Þjóðarkvöld

Þjóðarkvöld | fjáröflun

Þéttskipaður salurinn í SindrabæSíðan á árinu 2006 hefur kvennakórinn haldið svokallað þjóðarkvöld í Sindrabæ fimmtudagskvöld fyrir Humarhátið, sem er haldin fyrstu helgina í júlí. Hefur þetta vakið mikla lukku og verið fjölsótt, svo haldið verður áfram með þennan sið og er spennandi að sjá hvaða þjóð er þemað hverju sinni. Í fyrsta sinn sem þetta var haldið var Spænskt kvöld og svo árið 2007 var Þýskt kvöld, enda kórinn þá nýkominn úr ferð til Þýskalands. Árið 2008 var haldið Amerískt kvöld og þá var troðfullt í Sindrabæ og þurftu margir frá að snúa. Á þjóðarkvöldum er boðið upp á þjóðlegan mat, skemmtiatriði og sköpuð stemning frá hverju landi sem tekið er fyrir og hefur þetta verið vegleg og skemmtileg byrjun á Humarhátiðinni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica