Menning
Valur Zophoníasson
Valur Zophoníasson
Mynd 1 af 2
1 2

21.05.2010

Stuttmyndin 1991 sýnd á morgun

Stuttmyndin 1991 verður sýnd í Nýheimum 22. maí en hún er eftir Hornfirðinginn Val Zophoníasson. Myndin tekur þátt í stuttmyndasamkeppni Reykjavíkur 28. maí. Tónlistinn er einnig eftir Hornfirðing, Hrafn Eiríksson, en upptöku annaðist Friðjón Jónsson. Leikstjórn og handrit er eftir Val og aðalhlutverk leikur Oddur Júlíusson og Jón Ingi Stefánsson. Aðstoðarmenn við leikstjórn voru þau Guðrún Tara Sveinsdóttir og Jón Ingi.
Framleiðendur eru þau Guðrún, Jón og Valur. Það verður spennandi að sjá þessa mynd hjá þeim en hún var frumsýnd við góðar undirtektir í Reykjavík. Valur sagði við fréttamann að hann væri mjög sáttur við myndina, en Valur er vanur að eiga við kvikmyndir því hann vinnur hjá Framestore sem er tölvueftirvinnslufyritæki fyrir kvikmyndir.

Það eru allir velkomnir í Nýheima á sýninguna.



Senda grein

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica