Sjúkraþjálfun

 

 

Matta með leikfimiVið HSSA starfar 1 sjúkraþjálfari í 50% stöðu og hefur verið síðan 2004. Fram að því var sjúkraþjálfun sinnt í verktakastarfi eftir þörfum. Sjúkraþjálfari starfar á hjúkrunardeildinni þar sem hann sinnir vistmönnum ásamt því að sinna þeim einstaklingum sem leggjast inn í styttri tíma í einu. Sjúkraþjálfunaraðstaða er vel tækjum búin en er staðsett í öðru húsnæði gegnt hjúkrunardeildinni. Sjúkraþjálfun fer því fram að miklu leiti á hjúkrunardeildinni ásamt því að nýta sjúkraþjálfunaraðstöðuna.

Sjúkraþjálfari HSSA er Matthildur Ásmundardóttir

Markmið sjúkraþjálfunar á HSSA:

·  Veita skjólstæðingum sjúkraþjálfunar viðeigandi þjálfun, fræðslu og ráðgjöf með það að markmiði að auka eða viðhalda líkamlegri, andlegri og félagslegri getu þeirra á meðan legu þeirra stendur yfir.

·  Að auka eða viðhalda færni og hreyfigetu skjólstæðinga okkar og auðvelda þeim að takast á við hið daglega líf á stofnuninni ásamt því að gera umönnun léttari.

·  Endurhæfa þá skjólstæðinga sem leggjast inn eftir aðgerðir og í hvíldarinnlagnir með því að markmiðið að þeir geti útskrifast Sjúkraþjálfunheim í sitt fyrra umhverfi.

·  Veita starfsmönnum HSSA fræðslu og ráðgjöf í vinnuvistfræði.

Leiðir að markmiðum:

Einstaklingsþjálfun:

·  Skoðun og prófanir

·   Færnisþjálfun

·   Styrktarþjálfun

·   Úthaldsþjálfun

·   Hin ýmsu önnur meðferðarúrræði ss.

o   Fræðsla og ráðgjöf

o   Nudd, teygjur, liðlosun, tog, laser, bylgjumeðferð, rafmagnsmeðferð, heitir og kaldir bakstrar.

o   Metur þörf fyrir hjálpartæki og kennir notkun þeirra.

o   Heimilisathugun.

o   Metur þörf á sjúkraþjálfun eftir útskrift.

Hópþjálfun

· Leikfimi á hjúkrunardeild 2 svar í viku.

· Hópþjálfun í tækjasal ef þörf er á.

Áhugaverðar síður:

Félag Íslenskra sjúkraþjálfara
Námsbraut í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands
Tryggingastofnun Ríkisins
Lýðheilsustöð
Landlæknir

 


 

Í neyðartilfellum hringið neyðarlínuna 112. Vaktsími læknis eftir lokun skiptiborðs er 865 8900.
Þetta vefsvæði byggir á Eplica