Kvennakór Hornafjarðar

Kvennakór Hornafjarðar hélt tónleika í Hamborg

28.06.2007

Þýskalandsferð Kennakórsins 2007
Þýskalandsferð Kennakórsins 2007
Tekist á við hættulegar flúðir, aðeins þeir hugrökkustu þorðu.
Mynd 1 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

Þann 12. júní sl. hélt kvennakór Hornafjarðar í ferðalag til Þýskalands. Flogið var til Kaupmannahafnar en þar beið rúta sem flutti kórkonur og þeirra fylgifiska til Soltau í norður Þýskalandi. Margt var bardúsað í þessari ferð eins og t.d. var farið í skemmtilegan garð þar sem fólk manaði hvert annað í að fara í rússíbana og fleiri tæki þar sem fólk snéri á hvolfi og fór alskonar slaufur og krúsídúllur. Var um það talað meðal þeirra sem ekki tóku þátt í þessum háskaferðum að það vantaði greinilega eitthvað í þetta fólk.

Kórinn æfði í dómkirkjunni í Soltau auk þess sem hann söng nokkur lög í stórri kirkju í Verden við mikinn fögnuð viðstaddra. Í Verden var líka farið á veitingahús þar sem snæddur var gamall þjóðlegur þýskur matur en uppistaðan í réttunum voru blóðmör, súrt lamakjöt, kæfa og eitthvað fleira góðgæti, undirrituð hefur aldrei áður farið á veitingastað án þess að borða. Á þessum ágæta veitingastað var stofnaður karlakór Kvennakórs Hornafjarðar og tóku þeir strákarnir krummavísu að fornum íslenskum sið.

Hápunktur ferðarinnar voru svo tónleikar í Hamborg þar sem kórinn söng sitt prógramm ásamt því sem kór heimamanna söng nokkur lög og að lokum sungu kórarnir tvö lög saman sem tókust vel. Eftir tónleikanna var slegið upp heljarinnar grillveislu fyrir framan kirkjuna en þar sem ringdi heiftarlega var matnum og veigunum gert góð skil inni í kirkjunni og var þetta hin mesta skemmtun sem stóð fram eftir kvöldi. Þess skal getið að karlakór Kvennakórs Hornafjarðar söng lagið sitt um krumma þarna í kirkjunni við mikinn fögnuð.

Er það mál manna að ferðin hafi í alla staði verið hin skemmtilegasta, mikið var drukkið af framleiðslu heimamanna, sumir versluðu meira en aðrir, maturinn var frábær, fararstjórarnir góðir, veðrið var líkt íslensku sumri rigningin kanski aðeins heitari sem sagt vel lukkað ferðalag.

Okkur í Kvennakór Hornafarðar langar að minna á okkar sívinsæla þjóðakvöld sem haldið verður í Sindrabæ fimmtudaginn 28. júní, við hvetjum ykkur til að koma og upplifa þýska stemmingu með okkur s.s. eiga notalega kvöldstund.

Hægt verður að verða sér úti um aðgöngumiða í Verslunninni Tangó í Miðbæ og kostar miðinn 2000 kr.

Við hlökkum til að sjá ykkur,
f.h. Kvennakórs Hornafjarðar,
Ragnheiður Rafnsdóttir

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica