Menning
Fornleifarannsóknir
Fornleifarannsóknir
Fornleifarannsóknir 2010
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

18.06.2010

Fornleifarannsóknir að Hólmi í Nesjum

Fyrsta barnastarfsferð sumarsins

Á þriðjudaginn fór Menningamiðstöðin í fyrstu Barnastarfsferð sumarsins í glampandi sól og góðu veðri. Í ferðinni voru 9 hressir krakkar. Ferðinni var haldið að Hólmi í Nesjum þar sem fornleifarannsóknir hafa verið í gangi á hverju sumri síðastliðin ár. Þegar við komum á staðinn tók hann Ármann fornleifafræðingur á móti okkur og fræddi okkur um fornleifarannsóknir á svæðinu. Við byrjuðum á því að skoða Blóthús frá Landnámsöld, eða um 900 en þar voru heiðnar grafir sem að fannst kuml úr árið 1902. Við skoðuðum líka uppgröft af öðrum húsum frá Landsnámsöld en þar var verið að grafa upp eldstæði meðal annars, ásamt því að við fengum að sjá muni sem fundust í uppgreftrinum. Við uppgröftinn komu í ljós gjóskulög sem að voru frá gosi í Öræfajökli árið 1362 og svo úr veiðivötnum árið 1477. Við þökkum kærlega fyrir okkur og við sjáumst í næstu ferð krakkar. Krakkarnir fengu sýnishorn af gjóskulögunum til að taka með sér heim og sumir smökkuðu meira að segja á þeim. Eftir vel heppnaðar fornleifarannsóknir og nestispásu héldum við svo heim á leið.

Senda grein

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica