Menningarráð Austurlands
Auglýsing um verkefnastyrki til menningarstarfs á Austurlandi
Menningarráð Austurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki á grunni samnings sveitarfélaga á Austurlandi og menntamálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis um menningarmál, frá 9. janúar 2008. Menningarráð Austurlands veitir styrki til menningarstarfs og menningartengdrar ferðaþjónustu á Austurlandi. Ein úthlutun verður og fer hún fram í byrjun árs 2010. Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Austurlandi geta sótt um styrki til margvíslegra menningarverkefna en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Menningarráð Austurlands hefur ákveðið að árið 2010 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
• Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
• Verkefni sem stuðla að nýjungum á sviði lista.
• Verkefni sem stuðla beint að fjölgun starfa.
• Verkefni sem hafa unnið sér sess og viðurkenningu og eru vaxandi. Umsóknarfrestur er til og með 16. desember 2009.
Ætlunin er að tilkynna um úthlutun í byrjun árs 2010. Menningarráð Austurlands hvetur umsækjendur að þessu sinni sérstaklega til að sækja um til verkefna sem:
• Efla þekkingu og fræðslu á sviði menningar og lista.
• Stuðla að eflingu á dansi, leiklist og sviðlist hverskonar.
• Miða að nýsköpun á sviði bókmennta.
• Miða að því að listnemar eða ungir listamenn frá Austurlandi komi í auknu mæli að listsköpun og menningarstarfi í fjórðungnum.
• Verkefni sem draga fram menningareinkenni staða ( svæða ) og efla nýsköpun á sviði ferðaþjónustu.
• Verkefni sem fara fram á vinnustöðum á Austurlandi. Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Austurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðunni menningarrad.is. Þar er einnig að finna stefnu sveitarfélaga á Austurlandi í menningarmálum, nýjar úthlutunarreglur og ýmsar aðrar upplýsingar fyrir umsækjendur. Styrkþegar frá síðasta ári verða að hafa skilað inn greinargerð skv. samningi til þess að þeir geti sótt um fyrir 2010. Allar nánari upplýsingar veitir Signý Ormarsdóttir, menningarfulltrúi á Austurlandi, í síma 471-3230, 860-2983 eða með tölvupósti menning@menningarrad.is Umsóknir skal senda í tölvupósti á menning@menningarrad.is og í átta eintökum i ábyrgðarpósti, til Menningarráðs Austurlands, pósthólf 123, 700 Egilsstaðir.



