Beint í leiðarkerfi vefsins.
Tölvuþjónusta Hátíðni felur í sér almenna þjónustu við tölvu- og upplýsingakerfi fyrirtækja í Sveitarfélaginu Hornafirði. Í samstarfi við fyrirtæki svo sem Opin kerfi, EJS, Nýherja og Microsoft á Íslandi getur Hátíðni boðið upp á mikla breidd af tölvu- og hugbúnaði, prenturum, rekstrarvörum, plasmaskjám og skjávörpum svo eitthvað sé nefnt.
IP-net Hornafjörður er gagnaflutningskerfi sem samanstendur af ljósleiðara-grunnneti sem tengir sama helstu fyrirtæki og stofnanir á Höfn. Einnig er hluti þess þráðlaust kerfi sem nær yfir byggðalagið.
Hátíðni rekur frétta- og upplýsingavefinn rikivatnajokuls.is og er sá vefur vefgátt inn í Ríki Vatnajökuls. Vefurinn er samstarfsverkefni stjórnsýslu, fyrirtækja og félagasamtaka í Sveitarfélaginu og má segja að fáir landshlutavefir séu jafn öflugir og rikivatnajokuls.is