Menning

bryndis

Bryndís tekin við söguhorninu á Bókasafninu - 18.10.2007 Menning

Bryndís Hólmarsdóttir hefur tekið við söguhorninu á Bókasafninu af Ragnhildi Guðmundsdóttur sem séð hefur um söguhornið síðustu ár. Um leið og við fögnum nýjum starfsmanni þökkum við á Bókasafninu og allir krakkarnir í söguhorninu Röggu okkar fyrir gott starf og skemmtilegar stundir á liðnum árum. Söguhornið heldur áfram á sínum venjulega tíma, kl. 14 á fimmtudögum er lesið fyrir krakka á aldrinum 3-6 ára og mamma, pabbi, afi og amma og eldri systkini eru velkomin með. Dagskrá sögustundar liggur frammi í bókasafninu og er einnig að finna á heimasíðu Menningarmiðstöðvar. Lesa meira
 
Ljúfir tónar

Málþing um norrænt menningarsamstarf - 10.10.2007 Menning

Menningarráð Austurlands sem Menningarmiðstöð Hornafjaðar er aðili að heldur málþing um norrænt menningarsamstarf 16. október á Hótel Héraði Egilsstöðum. Tilefnið er meðal annars það að út er að koma ritið Á jaðrinum – på ytterkanten, sem er samstarf Menningaaráðana á Austurlandi og í Vesterålen í Noregi. En á milli þessara svæða hefur verið formlegt menningarsamstarf í nokkur ár. Gestur málþingsins er nýr sendiherra Noregs á Íslandi Margit Tveiten. Fyrirlesarar eru Max Dager forstöðumaður Norræna hússins á Íslandi, María Jóna Jónsdóttir forstöðumaður Norrænu upplýsingaskrifstofunnar og Unnur Stefánsdóttir formaður vinabæjanefndar Norræna félagsins á Íslandi. Lesa meira
 
Torfhildur Þorsteinsdóttur

Hver var Torfhildur Hólm? - 08.10.2007 Menning

Vegna fyrirhugaðs málþings um Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm á Þórbergssetri næstkomandi laugardag og sunnudag langar mig að koma eftirfarandi á framfæri. Hver var Torfhildur Hólm? „Ég var sú fyrsta sem náttúran dæmdi til þess að uppskera hina beisku ávexti gamalla rótgróinna hleypidóma gegn litterærum dömum.“ Í samræðum við heimamenn á Hornafirði undanfarna daga hef ég komist að því að fæstir hafa heyrt Torfhildar Hólm rithöfundar getið og vita þar af leiðandi ekkert um þessa merku konu. Torfhildur Þorsteinsdóttir Hólm var fædd árið 1845 á Kálfafellsstað í Suðursveit þar sem faðir hennar Þorsteinn Einarsson var prestur. Móðir hennar var Guðríður Torfadóttir. Torfhildur ólst upp í Suðursveit en flutti þaðan 17 ára gömul og fór til Reykjavíkur til mennta árið 1862. Á þeim tíma voru æðri menntastofnanir landsins lokaðir konum en Torfhildur naut einkakennslu í tungumálum og einnig lærði hún hannyrðir og teikningu. Eftir fjögurra ára dvöl í Reykjavík sigldi hún til Kaupmannahafnar þar sem hún lærði áfram tungumál og hannyrðir. Lesa meira
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica