Gott að vita
Við biðjum skjólstæðinga okkar og aðstandendur þeirra vinsamlega að ræða ekki um sjúkdóma og meðferð annarra og munið að allt starfsfólk hefur skrifað undir þagnarskyldu.
Við innlögn á deild
Skal hafa með sér slopp, inniskó , rakáhöld, tannbursta, tannkrem, greiðu og eða aðrar snyrtivörur sem eru nauðsynlegar.
Náttföt, nærföt og léttan klæðnað til að vera í á daginn sé viðkomandi ekki rúmfastur.
Lyf
Á meðan sjúklingur er inniliggjandi á hann aðeins að nota lyf í samráði við lækna deildarinnar. Lyf og lyfjakort skal því afhenda lækni eða hjúkrunarfræðingi sem hann fær síðan aftur við brottför svo og ráðleggingar um áframhaldandi meðferð.
Annað
Deildin getur ekki ábyrgst fjármuni né verðmæti sem fólk kemur með. Viðkomandi eru hvattir til að setja verðmæti í geymslu í læstum skáp hjá hjúkrunarfræðingum.
Útskrift
Við útskrift er farið yfir lyf og lyfjakort viðkomandi og athugað hvort viðkomandi þurfi heimahjúkrun eða heimaþjónustu.
Matartímar
- Morgunmatur frá kl. 8:30
- Hádegismatur kl. 11:30
- Kaffi kl. 14:30
- Kvöldmatur kl. 17:30
- Kvöldkaffi eftir kl. 20:00
Reykingar
Sjúklingum sem reykja er vinsamlegast bent á að æskilegt er að draga sem mest úr reykingum og þeim boðin hjálparmeðöl s.s. nikótínplástur og tyggigúmmí á meðan á dvöl stendur.
Heimilisfólki og sjúklingum er heimilt að reykja í bakgarði við milligang á heilsugæslu.
Samkvæmt lögum er gestum og starfsfólki með öllu óheimilt að reykja innandyra eða á lóð HSSA.
Sameiginlegt rými á hjúkrunar og sjúkradeild.
Sameiginleg setustofa og borðstofa er nýtt sem aðstaða til þjálfunar, afþreyingar og samveru. Einnig er salurinn nýttur til helgihalds, hópstarfs tengdu félagsstarfi og uppákomur af ýmsu tagi, eins og dansleiki, tónlistarflutning og ýmiskonar fundahöld.
Aðstaða utandyra.
Úr setustofu í vestari enda er gengið út í yndislegan garð. Þar eru bekkir og borð sem nýtt er á góðviðrisdögum á sumrin. Heimilisfólk getur farið þar um og notið gróðurs og fallegs útsýnis.
Þjónusta
Hand- og fótsnyrting
Sigrún Sveinbjörnsdóttir snyrtifræðingur kemur reglulega og býður heimilisfólki uppá snyrtiþjónustu s.s. hand- og fótsnyrtingu sem veitt er á kostnað einstaklingsins.
Einnig fara þeir heimilismenn sem geta á snyrtistofuna Heilsu og útlit ehf.
Hárgreiðsla
Ingibjörg Ævar Steinsdóttir hárgreiðslumeistari og Ásbjörn Þórarinsson rakari koma reglulega á deildina og bjóða uppá hársnyrtingu á kostnað einstaklingsins.
Einnig fara þeim heimilismenn sem geta og kjósa á hársnyrtistofur bæjarins.
Leikfimi
Tvisvar í vikur býður Matthildur Ásmundsdóttir sjúkraþjálfi öllum skjólstæðingum upp á leikfimitíma í stofu hjúkrunar- og sjúkradeildar.
Prestþjónusta
Sigurður Kr. Sigurðsson sóknarprestur kemur vikulega á hjúkrunar- og sjúkradeild og dvalardeild. Guðsþjónusta er á deildinni á stórhátíðum auk þess sem sjónvarpstenging við Hafnarkirkju gerir heimilisfólki kleift að horfa á messur og aðrar uppákomur sem fram fara í kirkjunni. Þessi tenging kom í gagnið haust 2008 og er kærkomin.
Þvottur
Fatnaður heimilisfólks er merktur á saumastofu HSSA.
Allur þvottur stofnunarinnar og heimilisfólks er þveginn í Efnalaug Dóru.
Æskilegt er að þvottur heimilisfólks þoli vélarþvott. HSSA tekur ekki ábyrgð á fötum heimilisfólks.
Finna reglugerð HBR um þvott heimilisfólk og setja inn sem link.
Sjúkraþjálfun
Ath Matta.

![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)


