Menning
Mynd af sýningunni Fjallasýn
Mynd af sýningunni Fjallasýn
Málverk eftir Höskuld Björnsson, merkt: Steinþór Þórðarson Hala - Heill þér sjötugum - K.A.S.K.

26.05.2010

Njálumót og Fjallasýn

Njálumót og opnun á sýningunni Fjallasýn  verður í Þórbergssetri föstudaginn 28. maí kl 20:00. Þar munu þeir Bjarni E. Sigurðsson og Fjölnir Torfason fjalla um Hornfirðinga í Njálu.
Nýlunda er að Bjarni E. Sigurðsson, sem er Skaftfellingur að ætt og uppruna, hefur í farteskinu myndir listakonunnar Þórhildar Jónsdóttur, en hún hefur teiknað myndir af helstu sögupersónum Njálu. Fjölnir ætlar að beina athygli lesenda Njálu í austurátt og sýna hvernig Skaftfellingar voru í raun örlagavaldar og gerendur í þessari merku sögu. Einnig mun hið sívinsækla efni um hver er höfundur Njálu koma til umræðu.

Sýningin Fjallasýn er samstarfsverkefni Skriðuklaustur og Þórbergsseturs.

Þar eru sýnd málverk af þremur fjöllum, Snæfelli, Herðubreið og Öræfajökli.

Einnig er leitað til skálda og náttúrufræðinga og varpað ljósi á breytta sýn til fjallanna í gegnum aldanna rás. Allir eru velkomnir að heimsækja vorið í Suðursveit og taka þátt í  umræðum um fornbókmenntir og listir í Þórbergssetri

Senda grein

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica