Laus störf
Á HSSA starfar hópur fagfólks
Árið 2009 voru 80 manns á launaskrá hjá HSSA en stofnunin þjónar 2.200 íbúum Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Auk þess sem íbúar nærliggjandi sveitarfélaga og fjölmargir ferðamenn sem leið eiga um upptökusvæði stofnunarinnar nýta sér þjónustu hennar.
Á HSSA starfar hópur fagfólks sem samanstendur af læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmóður, sjúkraþjálfara, sjúkraliðum, sjúkraflutningamönnum, félagsliða, matráði, riturum og almennu starfsfólki í aðhlynningu, ræstingum, eldhúsi, félagsstarfi og heimilishjálp.
Laus eru störf í sumarafleysingum frá maí fram í september. Um er að vaktavinnu í aðhlynningu á hjúkrunar- og sjúkradeild, dvalardeild, eldhúsi og ræstingum. Einnig í félagsstarfi bæði á hjúkrunar- og sjúkradeild og dagvist. Afleysing mótttökuritara á heilsugæslu og í félagslegri heimaþjónustu þ.e. heimilishjálp.
Upplýsingar um störfin gefa:
Ásgerður K. Gylfadóttir hjúkrunarstjóri á hjúkrunarsviði varðandi störf á legudeildum og í eldhúsi netfang: asgerdur@hssa.is eða í síma 470 8630.
Ester Þorvaldsdóttir hjúkrunarstjóri á heilsugæslu varðandi störf á heilsugæslu, í dagvist og félagslegri heimaþjónustu netfang: ester@hssa.is eða í síma 470 8600.
Þagnarskylda:
32. grein laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmannaríkisins er eftirfarandi: ,,Hverjum starfsmanni er skylt að gæta þagmælsku um atriði er hann fær vitnsekju um í starfi sínu og leynt skulu fara skv. lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli málsins. Þagnarskyldan helst, þótt látið sé af starfi.” Öll vitneskja um skjólstæðingana, sjúkdóma þess, ástand og meðferð er háð þagnarskyldu. Ákvæði um viðurlög fyrir brot á þagnarskyldu er í 136. grein almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Starfsfólk HSSA er á launaskrá Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Ófaglært starfsfólk er í AFL starfsgreinafélagi. Trúnarðarmaður er Ásta Halldórsdóttir. Sjúkraliðar eru í Sjúkraliðafélagi Íslands, trúnaðarmaður er Sigríður Lárusdóttir. Hjúkrunarfræðingar eru í Fíh, trúnaðarmaður er Jóna Bára Jónsdóttir.
![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)


