Dýrin í Hálsaskógi á Hóteltúninu um Verslunarmannahelgina
Leikhópurinn Lotta mun sýna Dýrin í Hálsaskógi eftir Torbjörn Egner á Hóteltúninu nú um Verslunarmannahelgina. Leikhópurinn Lotta sem var stofnaður um haustið 2006 frumsýndi leikritið í maí s.l. í Elliðaárdalnum við miklar og góðar undirtektir. Í uppfærslu Lottu fá dýrin að komast í sitt rétta umhverfi en sýnt er undir berum himni í allt sumar. Leikhópurinn Lotta sýnir alltaf þeim sem vilja sjá og sýnir hópurinn hvort sem sólin leikur við gesti eða rigni. Tónlistarmennirnir sem koma að sýningunni eru þeir hinir sömu og hafa samið og flutt tónlistina í Stundinni Okkar í vetur. Gestir eru hvattir til að klæða sig eftir veðri og mæta með teppi til að sitja á og hlýja sér við.
Sýningarnar fara fram á Hóteltúninu föstudaginn 3. ágúst kl.13 og verða tvær sýningar á laugardeginum, kl. 15 og 18.



