Ferðalag um lendur Vatnajökulsþjóðgarðs
Í febrúar var haldinn í Þórbergssetri fyrsti fræðslufundurinn af fjórum í máli og myndum, um landslagið og fólkið á landsvæðinu sem innan skamms mun teljast til Vatnajökulsþjóðgarðs. Þá var fjallað um þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum.
Það er Kári Kristjánsson starfsmaður Skaftafellsþjóðgarðs sem hefur sett dagskrána saman úr eigin myndasafni og miðlar af fróðleik og þekkingu sinni á svæðinu. Nú er komið að næsta kafla, farið verður suður Mývatnsöræfi að fótskör Herðubreiðar. Dagskrá verður í Þórbergssetri fimmtudaginn 3. apríl kl 20:00 og ber nafnið ,,Hátt er til lofts í höllu drottningar.......
Fjallað verður um Herðubreið drottningu íslenskra fjalla, ríki hennar er Ódáðahraun, þar eru heimkynni útilegumanna. Við skoðum landslagið, jarðfræðina og lífríkið einnig bústað Eyvindar Jónssonar, Fjalla Eyvindar, í Herðubreiðarlindum og hlýðum á upplestur. Þar var einnig Fjalla- Bensi á ferðinni, hann bjó í Mývatnssveit, en keypti von í fé sem ekki skilaði sér í eftirleitum. Lesefni sem tengist Fjalla-Bensa er bók Gunnars Gunnarssonar, - Aðventa
Stórval, Stefán V. Jónsson í Möðrudal sótti fyrirmynd að listsköpun sinni í þetta landslag, ásamt mörgum öðrum listamönnum og komið verður við í Sönghofsdal í Krepputungusporði, þar sem álfasöngurinn hljómar....
Efnið er byggt á litskyggnum, sögum og ljóðum fólks sem hefur tengst þessu stórbrotna landslagi á ýmsan hátt. Fetað verðu að hluta fáfarnar slóðir og við skoðum og kynnumst fyrirbærum sem fáir þekkja.
Marteinn Njálsson formaður Ferðaþjónustu bænda mætir í Þórbergssetur þetta kvöld. Í lok dagskrár ætlar hann að fjalla um starfsemi Ferðaþjónustu bænda og rabba við fundargesti. Kaffiveitingar verða í hléi og léttur kvöldverður fyrir langt að komna.
Allir velkomnir



