Dagatöl
Dagatöl | Fjáröflun
Kvennakór Hornafjarðar hefur undanfarið þrjú ár gefið út dagatal sem skartar myndum af kórkonum. Þetta framtak hefur vakið allnokkra athygli og fréttir af þessu hafa komið a.m.k. í Fréttablaðinu og DV. Enginn vill kannast við að hafa átt hugmyndina að þessari útgáfu og ekki er alveg vitað hvenær þessi hugmynd kviknaði en það mun hafa verið nokkru áður en ráðist var í útgáfuna. Haft var samband við Sigurð Mar Halldórsson sem tók vel í að sjá um myndatökuna fyrir kórinn og er hann nú orðinn að sérlegum ljósmyndara okkar. Gerð dagatalsins hefur tekið nokkrum breytingum, aðallega eftir ábendingum bæjarbúa því eins og venja er hefur fólk mjög misjafnar skoðanir á framtakinu og sitt sýnist hverjum. Ýmist eru konur of léttklæddar eða alltof dúðaðar. Við sem höfum staðið að útgáfunni höfum þó lært ýmislegt um dagatalagerð og getum því sagt að dagatalið sé komið yfir byrjunarhindranir og verður því væntanlega glæsilegra en nokkru sinni fyrr næst. Við þökkum bæjarbúum sem hafa lagt kórstarfinu lið með því að kaupa dagatalið.



