Menning

Humarhátíð 2006

Óskað eftir sjálfboðaliðum - 28.06.2008 Menning

Að halda Humarhátíð krefst markviss undirbúnings og mikillar vinnu. Margar hendur koma að því að gera hverja Humarhátíð að veruleika og sjálfboðaliðar leggja sitt að mörkum til þess að hátíðin megi heppnast sem best. Mörg félagasamtök hafa komið að skipulagningu og undirbúningi Humarhátíðarinnar í gegnum árin. Nægir þar að nefna Kiwanisklúbbinn ÓS, Karlakórinn Jökul, Kvennakór Hornafjarðar, Björgunarfélag Hornafjarðar og knattspyrnudeild Sindra. Í ár er hátíðin í höndum knattspyrnudeildarinnar og björgunarfélagsins. Starfsmaður er framkvæmdastjóri Sindra, Valdemar Einarsson. Björgunarfélagið og knattspyrnudeildin reyna að sjálfsögðu eftir fremsta megni að manna þau störf sem þarf að manna á hátíðinni. En það er alltaf hægt að nýta fleira fólk á öllum aldursstigum t.a.m. í gæslu á dansleikjum og á hátíðarsvæðinu. Lesa meira
 
Listasmiðja 2008

List og líf á Humarhátíð - 27.06.2008 Menning

Það verður mikið um að vera á Humarhátíð og bætist stanslaust í dagskránna. Það er frábært að sjá allt þetta úrval og það að áhersla sé lögð á hornfirskar hljómsveitir er til eftirbreytni. Fjölbreyttar sýningar að tryggja að flestir finni eitthvað við sitt hæfi og um að gera að flakka á milli sýninga, sýna sig og sjá aðra um leið og við njótum þess sem allir þessir listamenn hafa fram að færa. Í júní hefur verið starfandi listasamiðja fyrir börn á aldrinum 9- 16 ára og má búast við að þátttakendur í henni láti að sér kveða á Humarhátíð með leik og söng. Hafa Siggi Palli og Halldóra séð um hana og krakkarnir fjölmennt til þeirra. Verður spennandi að fylgjast með þeim en þegar nær dregur Humarhátíðinni fáum við betur að vita hvar þau verður að finna Lesa meira
 
Fjoruferd_a_Hvalnes_196

Vitaferð í Hvalnes - 25.06.2008 Menning

Í gær, 24.júní, var farið í aðra ferð sumarsins með barnastarfið í Menningamiðstöðinni. Farin var fjöruferð í Hvalnes með 25 káta krakka. Við fengum að skoða vitann, fórum í leiki, óðum í sjónum og borðuðum nesti og nutum sólarinnar í góða veðrinu. Á þriðjudaginn í næstu viku förum við svo í fjársjóðsferð á Melatanga sem verður auglýst nánar á föstudaginn á skjávarpinu. Munið eftir að skrá ykkur á bókasafninu og hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Starfsfólk menningarmiðstöðvar Kveðja Gulla og co Lesa meira
 
Sýning Hlynur

Listsýningar á Humarhátíðinni - 25.06.2008 Menning

Yfir Humarhátíðarhelgina verður Hlynur Pálmason með sýningu á ljósmyndum og málverkum, einskonar dagbókarbrot sem hann kallar “Sjónræn dagbók”, á Graðaloftinu. Sýningin opnar fimmtudaginn 3. júlí. Hlynur hélt sýningu á loftinu í fyrra og muna margir eftir skemmtilegri sýningu þessa fjölhæfa listamanns. Sýningin verður opin í kringum Humarhátíð og er sölusýning. Auk sýningar Hlyns verður Sigurður Mar með ljósmyndasýningu á hafnarsvæðinu og aldrei að vita nema fleiri sýningar skjóti upp kolli. Lesa meira
 
Borgþór Arngrímsson

Af Sólhól minninganna - 24.06.2008 Menning

Fimmtudaginn 3. júlí verður opnuð í Nýheimum sýningin "Af Sólhól minninganna". Sýning þessi er safn stuttra frásagna Borgþórs Arngrímssonar sem ólst upp á Sólhól (Bogaslóð 6) frá þriggja ára aldri. Borgþór, sem fæddur er 1950, hefur sett á blað minningabrot úr æsku sinni þar sem ýmsir íbúar í þorpinu og atburðir sem þar gerðust koma við sögu. Sonur Borgþórs Arngrímur, sem er menntaður myndlistarmaður, hefur gert teikningar sem fylgja hverri sögu, án þess þó endilega að tengjast beint söguefninu. Ennfremur fylgja sögunum ljósmyndir sem tengjast efninu. Sýningin verður opin á opnunartíma Bókasafnsins, alla virka daga 10-16 og um Humarhátíð 13-17. Lesa meira
 
Fuglaskoðun_2

Fyrsta ferð sumarsins - 18.06.2008 Menning

Nú er barnastarfið hafið og við fórum í fyrstu ferð sumarsins í dag, sem var fuglaskoðun í Óslandi. Ferðin var fjölmenn, en alls mættu 19 sprækir krakkar. Við sáum meðal annars Kríu, Skúm og Æðakollur með ungana sína og borðuðum svo nesti. Næsta ferð er 24. júní og það er Vitaferð í Hvalnes. Minnum á að skráning í ferðirnar fer fram á bókasafninu, eða í síma 4708050. Hlökkum til að sjá ykkur, starfsfólk Menningamiðstöðvar Lesa meira
 
Listasmiðja

Listasmiðja fyrir 10 - 16 ára krakka - 16.06.2008 Menning

Listasmiðja fyrir krakka á aldrinum 10 - 16 ára (fædd 1992-1999) hefst mánudaginn 16. júní og lýkur á Humarhátíð 6. júlí. Skráning í smiðjuna fer fram í Sindrabæ mánudaginn 16. júní milli klukkan 15 og 19, krafist er greiðsli við skráningu. Verð kr. 7000 fyrir fyrsta barn en kr. 3000 fyrir hvert systkini eftir það. Halldóra og Siggi Palli sjá um listasmiðjuna og lofa viðburðaríku sumri. Eitthvað verður í boði fyrir alla aldurshópa og markmiðið að virkja krakkana í leik og starfi. Listasmiðjan mun taka virkan þátt í Humarhátíð en hvort boðið verður uppá karnival, götuleikhús, söng, glens og gaman eða bara allt....kemur í ljós. Lesa meira
 
Gingó

Guðrún Ingólfsdóttir með málverkasýningu - 13.06.2008 Menning

Laugardaginn 14. júní opnar Guðrún Ingólfsdóttir málverkasýningu á Kaffihorninu. Þetta er önnur einkasýning hennar þar sem eru 33 akrýlverk og eitt málað með olíulitum, flest máluð á þessu ári. Myndefnið er sótt í ríki náttúrunnar og okkar nánasta umhverfi. Guðrún var við listnám í Reykjavík síðastliðinn vetur og lokaverkefni hennar frá Myndlistaskólanum í Reykjavík er til sýnis í útibúi Landsbanka Íslands á Höfn þessa dagana og heitir verkið AÐ FARA OG KOMA. Lesa meira
 
Lúðrasveit Tónskóla A-Skaft.

Lúðrar og list í Haukafelli - 09.06.2008 Menning

Fimmtudagskvöldið 12. júní mun Lúðrasveit Tónskóla A-Skaft. halda útitónleika í Haukafelli á Mýrum. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Skógræktarfélags Austur-Skaftfellinga og Lúðrasveitar Tónskóla A-Skaft. Lúðrasveitin undirbýr sig nú af kappi fyrir þátttöku í lúðrasveitarmóti í Gautaborg í Svíþjóð og eru tónleikarnir liður í þjálfun sveitarinnar fyrir það. Kvöldrúntur í Haukafell og lúðrablástur í sérstöku umhverfi er eitthvað sem allir ættu að upplifa og njóta. Lesa meira
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica