Menning

Frá æfingu Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu

Tónskólinn með tónleika í Nýheimum - 26.04.2006 Menning

Föstudaginn 28. apríl verða tónleikar í Nýheimum á vegum Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu þar sem lengra komnir nemendur skólans ætla að spila metnaðarfulla dagskrá. Þetta eru seinni tónleikarnir af tveimur en þeir fyrri voru haldnir 2. apríl s.l. Á tónleikunum verður m.a. píanóleikarar, þverflautuleikur, bassaleikur og saxófónleikur. Að lokum spilar léttsveit úr skólanum undir stjórn Gunnlaugs Þrastar ýmsar tónlistarstefnur svo sem swing, jass og dixilandtónlist. Að sögn Jóhanns Morávek skólastjóra tónskólans þá eru um 180 nemendur sem stunda nám við skólann þetta árið og við skólann starfa 10 kennarar. Kennsla hefur farið fram í Sindrabæ, Nesjaskóla, Hrollaugsstöðum og Hofgarði. Tónskóli A-Skaft. hefur staðið að 15 tónleikum á ári auk þess sem nemendur hafa komið víðsvegar fram í bænum. Lesa meira
 
Útlendingahersveitin

Jass í Nýheimum á heimsmælikvarða - 21.04.2006 Menning

Nú um helgina, þ.e. sunnudagskvöldið 23.apríl mun djasshljómsveitin Útlendingahersveitin leika á tónleikum í Nýheimum. Segja má að hér sé á ferðinni stórskotalið íslenskra djassleikara. Í sveitinni eru Árni Egilsson bassaleikari, sem starfar í Hollywood og hefur leikið í hundruðum kvikmynda og Pétur Östlund trommuleikari sem starfar í Svíþjóð og er einn þekktasti djasstrommari Evrópu. Þá eru í sveitinni Þórarinn Ólafsson píanóleikari sem býr á Spáni og er þekktur í þarlendum djassheimi, Jón Páll Bjarnason gítarleikari sem allir þekkja og Árni Scheving víbrafónleikari sem leikið hefur með í öllum helstu djasshljómsveitum hér á landi, ýmist á víbrafón eða bassa. Þessi sveit lék hér á Höfn fyrir sex árum og koma nú aftur og hefja tónleikaferð sína um landið á Hornafirði. Að sögn Jóhanns Moráveks þá spilar sveitin bara á fimm stöðum á landinu og segir hann að það sé heiður fyrir okkur Hornfirðinga að vera einn þeirra staða. Lesa meira
 
Hammondhátíð á Djúpavogi

Hammondhátíð á Djúpavogi - 19.04.2006 Menning

Nágrannasveitarfélagið okkar Hornfirðinga, Djúpivogur hefur ráðist í hvert stórvirkið á fætur öðru síðastliðin ár. Yngsta afkvæmi þeirra mun klekjast út á sumardaginn fyrsta en það er Hammondhátíð sem samanstendur af 5 tónleikum sem haldnir verða á Hótel Framtíð og í Djúpavogskirkju. Á fimmtudag munu heimamenn sameinast á stórtónleikum á Hótel Framtíð, á föstudagur mun hið magnaða orgeltríó B-3 leika listir sínar á Hótel Framtíð, á laugardag mun hinn margrómaði tenór Bergþór Pálsson syngja við undirleik hammondsnillingsins Davíðs Þórs Jónssonar í Djúpavogskirkju. Landslið frábærra listamanna mun heiðra hammondorgelið með leik og söng og svo er það stolt heimamanna Þorleifur Guðjónsson sem er einnig í áhöfninni. Lesa meira
 
Gluntar4

Glúntarnir í Nýheimum miðvikudagskvöld - 04.04.2006 Menning

Miðvikudaginn 5. apríl kl. 20 verður verða Glúntasönvarí í Nýheimum. það eru þeir félagar, Bergþór Pálsson og Ólafur Kjartan Sigurðarson á staðinn til að syngja svokallaða Glúntasöngva. Þetta eru bráðskemmtilegir söngvar og eru þeir félagar með píanósnillinginn Jónas Ingimundarsson með sér til að sjá um undirleikinn. En hvað eru Glúntar, Bárður Örn Bárðarson lýsti því á eftirfarandi hátt, Glúntarnir dregur nafn sitt af efni samnefndrar plötu. Sænsk vísnaskáld hafa löngum vel þekkt og vinsæl meðal íslendinga sem og annara íbúa Skandinavíu. Má þar t.d. nefna Carl Michael Bellman sem er íslendingum sérlega hjartfólgin enda lög hans og ljóð verið til í ýmsum myndum hér lengi. Annað sænskt skál er Gunnar Wennerberg, tónlistarmaður og pólitíkus. Hann fæddist 2. október 1817 - dáinn 24. ágúst 1901. Gunnar hóf árið 1846 að gefa út létta dúettsöngva fyrir barínton og bassarödd sem fljólega urðu feikivinsælir meðal stúdenta og kölluðust Gluntarne. Lesa meira
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica