Menning

Frostrósir koma til Hafnar í desember

Frostrósir koma til Hafnar

02.11.2009

frostrosir 2009
frostrosir 2009
frostrósir

Frostrósir koma til Hafnar 2. desember. Jólatónleikar Frostrósa um landið hafa fengið frábærar viðtökur og nú er markmiðið að bjóða landsmönnum uppá glæsilegustu jólatónleikana til þessa. Það eru þau Margrét Eir, Guðrún Gunnars, Hera Björk, Friðrik Ómar og Jóhann Friðgeir sem færa íbúum Austur - Skaftafellssýslu jólin í ár í fylgd fjölda hljóðfæraleikara og barnakórs. Efnisskráin er einkar glæsileg og inniheldur vinsælustu lög Frostrósa sem og aðrar helstu perlur jólatónlistarinnar. Tónleikarnir verða í Íþróttahúsinu á Höfn miðvikudagurinn. 2. des. kl. 20:00. Húsið opnar kl. 19:30 og miðaverð er 3.990 krónur. Miðasala fer fram á midi.is og hjá Póstinum á Höfn frá og með kl. 10:00 þriðjudaginn 3. nóvember. ATH: Ef miði er keyptur á midi.is er nauðsynlegt að prenta út "e-miðann" sem kemur með staðfestingunni í tölvupósti - það er aðgöngumiðinn og hann einn tryggir aðgang að tónleikunum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica