Kvennakór Hornafjarðar

Landsmót kvennakóra hefst í dag 25. apríl.

25.04.2008

Landsmótsskvísan
lansdmotsskvisan
Landsmótsskvísan

Þá er komið að því, í dag, 25. apríl, koma hingað til okkar á Höfn um það bil þrjúhundruð og þrjátíu fljóð, frá 12 kvennakórum, sem dvelja hjá okkur fram á sunnudag. Flestar koma þær seinnipartinn og byrja þær í Íþróttahúsinu. Mótið er formlega sett klukkan hálfátta og verður síðan haldið með allan hópinn í óvissuferð! Í fyrramálið hefjast stífar æfingar en þó er gert ráð fyrir frítíma hjá konunum til að skoða bæinn okkar. Á morgun, laugardaginn 26. apríl, verða tónleikar í Íþróttahúsinu kl. 16, þar flytja kórarnir sýnishorn af eigin dagskrá.
Hópnum er skipt í fernt og æfir hver hópur ákveðin lög yfir helgina sem verða flutt á tónleikunum á sunnudaginn, sem eru kl. 14 í Íþróttahúsinu. Þá verða einnig flutt nokkur sameiginleg lög og Landsmótslagið frumflutt, en það samdi Þóra Marteinsdóttir við texta Guðbjarts Össurarsonar. Níu manna hljómsveit Jóhanns Moravek sér um undirspil.
Eru bæjarbúar hvattir til að taka þátt og koma á tónleika, en aðgangur á tónleikana er ókeypis.

En helgin verður ekki bara stífar söngæfingar. Föstudagskvöld er farið í óvissuferðina og á laugardagskvöldinu verður hátíðardagskrá, kvöldverður og svo stiginn stuttur dans við tóna hljómsveitarinnar Kusk, en það verður byrjað að æfa snemma á sunnudaginn!
Vilja kvennakórskonur koma á framfæri þakklæti til allra sem hafa stutt þær og aðstoðað til að þetta mót yrði að veruleika og vona þær að helgin verði öllum ánægjuleg.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica