. um mikilvægi þess að huga vel að mataræði við þjálfun, hvernig samsetning fæðunnar getur haft áhrif á árangur, þyngd og fleiri áhugaverð atriði.
Lesa meira
Nemendur á elsta stiginu hafa haft ýmislegt fyrir stafni núna síðustu dagana fyrir jól. Á þriðjudaginn var sameiginleg skólaskemmtun þar sem hægt var að spila og spjalla og eiga notalega stund yfir kakóbolla og smákökum. Íþróttadagur var í gær, miðvikudag og tóku nemendur þátt í ýmsum þrautum undir styrkri stjórn Steinars íþróttakennara. Mikil stemning var í íþróttahúsinu og tóku krakkarnir hraustlega á. Stofujól voru síðan í dag, fimmtudag, kl. 11:00-12:00 og þá komu nemendur saman ásamt umsjónarkennara og áttu rólega samverustund.
Lesa meira
Að loknum stofujólum hefst jólafrí í Grunnskóla Hornafjarðar. Kennsla hefst aftur föstudaginn 4. janúar samkvæmt stundatöflu.
Starfsfólk grunnskólans sendir sínar bestu jóla og nýjárskveðjur til allra Hornfirðinga og þakkar samstarfið á árinu sem er að líða.
Lesa meira
Leikhópurinn Lopi hefur á síðustu dögum verið að sýna leikverkið Jólagjafalistann í Mánagarði undir leikstjórn Magnúsar J. Magnússonar. Verkið fjallar um hóp krakka sem reyna að færa jólasveinunum jólagjafalistann því pósturinn er veikur. Á leiðinn hitta þau margar undarlegar verur. Öllum nemendum grunnskólans var boðið á sýningu auk þess sem tvær almennar sýningar voru og ein upptökusýning. Almenn ánægja var með sýninguna jafnt hjá börnum sem fullorðnum og voru yngstu nemendur grunnskólans sérstaklega ánægðir enda efnið sérstaklega vel við hæfi þeirra.
Lesa meira
Liltlu Jólin í Nesjaskóla miðvikudaginn 19.des kl 17:30- 18:30
-
18.12.2007
Fréttir Grunnskóli
Á morgun miðvikudag kl 17:30 til 18:30 verða litlu jólin haldin í Mánagarði. Akstur fram og til baka verður í boði fyrir þá sem það vilja og fara rúturnar frá fyrstu stöð kl 17:00. Hefðbundin dagskrá með leik og söng auk þess sem jólasveinninn kemur í heimsókn og færir nemendum skólans glaðning. Við bjóðum foreldra velkomna til að njóta þessarar stundar með okkur.
|nl|
Nú er 2. HL búin að halda föstudagshátíð fyrir okkur hér í Nesjaskóla. Krakkarnir flutt ævintýrið um Rauðhettu og úlfinn þar sem Óli Björn lék sjálfan úlfinn, Díana lék Rauðhettu, Sóley Lóa lék ömmuna og Dagbjört var veiðimaðurinn sem öllu bjargaði.
Lesa meira
Jólasöngur hefur ómað um ganga Heppuskóla nú í desember. En nemendur í 8. – 10. bekk hafa hist á sal og sungið jólalög undir stjórn Jóhanns Moravék. Krakkarnir hafa tekið vel undir í söngnum og hafa þetta verið virkilega skemmtilegar stundir, sem lífgað hafa upp á skóladaginn. Í dag, föstudag, tóku þeir bræður Andri Snær og Bragi Fannar nikkurnar með í skólann og spiluðu nokkur jólalög við góðar undirtektir samnemenda og kennara.
Lesa meira
Fimmtudaginn 29 nóvember sl. Var haldinn fullveldisfagnaður á vegum Þrykkjunnar og Grunnskólans. Elsta stigið (8.-10. bekkur) stóð fyrir þessari geysimögnuðu skemmtun. Skemmtinefndin var búin að æfa hin frábæru skemmtiatriði í mánuð og skreytinefndin var búin að vinna hörðum höndum við frábærar skreytingar. Einnig var búið að panta Dj Óla Geir, fyrrverandi herra Ísland, til að halda uppi stuðinu fram eftir kvöldi. Krakkarnir byrjuðu að týnast inn um kl. 19:30 þ.e.a.s þegar húsið opnaði. Þá var skreytinefndin tilbúin með rosa flottann fordrykk. Þegar flestir voru mættir á staðinn hófst gamanið með söngvakeppni og pizzu.
Lesa meira
Í dag komu rithöfundarnir Hrund Þórdóttir og Sigurður Pálsson og lásu upp úr bókum sinum Loforðið og Minnisbók´. Hrund las upp úr Loforðinu í Hafnarskóla og Sigurður upp úr Minnisbókinni í Heppuskóla. Þau munu síðan lesa upp í Pakkhúsinu í kvöld ásamt öðrum rithöfundum.
Lesa meira
Fyrsta jólasamveran á sal var í dag, nemendur sungu af krafti og auðheyrt að jólasöngurinn var kærkominn og skemmtileg tilbreyting í skólastarfinu.
Lesa meira
Snjór, snjór loksins kom alvöru snjór. Það er ekki oft sem við Hornfirðingar fáum að njóta þess að snjór liggi yfir öllu en þannig var það nú á mánudaginn og það sem meira var að hann var úrvals byggingarefni. Krakkarnir í Nesjaskóla nýttu sér þann kost óspart og rúlluðu upp stærðar snjóboltum í gríð og erg.
Lesa meira
Á föstudaginn var dótadagur í Nesjaskóla. Dótadagur er hefðbundin dagur í skólastarfinu og er haldin u.þ.b. fjórum sinnum á ári. Þrír dagar þar sem nemendur koma með innidót og einn til tveir þar sem komið er með útidót. Þegar leiktíminn hefst er opnað inn í allar stofur og nemendur fá að leika sér um allan skólann.
Lesa meira
Í liðinni viku komu elstu nemendur leikskólans í heimsókn ásamt kennurum sínum. Krakkarnir fóru í frímínútur með nemendum Nesjaskóla, heimsóttu síðan bekkina, skoðuðu íþróttahúsið og mötuneytið ásamt því að kynna sér myndmenntakennslu hjá Magnhildi.
Lesa meira
Unga fólkinu til mikillar gleði var alhvítt í morgun og góður snjór til að leika sér í. Kennarar notuðu því tækifærið og fóru út með nemendum að leika sér. Við höfum lært það að fyrsti tíminn er bestur þegar nota á snjóinn. Í hádeginu hafði hlýnað verulega og spáð er rigningu og hlýindum næstu dag. En það var gaman að fá þennan snjó og kannski endist hann okkur í nokkra daga.
Lesa meira
Undanfarna þrjá daga hefur verið þemavika í elstu bekkjum Grunnskólans þ.e.a.s 8.-10. bekk. Meginþemað var 7. áratugurinn í máli og myndum, söng og gleði. Sýning á vinnu nemenda í þemavikkunni var í dag föstudaginn 23. nóvember. Fjölmargir heimsóttu okkur á milli kl. 11:30-13:30 til að skoða afrakstur vikunnar. Hljómsveit flutti nokkur lög, nemendur sýndu Jive og einnig var tískusýning í gangi. Auk þess voru aðrir með sýningar eins og t.d. Ólympíuhópurinn, hópur sem fjallaði um Víetnamstríðið, bílahópurinn og fjölmiðlahópurinn gaf út blað í gær. Nokkrir nemendur sáu um að baka vöfflur og selja og runnu þær út eins og heitar lummur.
Lesa meira
Eitt af þeim verkefnum sem unnið er að þessa dagana í grunnskólanum er að móta stefnu í umhverfismennt. Af því tilefni sótti skólinn um að ganga til liðs við verkefnið "Skóli á grænni grein" en það er verkefni sem Landvernd stendur fyrir. Með þeirri aðild gefur grunnskólinn út yfirlýsingu um að hann vilji auka menntun og þekkingu og efla virðingu fyrir náttúru og umhverfi lands og hafs. Einnig vill grunnskólinn stuðla að góðri umgengni og sjálfbærri nýtingu allra auðlinda og vinna gegn hvers konar mengun og umhverfisspjöllum.
Lesa meira
Í tilefni góðs gengis í First Lego League bauð bæjastjórn Ísjökunum í pizzuveislu á hótelinu. Við það tækifæri afhenti bæjarstjórinn okkar Hjalti Þór Vignisson, Eiríki Hanssyni Sögu Hafnar fyrir framlag hans til legóhópsins en hann hefur eins og flestir vita leitt starfið frá upphafi. Hjalti hvatti nemendur til að líta á þennan sigur sem einn áfanga af mörgum á lífsleiðinni og velja sér strax næsta markmiði til að stefna að. Eins og fram hefur komið hefur grunnskólinn tekið þátt í þessari keppni frá byrjun eða í þrjú skipti og alltaf gengið vel. Þegar nemendur fóru að tínast í burtu kom Óðinn Eymundsson einnig færandi hendi og gaf hverju barni gjafabréf fyrir 16" pizzu á hótelinu. Sannarlega gleðistund á hótelinu og þökkum við bæjarstjórn og þeim Hóteleigendum hlýhug í garð hópsins og skólans.
Lesa meira
Nú er þemavika hjá 8. - 10. bekk og umfjöllunarefnið er hippatímabilið og 7. áratugurinn. Í upphafi fengu allir að horfa á myndina Hárið og einnig American graffity. Nemendur fengu að velja sér hópa eftir áhugasviði hvers og eins. Allir fá einnig einn tíma í dansi en Eyrún Unnur kennir öllum grunnsporin í Jive. Tónlistarhópur er starfandi og æfa tónlistarmennirnir lög frá tímabilinu og ætla að flytja afraksturinn á föstudaginn. Hópur nemenda fjallar um Víetnamstríðið. Hópurinn vinnur í því að segja frá stríðinu og lýsa því. Bílahópurinn vinnur í því að finna bíla frá þessum tíma. Fjölmiðlahópurinn gefur út blað og tekur myndir. Tískuhópurinn vinnur í því að skreyta stofurnar, ein er skreytt eins og á hippatímanum og hin er eins og á sixties-tímabilinu.
Ólympíuhópurinn sér um að afla upplýsinga um ólympíuleikana í Munchen 1972.
Fjölmiðlahópurinn
Lesa meira
Föstudaginn 16. nóvember var föstudagshátíð hjá yngsta stiginu. Í þetta sinn var það 1. M sem steig á stokk með ýmis skemmtiatriði.
|nl|Hófst hátíðin á því að nemendur sungu lagið um Hafið bláa til að ná góðri stemmingu í salinn og tókst það með ágætum.
|nl|Í tilefni að degi íslenskrar tungu fluttu börnin ljóðið, Ég á þessi föt eftir Jónas Hallgrímsson sem flestir þekkja undir nafninu Buxur, vesti, brók og skór.
Lesa meira
Á degi íslenskrar tungu hefst formlega stóra upplestrarkeppnin hjá 7. bekk. Af því tilefni fóru nemendur í 7. bekk á leikskólana og lásu fyrir börnin þar. Einnig voru þau með einskonar maraþonlestur á Menningarmiðstöðinni þar sem þau skiptust á að lesa upp úr bókinni Eyja glerfisksins eftir Sigrúnu Eldjárn. Gestir og gangandi gátu notið þess að hlusta á þau en þess má geta að bæjarstjórinn okkar hann Hjalti hitaði stóinn fyrir börnin áður en þau byrjuðu.
Lesa meira
Svo undarlegt sem það kann að virðast þá hefur verið ákveðið að Evrópukeppni First Lego League verði haldin í Tokíó á næsta ári. Þetta kom sigurliði okkar svo sannarlega á óvart því það er jú töluvert meira mál að ferðast til Japan en til Evrópu. Í ljós hefur þó komið að liðið á að öllum líkindum líka möguleika á að keppa á tveimur stöðum í Bandaríkjunum og nú liggur Eiríkur liðstjóri ásamt foreldrum yfir því hvert sé best að fara. Keppendur þurfa sjálfir að bera kostnað af ferðum sínum og uppihaldi og þess vegna er um að gera að skoða málin vel.
Lesa meira
Síðasta mánudag var nemendum Nesjaskóla boðið í heimsókn á menningarmiðstöðina. Þegar þangað var komið bauð Björg Erlingsdóttir alla velkomna og sagði frá Norrænu bókasafnsvikunni, sýndi nemendum Helvítisgjána og bauð síðan upp á Línu-klatta og djús. Eftir að veitingunum höfðu verið gerð góð skil var farið í reiptog yfir Helvítisgjána og síðan las Bryndís kafla úr Línu Langsokk. Þegar lestrinum var að ljúka tóku krakkarnir eftir því að dularfullir menn læddust inn á safnið. Krakkarnir voru fljótir að láta vita af þessum mönnum en áður en illa fór birtist Lína Langsokkur öllum að óvörum og skömmu síðar lögreglan. Það kom í ljós að menn þessir voru þekktir ræningjar. Úr þessu varð hinn mesti hasar en að lokum náðist að handsama ræningjana með hjálp krakkanna og Línu.
Lesa meira
Lið Grunnskóla Hornafjarðar Ísjakarnir sigraði í FIRST LEGO league keppninni sem fram fór í Náttúrufræði húsi Háskóla Íslands s.l. laugardag. Ísjakarnir fengu flest stiga og unnu sér því rétt til þátttöku í Evrópumóti FIRST LEGO league í maí n.k.
Lesa meira
Nú er 2. H búin að halda sína föstudagshátíð og tókst hún í alla staði mjög vel.
|nl|Nemendur fluttu leikrit um Mjallhvíti og dvergana sjö. Sögumenn voru Arnar Ingi, Arndís Ósk og Sigurborg. Hafþór Logi, Hildur, Guðbjörg, Guðný, Halldóra Dröfn Guðjón, Ægir og Svandís léku dvergana og stjórnuðu söngnum,
Lesa meira
Liðið okkar heitir Ísjakarnir og við heitum Anna Regína Heiðarsdóttir, Dóra Björg Björnsdóttir, Guðlaug Jóna Karlsdóttir, Guðmundur Kristján Sigurðsson, Magnús Ágúst Magnússon, Maríus Sævarsson, Perla Sólveig Reynisdóttir, Siggerður Aðaslteinsdóttir, Vigdís María Borgarsdóttir og Þorgils Snorrason. Liðsstjórinn okkar er Eiríkur Hansson. Við erum í 7. bekk og erum að fara að keppa laugardaginn 10. nóvember í First lego league keppninni í Reykjavík. Keppnin verður haldin í Öskju í Sturlugötu Náttúrufræði húsi Háskóla Íslands frá kl 8:30-17:00.
Lesa meira
Í gær hittust nemendur og foreldrar á yngsta stigi grunnskólans og gengu frá jólapökkum í skókassa. Margir nemendur mættu og heill haugur af jólapökkum safnaðist. Þó enn séu tæpir tveir mánuðir í jól þá er ekki seinna vænna en huga að jólagjöfum sem fara erlendis en þessir jólapakkar verða sendir til Úkraínu.
Lesa meira
Í dag var 5. H með skemmtun á sal fyrir nemendur skólans. Þeir voru með fjölbreytt skemmtiatriði sem tókust með afar vel. Hér eru nokkrar myndir frá skemmtuninni.
Lesa meira
Á rigningardögunum undanfarið höfum við áþreifanlega orðið vör við að mörg börn koma illa klædd í skólann og alls ekki undir það búin að vera úti í frímínútum. Við leggjum hinsvegar mikla áherslu á að nemendur í 1. – 7. bekk séu úti í frímínútum og þá setjum við rigningu ekki fyrir okkur. Við minnum því á að regngalli og stígvél er nauðsynlegur hlífðarfatnaður hverju hornfirsku barni.
Lesa meira
Það var mikið líf og fjör í Sindrabæ þegar tríó Björns Thoroddsens ásamt Andreu Gylfadóttur hélt tónleika fyrir nemendur grunnskólans og elstu nemendur leikskólanna. Alls voru haldnir þrír tónleikar þar sem sungin voru ýmis þekkt íslensk lög. Nemendur tóku hraustlega undir og þegar þau áttu að syngja eins hátt og þau gátu er ekki laust við þakið hafi lyfst aðeins á Sindrabæ.
Lesa meira
Þriðjudaginn 16. október héldu tenglar foreldrafélags 8. bekkjar foreldrafund til að kynna fyrirhugað vetrarstarf. Í haust var gerð könnun meðal nemenda 8. bekkjar til að sjá hvað það væru sem þeir hefðu helst áhuga á að gera og í framhaldi af því var síðan vetrarstarfið skipulagt. Í október/nóvember ætla krakkarnir að gista í Araseli, grilla og halda kvöldvöku, í janúar/febrúar á að fara í skautaferð með heitt kakó og sætabraut og svo þegar hlýna fer næsta vor, á að halda sundlaugarpartý og pizzuveislu. Ákváðu tenglarnir að halda fund með foreldrunum til að kynna það sem fyrirhugað er og fá foreldrana til samstarfs. Á fundinn voru boðaðir foreldrar allra barna í 8. bekk í Grunnskóla Hornafjarðar.
Lesa meira
Föstudagshátíð í Nesjaskóla
-
23.10.2007
Fréttir Grunnskóli
Föstudaginn 19. október sá 3. S um föstudagshátíðina í Nesjaskóla. Nemendur settu á svið söngleik um Skúla Óskarsson lyftingakappa, fluttu lag með frumsömdum texta og sögðu nokkra góða brandara. Þetta var hin best skemmtun og í lokin skoraði 3. S á 2. HG að halda næstu hátíð.
Í ár ætla 10. bekkir Grunnskóla Hornafjarðar að taka þátt í Raunveruleiknum í fyrsta sinn. Leikurinn er gagnvirkur hermileikur spilaður á netinu, hannaður sem fjármála og neytendafræðsla fyrir efsta bekk grunnskólans. Leikurinn stendur yfir í 4 vikur og þurfa nemendur að leysa verkefni á vefnum á hverjum degi. Þess má geta að leikurinn fékk verðlaun norrænu ráðherranefndarinnar fyrir besta námsefnið í neytendamálum. Í upphafi leiks byrjar leikmaður sem 20 ára einstaklingur á leið út í lífið eftir framhaldsskóla. Leikmaðurinn fær ákveðna upphæð á bankareikning í upphafi leiks en líf hans er að öðru leyti óskrifað blað.
Lesa meira
Næsta miðvikudag á skólatíma verða tónleikar í Sindrabæ fyrir alla nemendur grunnskólans og elstu nemendur leikskólanna. Björn Thoroddsen og Andrea Gylfadóttir hafa sett saman skemmtilega dagskrá sem ætluð er til flutnings í grunnskólum landsins og gert er ráð fyrir þátttöku barnanna að hluta til og þá einna helst í söng. Söngtextana er hægt að nálgst hér. Dagskráin, sem tekur um 40 mínútur í flutningi, kallast "Söngvar afa og ömmu". Byggist hún fyrst og fremst á lögum af tveimur geisladiskum sem þau Björn og Andrea hafa gefið út; Vorvindum (2006) og Vorvísum (2007). Þessir diskar hafa fengið afar góðar viðtökur og góða umsögn gagnrýnenda.
Lesa meira
18. og 19. október eru hin árlegu samræmdu próf í 4. og 7. bekk í íslesnku og stærðfræði. Í grunnskólanum leggjum við áherslu á að skólastarf riðlist sem minnst vegna prófanna og það eina sem í raun breytist er að valtími fellur niður á fimmtudegi. Við lítum fyrst og fremst á samræmdu prófin sem könnunarpróf fyrir okkur starfsfólk skólanna.
Lesa meira
Á morgun fimmtudag velja nemendur í 5. - 7. bekk hvað þeir ætla að gera í valtímum fram að jólum. Í hverri viku er einn valtími fyrir nemendur í þessum bekkjum og velja þeir fyrir 6- 8 tíma í einu. Nemendur hafa um 10 völ að velja sem eru; heimanám, heimilisfræði, útilvist, sveitahópur, tölvur, myndlist og föndur, bjöllukór, íþróttir, dans og leiklist. Þetta er fyrsti veturinn sem boðið er upp á val á miðstigi í hverri viku, fram að þessu höfum við stundum tekið einn til tvo daga á vetri þar sem hægt hefur verið að velja um ýmis viðfangsefni.
Lesa meira
Þann 13. október sl. skellti 10. bekkur sér á Fjarðarball austur á Eskifjörð. Kl. 16:30 að staðartíma lögðum við í hann, á vit ævintýranna, galvösk og glöð í okkar fínasta pússi (hér um bil). Misjafnt ástand var á okkur, sumir með matareitrun (samt ekki eftir laxerolíu eins og fyrir sunnan), aðrir þreyttir eða bílveikir… Flest vorum við samt nýklippt, hress og spennt.
Lesa meira
Það er sannarlega líf og fjör hjá yngstu krökkunum í Grunnskóla Hornafjarðar. Fyrir utan að þau eru á fullu frá því snemma á morgnana í hefðbundinni skólagöngu mæta mörg þeirra í lengda viðveru sem er til húsa í Hafnarskólanum gamla.
|nl|
|nl|Þessi þjónusta er til reiðu frá klukkan 13.40 - 17.00 og um 20 börn dvelja þar samtals á hverjum virkum degi. Lengd viðvera er hugsuð fyrir börn á aldrinum sex til níu ára auk þess sem skólabörn úr sveitunum hér í Hornafirði bíða þar eftir að skólabíllinn komi og aki hverjum og einum til síns heima.
Lesa meira
Fimmtudaginn 4. október brá 1. bekkur undir sig betri fætinum og fór í heimsókn á Krakkakot. Heimsóknin er liður í samstarfi á milli skólanna sem kallast Brúum bilið. Það er gaman fyrir börnin að koma í heimsókn í sinn gamla skóla að hitta vini og starfsmenn sem tóku vel á móti hinum nýju grunnskólanemum. Það var glatt á hjalla og tíminn leið hratt við leik og störf. En þegar komið var til baka inn í skóla var tekið til við að læra sem 1. bekkingar stunda nú af kappi þessa dagana.
Lesa meira
Föstudaginn 5. október var haldin fyrsta föstudagshátíð vetrarins í Nesjaskóla. Það var 3. B sem reið á vaðið með flutningi á söngleik sem fjallaði um Þursinn í Ketillaugarfjalli auk þess sem nemendur fluttu nokkra skemmtilega brandara. Hátíðin tókst að venju mjög vel og skoraði 3. B á 3.S að halda næstu hátíð.
Lesa meira
Í dag voru nemendur í 6. bekkur með fyrstu skemmtun vetrarins á sal á miðstiginu. Þeir sýndu nokkra stutta leikþætti, sögðu brandara og sungu. Allir nemendur í bekknum komu fram og stóðu þeir sig með prýði. Í hópnum voru margir áhugasamir leikendur og nokkrir þeirra eiga örugglega eftir að verma fjalir leikhúsanna í framtíðinni. Hér koma nokkrar myndir frá sal en því miður var myndavélin eitthvað að stríða okkur og gæði myndanna eru lítil.
Lesa meira
Í dag fóru allir kennarar, ritarar og skólastjórnendur á námskeið í upplýsingaforritinu mentor. Af þeim sökum komu nemendur á elsta stigi heldur fyrr heim en venjulega. Þrátt fyrir að við höfum notað mentor síðustu árin þá eru sífellt að koma nýjungar í því sem við erum að tileinka okkur. Á næstu vikum og mánuðum munu foreldrar örugglega verða varir við breytingar t.a.m. erum við að velta fyrir okkur að taka inn nýung í kerfinu sem tengist foreldraviðtölum. Ef af því verður þá verðu það kynnt vel áður en foreldrar og nemendur þurfa að fara að nota það.
Lesa meira
30. september var lokahóf Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda haldið í Grafarvogskirkju. Þar hlaut Hafnarskóli annað árið í röð tilnefninguna Nýsköpunarskóli ársins. Það er mikill heiður fyrir okkur í grunnskólanum að fá þennan titil en þar sem tillögur í keppnina voru sendar inn á síðast skólaári þá var það gert undir nafni Hafnarskóla, á þessu skólaári verða hugmyndir sendar inn í nafni Grunnskóla Hornafjarðar.