Fréttir

Frá Jöklasýningu
Frá Jöklasýningu
Frá Jöklasýningu

Góð aðsókn á Jöklasýninguna og Upplýsingamiðstöðina

01.10.2009

 

Jöklasýningin í fyrrum vöruhúsi KASK er einn þeirra staða þar sem ferðamenn skoða þegar þeir koma til Hafnar. Jöklasýningin hefur fengið mikið lof sýningagesta og að fara upp á útsýnispallinn á þaki hússins í góðu veðri þar sem útsýnið er einstakt yfir fjörðinn, jöklana og fjöllin - það er toppurinn.

Upplýsingarmiðstöð fyrir ferðafólk er á sama stað og Jöklasýningin. Starfsmenn eru þrír sem sjá sameiginlega um upplýsingamiðstöðina og Jöklasýninguna.

Guðlaug Pétursdóttir hjá Menningarmiðstöðinni tók saman ýmsan fróðleik um Jöklasýninguna og starfsemina þar síðustu tvö ár og það sem af er þessu ári ásamt súluriti yfir aðsókn að sýningunni. Hér má nálgast aðsóknartölur fyrir Jöklasýninguna og svo Upplýsingamiðstöðina á pdf.

Fyrst er rétt að líta aðeins á fróðleiksmola í sögu hússins sem þessi starfsemi er í :

Húsið var aðalverslun Kaupfélags Austur – Skaftfellinga. Bygging hússins hófst 1961 og var fullgert 1963. Húsið hefur alla tíð verið verslunarhús og var verslunin lengi vel sú eina á svæðinu og seldi því allar helstu nauðsynjavörur, ásamt allskyns fatnaði og vefnaðarvöru. Jöklasýningin var sett þar upp árið 2005, en einnig voru settar upp handavinnustofa, og smíðastofa fyrir grunnskólana sem er á sömu hæð og sýningin. Framhaldskólinn á svæðinu er með kennslu í málmsuðu í kjallara hússins og er sú aðstaða nýtilkomin. Sýningarsvæði er um það bil 600 ferm.

Meirihluti sýningagesta eru erlendir ferðamenn. Áberandi mikið er af ítölum og spánverjum í ágúst. Annars er alltaf mikið af þjóðverjum, hollendingar eru áberandi í júlí og jafnt flæði virðist vera á norðurlandabúum, frökkum og englendingum. Austur Evrópubúar eru lítið áberandi. Mest er um einstaklinga sem eru að ferðast sjálfstætt um landið. Aldur þeirra er mjög misjafn, allt frá ungum bakpokaferðalöngum í fólk á milli 20 og 40 ára með börn, pör og svo eldra fólk.

Framhaldskólanemar í jarðfræði hafa komið í árlegar heimsóknir og þeir eru í misstórum hópum, frá 8 til 15 krakkar. Grunnskólinn hefur komið árlega með nemendur frá 1 til 7 bekk og það eru um 210 börn. Gagnfræðaskólinn hefur komið með 7. bekkinga í náttúrufræði í heimsókn en þeir eru 37 í bekk, 8. og 9. bekkur í landafræði hefur svo komið heimsóknir líka en það eru um 71 krakkar.
Fyrirlestrar á Jöklasýningunni hafa verið frá 1 upp í 3 á ári en þeir eru sjálfstæðir viðburðir og ekkert í sambandi við skólaheimsóknir.

Árið 2007 heimsóttu sýninguna  8244 mans. Árið 2008 komu 7966 manns og árið 2009 það sem af er ársins hafa komið 7793 manns.

Sýningin er rekin af sjálfseignarstofnun. Fjölmargir komu að gerð sýningarinnar en stærsta fjármögnun sýningarinnar kemur frá Sveitafélaginu Hornafirði. Um styrki og vinnuframlag sáu Ferðamálaráð, Háskólasetrið, Jarðvísindastofnun Háskólans, Jöklarannsóknarfélag Íslands, Landsnet, Orkustofnun, Ríkissjóður, Siglingastofnun, Sveitafélagið Hornafjörður, Umhverfisstofnun, Veðurstofan, Vegagerðin og VÍS. Reksturinn er í höndum sveitafélagsins.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica