Fjáraflanir
Fjáraflanir
Kvennakór Hornafjarðar hefur tekið að sér ýmsar fjáraflanir í gegnum tíðina, er það til að halda félagsgjöldum í lágmarki. Að auki setja hinar ýmsu uppákomur lit á samfélagið og eru ekki síst konunum sjálfum til skemmtunar. Undir efnisflokknum Úrdráttur úr sögu er listi yfir allar þær fjáraflanir sem kórinn hefur tekið að sér og má þar sjá að ekkert er kvennakórskonum ómögulegt.
Engin kona í kórnum er skylduð til vinnu, þar sem misjafnlega getur staðið á hjá hverri og einni. Reynslan er sú að allar sem geta taka þátt og hafa gaman af, enda alltaf skemmtilegt þegar kvennakórskonur koma saman.
Það eru nokkrir atburðir sem hafa fest sig í sessi hjá Hornfirðingum svo sem bingó milli jóla og nýárs, fermingarskeytin og þjóðarkvöldin, fimmtudagkvöld fyrir Humarhátið. Og ekki má gleyma dagatölunum!
En fyrir utan þessa föstu pósta taka konurnar að sér ýmis verkefni aukalega og er bara að hafa samband við einhverja í stjórn eða tengilið í fjáröflunarnefnd.
Kunnum við öllum þeim fjölda fyrirtækja og einstaklinga sem hafa styrkt okkur, Kvennakórinn, við hinar ýmsu fjáraflanir þakkir fyrir.



