Menning
Söngfuglar að sunnan
Söngfuglar að sunnan
Söngfuglar að sunnan

24.07.2006

Söngfuglar að sunnan í Nýheimum

Næstu helgi verður söngskemmtun í Nýheimum, þá koma söngfuglarnir Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Bergþór Pálsson ásamt Sigrún Eðvaldsdóttir fiðlusnillingi og Kjartani Valdemarssyni píanóleikara. Dagskráin verður fjölbreytt og víst er að glatt verður á hjalla. Flutt verða velþekkt íslensk sönglög, ódauðlegar perlur Edith Piaf, þess verður minnst að 250 ár eru liðin frá fæðingu Mozarts og lög úr fyrsta íslenska söngleiknum Skrúðsbóndanum eftir Björgvin Guðmundsson.

Tónleikarnir verða í Nýheimum laugardagskvöldið 29. júlí og hefjast kl. 20.00.

Senda grein

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica