Menning

Menning á Humarhátíð

Mikil menning á Humarhátíð - 29.06.2007 Menning

Að vanda verður mikið um menningarviðburði á Humarhátíð og má þar nefna sumarsýningu á verkum Svavars Guðnasonar sem opnar í dag. Á sýningunni verður úrval verka í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar, sem ekkja Svavars, Ásta Eiríksdóttir hefur fært sveitarfélaginu síðast liðin ár. Sýningin verður á Hafnarbraut 36, neðri hæð (gamla bókasafninu) og verður opin daglega frá kl. 14.00-18.00 til 7. ágúst. Á Graðalofti (á loftinu í Miklagarði) heldur Hlynur Pálmason (sonur Pálma Guðmundssonar og Elínar Magnúsdóttur) ljósmynda- og málverkasýningu. Þetta er fyrsta einkasýning Hlyns þar sem hann sýnir ljósmyndir, olíuverk og önnur verk sem hann hefur unnið að síðustu misseri. Sýningin opnaði í gær og stendur til laugardags 30. júní. Lesa meira
 
Þórbergur Þórðarson

Opið hús í Þórbergssetri - 29.06.2007 Menning

Sunnudaginn 1. júlí á safnadaginn er liðið nákvæmlega eitt ár frá opnun Þórbergsseturs á Hala. Gestkvæmt hefur verið þar síðustu daga og á þessu eina ári sem liðið er síðan setrið var opnað hafa um 6000 gestir skoðað sýningarnar þar. Mun fleiri hafa þó komið við í Þórbergssetri og kynnt sér verkefnið eða notið þar veitinga og spjallað um málefni líðandi stundar.Fjölskyldufólk hefur farið í ratleikina sem liggja um grundir og móa enda veður verið með eindæmum gott síðustu daga. Í tilefni af árs afmæli Þórbergsseturs verður opið hús þar sunnudaginn 1. júlí. Upplestur verður úr verkum Þórbergs í fjósbaðstofunni á Hala kl 14:00, í Bergshúsi kl 15:00 og á Hringbrautinni kl.16:00. Lesa meira
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica