Barnastarf MMH
Lúlli löggubangsi
Lúlli löggubangsi
Lúlli löggubangsi

Barnastarf

Sumar og vetur

 Sögustund

Frá október til maí er sögustund fyrir börn á aldrinum 3 til 6 ára á fimmtudögum kl. 14:15 til 14:45

Á veturna er ýmislegt að gerast á Bókasafninu okkar. Auk þess að lána öllum þeim sem vilja bækur, DVD diska eða tónlistardiska, málum við á páskaegg, lesum fyrir krakkana, leysum morðgátur eða fáum heimsfrægar stjörnur eins og Línu Langsokk eða Ronju ræningjadóttur í heimsókn. Einstaka óþokkar hafa líka litið við hjá okkur og við lögðum mikið á okkur við að hjálpa Línu að handsama ræningjana hér um árið.

Tilkynningar um viðburðina er að finna á heimasíðu Menningarmiðstöðvar. Bókasafnið er ævintýraheimur þar sem margar frægustu hetjur sögunnar eiga heima – í bókum og myndum sem fara með okkur í ferðalög á framandi slóðir, kynna okkur fyrir skemmtilegu fólki, ævintýrum og furðuverum.

Sumarstarf barna

Fundur í fjöruUndanfarin sumur hefur verið farið í fjölmargar ferðir og hægt er að nálgast dagskrá og myndir hér á heimasíðu Menningarmiðstöðvar.

Barnastarf sumarið 2009

Sögusumarið : Lærum um sögu Hornafjarðar

9. júní  Fornleifaferð. Mæting við Byggðasafn

16. júní  Fuglaskoðun. Mæting við Akureyna

23. júní Gengið um Ægisíðu. Mæting við Byggðasafnið

30. júní  Vinnuferð og sund. Mæting við Byggðasafnið

7. júlí  Heimsókn í fyrirtæki. Mæting við Jöklasýninguna

14. júlí  Plöntuferð. Mæting við Byggðasafnið

21. júlí Ferð í Mikley. Mæting við Höfnina

28. júlí Melatangi. Mæting við þjónustuhúsnæði Fjöruferða í Óslandi

4. ágúst Heyskapur. Mæting við Byggðasafnið

11. ágúst Lúruveiðar. Mæting á smábátabryggjuna

18. ágúst Óvissuferð. Mæting á Byggðasafnið og ekki verra að hafa með sér veiðistöng ...

Minnum börnin á að koma klædd eftir veðri og með nesti .

Krakkar á aldrinum 7-14 ára eru velkomin, yngri krakkar eru beðnir um að taka pabba og/eða mömmu með sér, afa og ömmu eða einhvern sem þau treysta til að hafa með sér í svona ævintýraferðir.

Starfsmenn Menningarmiðstöðvar skipuleggja ferðirnar og þær eru farnar í samvinnu við Íþróttafélagið Sindra. Það þurfa allir að skrá sig í ferðirnar – við þurfum að vita hvað við þurfum stórar rútur og marga starfsmenn í ferðirnar og því best að allir skrái sig í síma 470 8050.


 


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica