Kvennakór Hornafjarðar
Nú er stundin runnin upp!
Þjóðarkvöld Kvennakórsins nálgast óðum og í ár heiðrum við frændur okkar Íra sem þekktir eru fyrir dans, drykkju og dúndrandi fjör. Að hætti hinnar írsku þjóðar verður lögð áhersla á gaman og gleði. Kvennakórinn mun að sjálfsögðu vera með eldheit skemmtiatriði og búast má við frægu fólki og fullum Írum. Ætli lýðveldisherinn IRA mæti á svæðið?
Eins og fyrri ár mun skemmtunin fara fram í okkar ástkæra Sindrabæ, 2. júlí n.k. Húsið opnar kl. 1930 og hefst gleðin stundvíslega kl. 2000. Forsala aðgöngumiða hefst föstudaginn 26. júní og hægt verður að nálgast miða hjá Ingu Kristínu í Sparisjóðnum frá þeim degi. Miðaverð er kr. 3000 kr. Vert er að taka fram að miðaverð er það sama og í fyrra.
Búast má við fjölbreyttum veitingum og má þar m.a. nefna Bailey´s fyrir hófdrykkjumenn og konur, Whiskey og Guinness fyrir vana og bjór, rauðvín og hvítvín fyrir hina. Að sjálfsögðu verður boðið upp á “Irish coffee”. Eins og allir vita leggja Írar meiri áherslu á drykk en mat og mun kvöldið vera í þeim anda. Engu að síður býður Kvennakórinn gestum að smakka á írskum mat.
Það er alkunna að allir Írar eru rauðhærðir og munum við því efna til keppni um rauðhaus kvöldsins. Nú er bara að ná sér í rauðan háralit, mæta á svæðið og vinna keppnina. Vegleg verðlaun eru sjálfsögðu í boði ásamt hinum mikla heiðri sem í titlinum felst. Grænn er þjóðarlitur Íra og ekki er úr vegi að draga eitthvað grænt fram úr klæðaskápnum fyrir kvöldið.
Kvennakórinn hlakkar til að sjá sem flesta í banastuði á írsku kvöldi.



