Auglýst eftir tilnefningum til Menningarverðlauna 2007
Menningarmálanefnd Hornafjarðar auglýsir nú eftir tilnefningum til Menningarverðlauna Hornafjarðar fyrir árið 2007. Í reglum um verðlaunin segir: Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar á nýliðnu ári. Hlutverk verðlaunanna er einnig að vera almenn hvatning til eflingar menningar- og listastarfs í sveitarfélaginu. Menningarverðlaun fyrir árið 2006 hlutu Hornfirska Skemmtifélagið og Þórbergssetur
Tilnefningar fyrir árið 2007 ásamt stuttum rökstuðningi þarf að senda fyrir mánudaginn 8. janúar n.k. á:
Björg Erlingsdóttir
Menningarmiðstöð Hornafjarðar,
Nýheimum,
780 Höfn
eða á netfang: bjorgerl@hornafjordur.is



