Kvennakór Hornafjarðar

Landsmótsskvísan

Landsmót kvennakóra hefst í dag 25. apríl. - 25.04.2008 Kvennakór Hornafjarðar

Þá er komið að því, í dag, 25. apríl, koma hingað til okkar á Höfn um það bil þrjúhundruð og þrjátíu fljóð, frá 12 kvennakórum, sem dvelja hjá okkur fram á sunnudag. Flestar koma þær seinnipartinn og byrja þær í Íþróttahúsinu. Mótið er formlega sett klukkan hálfátta og verður síðan haldið með allan hópinn í óvissuferð! Í fyrramálið hefjast stífar æfingar en þó er gert ráð fyrir frítíma hjá konunum til að skoða bæinn okkar. Á morgun, laugardaginn 26. apríl, verða tónleikar í Íþróttahúsinu kl. 16, þar flytja kórarnir sýnishorn af eigin dagskrá. Hópnum er skipt í fernt og æfir hver hópur ákveðin lög yfir helgina sem verða flutt á tónleikunum á sunnudaginn, sem eru kl. 14 í Íþróttahúsinu. Þá verða einnig flutt nokkur sameiginleg lög og Landsmótslagið frumflutt, en það samdi Þóra Marteinsdóttir við texta Guðbjarts Össurarsonar. Níu manna hljómsveit Jóhanns Moravek sér um undirspil. Eru bæjarbúar hvattir til að taka þátt og koma á tónleika, en aðgangur á tónleikana er ókeypis. Lesa meira
 
Landsmótsskvísan

Mikið að gera hjá kvennakórskonum - 01.04.2008 Kvennakór Hornafjarðar

Nú fer að líða að sjöunda Landsmóti íslenska kvennakóra , helgina 25. – 27.apríl, þegar staðurinn fyllist af syngjandi kórkonum. Undibúningur er á fullu hjá kvennakórskonum og eru þær mjög þakklátar fyrir hvað allir virðast jákvæðir og spenntir fyrir þessum viðburði og tilbúnir að leggja sitt af mörkum á margan hátt. Hér verða sem sagt tónleikar bæði laugardaginn 26. og sunnudaginn 27.apríl.Á laugardeginum flytur hver kór, lög af sinni dagskrá. Á sunnudeginum verður afrakstur vinnuhópana fluttur, þegar á fjórða hundrað konur syngja saman við undirleik stórhljómsveitar Jóhanns Morávek, sem stofnuð er fyrir þetta tækifæri. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica