Kanaböllin eru sterk í minningunni en þar fékk maður allt sem mann langaði í.
Jólagestur okkar 13. desember er Hulda Waage
Ég hef alla tíð verið mikið jólabarn þar sem ég ólst upp á miklu jólaheimili. Allt var þrifið hátt og lágt inni í skápum og alls staðar. Bakaðar margar sortir af smákökum, randalínur hvítar og brúnar, ísar og frómasar í lítratali. Ég man eftir hvað það var alltaf spennandi þegar að jólaölið var komið í hús, en þá voru það staflar af rauðu kössunum með appelsíni, malt, kók og Sinalco, allt í gleri.
Litlu jólin í barnaskólanum voru alltaf tilhlökkunarefni og einnig Kanaböllin á Stokksnesi. Amma mín var eitt sinn stödd á Florida um jólin 1974 eða ´75 þar sem bróðir hennar bjó. Þá brá henni heldur betur í brún þar sem hún sá son sinn og fjölskyldu í Bandaríska sjónvarpinu en þá var verið að sýna þátt um hermennina á Íslandi og þ.á.m. frá jólaballi á Stokksnesi! Kanaböllin eru sterk í minningunni en þar fékk maður allt sem mann langaði í; fjólubláa kókið sem var svo gott, skrítnar pylsur, sælgæti, bíó og popp, jólasveinn sem gaf manni pakka og þar var líka diskótek. Sem sagt ótrúlega gaman.
Á Þorláksmessu sauð mamma alltaf hangikjötið fyrir jóladag um leið og möndlugrauturinn var búinn til. Einhvern veginn komst Ketkrókur alltaf í kjötið þannig að þá ákvað mamma að sjóða bara stóran skammt og hafði þá heitt hangikjöt á Þorláksmessu og kalt á jóladag. Jólabaðið var svo sama kvöld og þá fengum við systur alltaf ný náttföt og rúmföt, ( þá var ekki Rúmfatalager til að skreppa í hvenær sem þurfti ). Á aðfangadagsmorgun biðum við á náttfötunum eftir teiknimyndunum sem byrjuðu ekki fyrr en eftir hádegi að mig minnir, alla vega var biðin mjög löng. Alltaf máttum við opna einn pakka að deginum til og var þá valið með það í huga að við hefðum eitthvað til að stytta okkur biðina. Á aðfangadag var alltaf í forrétt sveppasúpa að hætti mömmu og svo hamborgarhryggur með öllu tilheyrandi og í eftirrétt var frómas og eða heimagerður ís.
Aðventan hefst snemma í nóvember a.m.k. hjá mér og strákunum mínum. Þá fer ég að hlusta á eitt og eitt jólalag (ekki öllum til mikillar ánægju ), svo alltaf fyrir afmæli mitt sem er þann 21. byrja ég að skreyta smá....... Jólakökubakstur með börnunum er ómissandi og allur undirbúningur jólanna er yndislegur .
Ég held í hefðirnar með jólamatinn og var svo heppin að tengdaforeldrar mínir voru einnig alltaf með hamborgarhrygg svo að ég þurfti engu að breyta þegar ég fór að búa.
Að lokum óska ég og fjölskylda mín öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Frómas sem Nonni borðar í lítravís um jólin:
5 egg
200 gr. Sykur
½ L. Rjómi
1 dós jarðarber ( stór )
Ca. 1-1 og ½ dl. Kahlúa ( eftir smekk )
10 blöð matarlím
Ca. 100 gr. Suðusúkkulaði ( saxað )
Rjóminn stífþeyttur . Súkkulaðið og u.þ.b. megnið af jarðarberjunum ( eftir smekk ) er saxað niður. Egg og sykur þeytt vel saman. Matarlímið brætt í smá jarðarberjasafa ( ca. 1 dl. ) Kahlúanu svo hellt útí matarlímið. Rjómanum er bætt við eggjahræruna , svo súkkulaðinu + berjunum. Síðast er matarlíminu hellt í mjórri bunu útí og hrært varlega saman. Svo beint í skál og inn í ísskáp til að stífna.




Skrifa athugasemd