Fermingarskeyti
Fermingarskeyti
Kvennakór Hornafjarðar hefur í nokkur undanfarin ár verið með sölu á heillaskeytum til fermingarbarna. Þessi þjónusta hefur notið mikilla vinsælda og er mjög þægileg fyrir neytandann. Tímanlega fyrir fermingarvertíðina er sendur listi í öll hús í Sveitarfélaginu með nöfnum þeirra barna sem eiga að fermast þar sem fram kemur hvenær viðkomandi fermist og í hvaða kirkju. Einnig er þessi listi inn á rikivatnajokuls.is/ferming alltaf aðgengilegur Svo er bara að hringja eða senda tölvupóst og merkja við hvaða börn eiga að fá kveðju og við í kvennakórnum göngum frá þessu og berum út á fermingardaginn.
Einnig höfum við tekið að okkur tilfallandi heillaskeyti svo sem brúðkaup og afmæli eða bara hvað sem er innan siðsamlegra marka.
Sendum skeyti um allt land
Heillaskeyti Kvennakórsins, það er málið
Pöntunarsími fermingarskeyta er 895-8609 eða netfang ferming@hornafjordur.is
Verð á skeyti er 500 krónur
Listi yfir fermingar á hverju ári eru á rikivatnajokuls.is/ferming


