Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þann 11. júní sl. útskrifuðust þær Halla Sigurðardóttir, Íris Gísladóttir, Ragnheiður Rafnsdóttir og Valgerður Hanna Úlfarsdóttir með BS gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Þær stöllur hafa stundað nám sitt í fjarnámi héðan frá Hornafirði síðustu fjögur árin.
Við hjá HSSA erum stolt og ánægð með að hafa fengið þær í vinnu sem hjúkrunarfræðinga við stofnunina en Íris staldraði stutt við í þetta sinn. Hún býr nú í Noregi með fjölskyldu sinni og vinnur við hjúkrun þar.
Lesa meiraStarfsfólk óskast í aðhlynningu á hjúkrunar- og sjúkradeild frá og með 1. sept n.k. Um er að ræða vaktavinnu aðra hverja helgi. Tilvalið með námi eða annarri vinnu. Laun eru samkvæmt samningi Sveitarfélagsins við AFL starfsgreinafélag. Starfshlutfall 20%.
Lesa meira
Þessi myndarlega stúlka, Dominyka fæddist þann 28. júní sl. Hún var 2.522 gr og 48 cm. Foreldrar hennar eru Vita Mogylaite og Marius Kaminkas.
Lesa meira