Menning
MMH 2005 afhending
MMH 2005 afhending
Nemendur FAS fengu menningarerðlaunin 2005 (úr myndasafni).

29.12.2006

Auglýst eftir tilnefningum til Menningarverðlauna 2006

Menningarmálanefnd Hornafjarðar auglýsir nú eftir tilnefningum til Menningarverðlauna Hornafjarðar fyrir árið 2006. Í reglum um verðlaunin segir: Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar á nýliðnu ári. Hlutverk verðlaunanna er einnig að vera almenn hvatning til eflingar menningar- og listastarfs í sveitarfélaginu. Menningarverðlaun fyrir árið 2005 hlutu nemendur Framhaldsskólans í Austur Skaftafellssýslu fyrir Unicef- tónleikana sem haldnir voru í íþróttahúsinu í haust og fyrir hina geysivinsælu uppfærslu á söngleiknum Superstar sem sýndur var í fyrra vetur og hlaut frábærar viðtökur.

Tilnefningar fyrir árið 2006 ásamt stuttum rökstuðningi þarf að senda fyrir 7. janúar n.k. á:

Björg Erlingsdóttir
Menningarmiðstöð Hornafjarðar,
Nýheimum,
780 Höfn

eða á netfang: bjorgerl@hornafjordur.is

Senda grein

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica