Fréttir HSSA

Jólasveinn og Snorri Gíslason

Jólahald á hjúkrunardeild. - 29.12.2011 Fréttir HSSA

Í kringum jólin er brugðið út af venjulegu heimilishaldi á hjúkrunardeildinni eins og á öðrum heimilum. Flest heimilisfólk getur ekki sótt viðburði utan heimilisins og kemur það sér þá vel að bein tenging er í gegnum sjónvarp við Hafnarkirkju.

Þannig geta íbúar tekið þátt í aðventukvöldi og jólatónleikum í Hafnarkirkju og messuhaldi svo eitthvað sé nefnt. Ýmsilegt er gert til að færa jólin til íbúa.

Jólasamvera var haldin 22. desember í samvinnu við góða gesti. Samkórinn og Karlakórinn Jökull hafa verið hjá okkur og börn úr Tónskóla Hornafjarðar.

Í gær 28. desember var haldið árlegt jólaball starfsmanna HSSA á deildinni var þá margt góðra gesta og kíktu þrír jólasveinar til okkar.

Lesa meira
 
Englakól leikskólabarna

Aðventan í dagvist, Ekru. - 27.12.2011 Fréttir HSSA

Á aðventunni hefur verið mikið að gera í dagvist eins og á öðrum stöðum. Eldri borgarar sem sækja dagvistina í Ekru hafa verið að vinna með mósaík, handavinnu að mála og ýmislegt fleira.

Lesa meira
 
jolamynd

Lyfjaendurnýjanir - opnunartími heilsugæslu. - 20.12.2011 Fréttir HSSA

Nú þegar jólin eru á næsta leiti viljum við minna ykkur á að endurnýja lyf í tíma.

Einnig er vert að vekja athygli á að þeir sem hafa hækkaðan blóðþrýsting eða hjartasjúkdóma ættu að gæta hófsemi í neyslu reyktra og saltaðrar matvöru.

 

Athugið að lokað er á heilsugæslunni á Þorláksmessu.

Vaktþjónusta í síma 8658900.

Lesa meira
 
drengur Sævarsson f.26.11.11

Ægir Þór Sævarsson er fæddur! - 12.12.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndarlegi drengur fæddist þann 26. nóvember sl. Hann var 18 merkur og 54 cm við fæðingu. Foreldrar drengsins eru Hulda Björk Svansdóttir og Sævar R. Guðmundsson.

Lesa meira
 
d-vitamin

D-vítamin (öðru nafni kalsíferól) - 06.12.2011 Fréttir HSSA

Skortur á D vítamíni er frekar algengur vandi hér á landi. Í mörgum frumum líkamans ( t.d. hjarta – bris –tauga – ónæmis og beinfrumum) eru viðtakar fyrir D vítamín.

 

Lesa meira
 
Fagnámskeid hópur 2

Útskrift af Fagnámskeiði fyrir starfsmenn í Heilbrigðis- og félagsþjónustu. - 02.12.2011 Fréttir HSSA

Í haust hafa um 20 starfsmenn HSSA og hjá Málefnum fatlaðra sótt starfstengt námskeið einu sinni í viku. Áherslurnar voru annars vegar tengdar öldrun, sjúkdómum og fötlunum og hins vegar siðfræði, samskiptum og áherslum í nútíma þjónustu við fólk hvernig sem það er statt í lífinu.

Lesa meira
 
1. des skemmtun 2011

Dansað inní desember. - 02.12.2011 Fréttir HSSA

Fullveldisdagurinn var haldinn hátíðlegur á hjúkrunardeildinni með dansleik. Hljómsveitin Hilmar og fuglarnir léku fyrir dansi við mikla ánægju heimilsfólks og gesta.

Viðburðir sem þessir létta lund og kæta enda er takmarkað hvað heimilisfólk getur sótt af viðburðum á aðventunni út í bæ. Því er mjög gaman að fá góða gesti og skemmta sér saman.

Lesa meira
 
Bolusetning 2009

Inflúensan er komin til landsins! - 02.12.2011 Fréttir HSSA

Fyrsta inflúensutilfelli vetrarins hefur verið staðfest á veirufræðideild Landspítala. Inflúensan greindist í íslenskum ferðamanni sem var að koma frá Suður-Asíu og er af stofni inflúensu A(H3) sem hefur valdið árlegri inflúensu síðastliðna áratugi.

Lesa meira
 
Ólafur Ægir Ólafsson f. 02.11.2011

Ólafur Ægir Ólafsson er fæddur! - 01.12.2011 Fréttir HSSA

Þessi myndar drengur sem fengið hefur nafnið Ólafur Ægir fæddist 2. nóvember sl. Hann var 3.240gr og 49 cm við fæðingu. Foreldrar Ólafs Ægis eru Harpa Særós Magnúsdóttir og Ólafur Jónsson. Lesa meira
 

 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknis eftir lokun skiptiborðs er 865 8900.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica