Gæðastefna HSSA
HSSA leggur metnað sinn í að veita góða, skilvirka og hagkvæma heilbrigðisþjónustu.
Stefna HSSA er að skjólstæðingar stofnunarinnar fái sem bestu mögulegu þjónustu sem unnt er að veita á hverjum tíma. Gæði þjónustunnar verði í stöðugri endurskoðun og mæti þörfum skjólstæðinga stofnunarinnar með virkri gæðaþróun. Stuðlað verði að stöðugu umbótastarfi og tryggt að öll þjónusta sé í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu og viðurkennda gæðastaðla.
Gæðaráð HSSA – markmið og hlutverk
· Gæðaráð ber ábyrgð á framkvæmd og uppbyggingu gæðastarfs innan HSSA
· Hlutverk gæðaráðs er að beita sér í öllu er varðar gæði á stofnunni og styður/hvetur starfsfólk til umbótastarfs.
· Markmið gæðaráðs er að virkja hæfileika og þekkingu sem flestra starfsmanna, aðstoða þá við lausn viðfangsefna sem
upp koma m.a. með vinnuhópum.
· Störf gæðaráðs einkennist í því að hagur skjólstæðinga er ávallt hafður í fyrirrúmi, leitað er markvisst leiða til að
fyrirbyggja mistök þar sem ekki er verið að finna sökudólg heldur skoðaðir verkferlar og úrbætur á þeim. Um er að ræða
langtímasókn ekki skammtíma átak.
· Gæðaráð hefur umsjón með að gæðaáætlun heilbrigðisráðuneytisins verði framfylgt í samráði við framkvæmdastjórn
HSSA.
· Finnur leiðir til að meta stöðu gæðamála og meta árangur m.a. með mælingum og úttektum.
· Í gæðaráð er skipað af framkvæmdaráði HSSA. Gæðaráð ber ábyrgð á sínum störfum gagnvart framkvæmdastjóra.
· Gæðaráð fundar a.m.k. einu sinni í mánuði og oftar ef þurfa þykir.
· Gæðaráð heldur fundargerð og gefur skýrslu um störf sín einu sinni á ári.
![[Símatímar]](/media/vefefni-hssa/simiHSSA.jpg)
![[Lyfjaendurnýjanir]](/media/vefefni-hssa/lyfjaendurnyjunHSSA.jpg)
![[Bólusetningar]](/media/vefefni-hssa/bolusetningarHSSA.jpg)
![[Minningarkort]](/media/vefefni-hssa/tilminningarHSSA.jpg)
![[Ábendingar og kvartanir]](/media/vefefni-hssa/abendingarHSSA.jpg)
![[OLE2]](/media/vefefni-hssa/ole-.jpg)


