Kvennakór Hornafjarðar
Margt framundan hjá Kvennakór Hornafjarðar
Hinir árlegu vortónleikar Kvennakórs Hornafjarðar verða haldnir í Hafnarkirkju þann 20. maí kl 20:00. Efnisskráin er að venju mjög fjölbreytt og er sungið á a.m.k. fimm tungumálum. Nokkrir efnilegir hljóðfæraleikarar munu leggja kórnum lið á tónleikunum. Kórinn mun síðan halda tónleika í Reykjavík nánar tiltekið í Háteigskirkju þann 11. júní kl 20:00. Stjórnandi kórsins er hinn stórsnjalli Svavar Sigurðsson og undirleikari er hin undurfima Jónína Einarsdóttir (Ninna). Daginn eftir eða 12. júní leggja svo kórkonur og makar þeirra af stað í viku ferðalag til Þýskalands þar sem nokkrir tónleikar verða haldnir ásamt því að kynnast menningu Þjóðverja. Það er vel við hæfi að fara í jafn glæsilegt ferðalag sem þetta þar sem Kórinn fagnar 10 ára afmæli sínu á þessu ári.
Ýmislegt annað er á döfinni í sumar eins og t.d. hið frábæra þjóðakvöld sem verður haldið fimmtudaginn fyrir Humarhátíðina eins og í fyrra, en það þótti takast vel og munum við ekki slá slöku við í ár.
Við vonum að við sjáum sem flesta á tónleikunum okkar bæði hér heima og í Reykjavík, um leið óskum við ykkur gleðilegs sumars og þökkum fyrir góðar viðtökur.
F.h. Kvennakórs Hornafjarðar, Ragnheiður Rafnsdóttir



