Trúbatrix
Tónleikar í Pakkhúsinu
Trúbatrixur eru komnar á kreik eftir velheppnaðan tónleikaferð í vor til Bretlands og búnar að vera á tónleikaferð um Ísland í ágúst í samstarfi við Kraum tónlistarsjóð. Í þetta sinn verður áherslan lögð á að kynna nýjar og efnilegar íslenskar tónlistarkonur til leiks. Nýjar Trúbatrixur hafa bæst í hópinn og munu að minnsta kosti 10 nýjar trixur stíga á stokk í tónleikaferðinni ásamt áður kunnugum meðlimum hljómsveitarinnar. Aðgangur á alla tónleika er ókeypis en gestir eru hvattir til að veita frjáls framlög til að styrkja frekara starf Trúbatrix. Síðustu tónleikarnir í ferðalagi sveitarinnar eru í Pakkhúsinu fimmtudagskvöldið 26. Ágúst klukkan 20:00.
Hér er hægt að hlusta á tónlist sveitarinnar http://www.myspace.com/trubatrix



