Fréttir HSSA

baeklingur_forsida_2_utgafa-150_pix
baeklingur_forsida_2_utgafa-150_pix

04.03.2010

Búið að bólusetja 1.190 einstaklinga á Hornafirði gegn svínainflúensu A(H1N1)

Heilbrigðisyfirvöld hvetja landsmenn eindregið til þess að láta bólusetja sig gegn svínainflúensu A(H1N1) og verjast á þann hátt nýju áhlaupi veikinnar sem búast má við síðar á þessu ári eða því næsta.

Bólusetning er besta vörnin gegn svínainflúensunni og það sem fyrst . Nóg er til af bóluefni í landinu.

Hér á Hornafirði er nú þegar búið að bólusetja 1.190 einstaklinga.

Bólusett er á fimmtudögum og er fólk vinsamlega beðið um að panta tíma í síma 478-1400. Ekki þarf að greiða fyrir bólusetninguna.

Foreldar eru sérstaklega hvattir til að láta bólusetja börn sín.

Nánari upplýsingar má finna á vef Landlæknisembættisins og inflúensa.is.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknis eftir lokun skiptiborðs er 865 8900.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica