Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þessi myndarlega stúlka fæddist þann 13. apríl sl. Hún var 3.030gr og 48 cm við fæðingu. Foreldar dömunnar eru Heiða Vilborg Sigurbjörnsdóttir og Hólmar Unnsteinsson.
Lesa meira
Samráðsnefnd heilbrigðisumdæmis Suðurlands fundaði í gær 14. apríl með rekstararaðilum hjúkrunarheimila í umdæminu. Fundurinn var haldinn á Hvolsvelli og voru Guðrún Júlía Jónsdóttir framkvæmdarstjóri sem situr í samráðsnefndinni og Ásgerður K. Gylfadóttir hjúkrunarstjóri á hjúkrunarsviði á fundinum.
Megin dagskrá fundarins var um vistunarmat og lyfjanotkun á hjúkrunarheimilum. Einnig var rætt um hugsanlega samstarfsverkefni milli heimila og samskipti við ríkisvaldið.
Þá spurðist framkvæmdastjóri HSSA um aðbúnað á hjúkrunarheimilum í umdæminu með tilliti til einbýla og fjölbýla. Þar kom fram að hvergi er hlutfall einbýla jafn lágt og á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands en þau eru tvö af sextán herbergjum hjá okkur.
Lesa meira
Nú erum við farin að huga að sumrinu og ráðningu afleysingafólks.
Þau störf sem eru í boði er umönnun í vaktavinnu á bæði hjúkrunar- og sjúkradeild og dvalardeild. Vaktavinna í eldhúsi og í ræstingu. Félagsstarf með öldruðum á hjúkrunar- og sjúkradeild og í dagvist. Móttökuritari á heilsugæslu og starfsmaður í félagslegri heimaþjónustu þ.e. heimilishjálp.
Lesa meira