Steinaferð í Laxárdal
Á þriðjudaginn var lagði upp frá Menningarmiðstöð hópur á leið í steinaleit. Sverrir Scheving Thorsteinsson jarðfræðingur var steinráðgjafi í ferðinni. Ekið var uppí Laxárdal í Nesjum þar sem nóg er af líparít og litfögrum steinum. Sverrir lánaði börnunum jarðfræðihamra til að auðveldara væri að brjóta og finna steina. Þátttakendur voru duglegir að spyrja Sverri um heiti og gerð steinanna. Veðrið var mjög gott og hægt að dunda sér lengi við leit og skoðun fallegra steina. Nesti var snætt í mjúkri laut og spjallað saman. Næsta ferð er fjöruferð, lagt verður af stað frá Menningarmiðstöð kl. 13:00 þann 20. júli.


